Revised Common Lectionary (Complementary)
96 Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd!
2 Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.
3 Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða.
4 Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar.
5 Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.
6 Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans.
7 Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða, tjáið Drottni vegsemd og vald.
8 Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans,
9 fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd!
10 Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi.
11 Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er,
12 foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðaróp,
13 fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.
14 Þegar þú ert kominn inn í landið, sem Drottinn Guð þinn gefur þér, og þú hefir fengið það til eignar og ert setstur þar að og segir: "Ég vil taka mér konung, eins og allar þjóðirnar, sem í kringum mig eru,"
15 þá skalt þú taka þann til konungs yfir þig, sem Drottinn Guð þinn útvelur. Mann af bræðrum þínum skalt þú taka til konungs yfir þig. Eigi mátt þú setja útlendan mann yfir þig, þann sem eigi er bróðir þinn.
16 Eigi skal hann hafa marga hesta, né heldur fara aftur með lýðinn til Egyptalands til þess að afla sér margra hesta, með því að Drottinn hefir sagt við yður: "Þér skuluð aldrei snúa aftur þessa leið."
17 Hann skal og eigi hafa margar konur, svo að hjarta hans gjörist eigi fráhverft, og hann skal eigi draga saman ógrynni af silfri og gulli.
18 Og þegar hann nú er setstur í hásæti konungdóms síns, þá skal hann fá lögmál þetta hjá levítaprestunum og rita eftirrit af því handa sér í bók.
19 Og hann skal hafa hana hjá sér og lesa í henni alla ævidaga sína, til þess að hann læri að óttast Drottin Guð sinn og gæti þess að halda öll fyrirmæli þessa lögmáls og þessi ákvæði,
20 að hann ofmetnist eigi í hjarta sínu yfir bræður sína og víki eigi frá boðorðunum, hvorki til hægri né vinstri, svo að hann megi um langa ævi ríkjum ráða í Ísrael, hann og synir hans.
5 Öldungana yðar á meðal áminni ég, sem einnig er öldungur og vottur písla Krists og einnig mun fá hlutdeild í þeirri dýrð, sem opinberuð mun verða:
2 Verið hirðar þeirrar hjarðar, sem Guð hefur falið yður. Gætið hennar ekki af nauðung, heldur af fúsu geði, að Guðs vilja, ekki sakir vansæmilegs ávinnings, heldur af áhuga.
3 Þér skuluð eigi drottna yfir söfnuðunum, heldur vera fyrirmynd hjarðarinnar.
4 Þá munuð þér, þegar hinn æðsti hirðir birtist, öðlast þann dýrðarsveig, sem aldrei fölnar.
5 Og þér, yngri menn, verið öldungunum undirgefnir og skrýðist allir lítillætinu hver gagnvart öðrum, því að "Guð stendur gegn dramblátum, en auðmjúkum veitir hann náð".
by Icelandic Bible Society