Print Page Options
Previous Prev Day Next DayNext

M’Cheyne Bible Reading Plan

The classic M'Cheyne plan--read the Old Testament, New Testament, and Psalms or Gospels every day.
Duration: 365 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Version
Fimmta bók Móse 28:20-68

20 Drottinn mun senda yfir þig bölvun, skelfing og ógnun í öllu því, er þú tekur þér fyrir hendur að gjöra, uns þú gjöreyðist og fyrirferst skyndilega sökum illra verka þinna _ sökum þess, að þú yfirgafst mig.

21 Drottinn mun láta drepsóttina við þig loða, þar til er hann eyðir þér úr landi því, er þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar.

22 Drottinn mun slá þig með tæring og köldu, hita og bruna, með ofþurrki, korndrepi og gulnan, og mun þetta ásækja þig uns þú líður undir lok.

23 Himinninn yfir höfði þér skal verða sem eir og jörðin undir fótum þér sem járn.

24 Í stað regns mun Drottinn láta ryk og sandfok koma yfir land þitt; það mun falla yfir þig af himni, uns þú ert gjöreyddur.

25 Drottinn mun láta þig bíða ósigur fyrir óvinum þínum. Um einn veg munt þú fara í móti þeim, en um sjö vegu munt þú flýja undan þeim, og þú munt verða grýla fyrir öll konungsríki jarðarinnar.

26 Og hræ þín munu verða æti fyrir alla fugla himinsins og fyrir dýr jarðarinnar, og enginn mun fæla þau burt.

27 Drottinn mun slá þig með egypskum kaunum: með kýlum, kláða og útbrotum, svo að þú skalt verða ólæknandi.

28 Drottinn mun slá þig með vitfirring, blindni og hugarsturlan.

29 Þú munt fálma um hábjartan dag, eins og blindur maður fálmar í myrkri, og þú munt enga gæfu hljóta á vegum þínum, og þú munt alla daga sæta tómri undirokun og ránskap, og enginn mun hjálpa þér.

30 Þú munt festa þér konu, en annar maður mun leggjast með henni. Þú munt reisa hús, en eigi búa í því. Þú munt planta víngarð, en engar hans nytjar hafa.

31 Uxa þínum mun slátrað verða fyrir augunum á þér, en þú munt ekki fá neitt af honum að eta. Asna þínum mun rænt verða að þér ásjáandi, en hann mun eigi hverfa aftur til þín. Sauðir þínir munu seldir verða í hendur óvinum þínum, og enginn mun hjálpa þér.

32 Synir þínir og dætur munu seldar verða í hendur annarri þjóð, og augu þín skulu horfa á það og daprast af þrá eftir þeim allan daginn, en þú skalt eigi fá að gjört.

33 Ávöxt lands þíns og allt það, er þú hefir aflað þér með striti þínu, mun þjóð ein eta, sem þú ekki þekkir, og þú munt sæta áþján einni og undirokun alla daga,

34 og þú munt verða vitstola út af því, er þú verður að horfa upp á.

35 Drottinn mun slá þig með illkynjuðum ólæknandi kaunum á knjám og fótleggjum, frá iljum og allt upp á hvirfil.

36 Drottinn mun leiða þig og konung þinn, þann er þú munt taka yfir þig, til þeirrar þjóðar, er hvorki þú né feður þínir hafa þekkt, og þar munt þú þjóna öðrum guðum, stokkum og steinum.

37 Og þú munt verða að undri, orðskvið og spotti meðal allra þjóða, þeirra er Drottinn leiðir þig til.

38 Mikið kornsæði munt þú færa út á akrana, en litlu skalt þú aftur inn safna, því að engisprettur skulu upp eta það.

39 Þú munt planta víngarða og yrkja þá, en vín munt þú hvorki drekka né leggja fyrir til geymslu, því að maðkurinn mun eyða því.

40 Þú munt hafa olíutré um allt land þitt, en með olíu munt þú eigi smyrja þig, því að olífur þínar munu detta af.

41 Þú munt geta sonu og dætur, en ekki fá að njóta þeirra, því að þau munu fara í útlegð.

42 Öll tré þín og ávöxt lands þíns munu engispretturnar leggja undir sig.

43 Útlendingurinn, sem hjá þér er, mun stíga hærra og hærra upp yfir þig, en þú færast lengra og lengra niður á við.

44 Hann mun lána þér, en þú munt eigi lána honum, hann mun verða höfuðið, en þú munt verða halinn.

45 Allar þessar bölvanir munu koma fram á þér, elta þig og á þér hrína, uns þú ert gjöreyddur, af því að þú hlýddir ekki raustu Drottins Guðs þíns, að varðveita skipanir hans og lög, þau er hann fyrir þig lagði,

46 og þær skulu fylgja þér og niðjum þínum ævinlega sem tákn og undur.

47 Fyrir því að þú þjónaðir ekki Drottni Guði þínum með gleði og fúsu geði, af því að þú hafðir allsnægtir,

48 þá skalt þú þjóna óvinum þínum, þeim er Drottinn sendir í móti þér, hungraður og þyrstur, klæðlaus og farandi alls á mis, og hann mun leggja járnok á háls þér, uns hann hefir gjöreytt þér.

49 Drottinn mun stefna í móti þér þjóð einni úr fjarlægð, frá enda jarðarinnar, og kemur hún fljúgandi eins og örn, þjóð, hverrar tungu þú ekki skilur,

50 illúðlegri þjóð, sem eigi skeytir manngrein gamalmenna og enga vægð sýnir ungmennum.

51 Og hún mun eta ávöxt fénaðar þíns og ávöxt lands þíns, uns þú ert gjöreyddur. Hún mun ekki leifa þér korni, aldinlegi og olíu, viðkomu nauta þinna né burði hjarðar þinnar, uns hún hefir gjört út af við þig.

52 Hún mun gjöra umsát um þig í öllum borgum þínum, uns hinir háu og rammgjörvu múrar þínir, sem þú treystir á, eru hrundir um land þitt allt. Og hún mun gjöra umsát um þig í öllum borgum þínum alls staðar í landi þínu, því er Drottinn Guð þinn gefur þér.

53 Og þú munt eta ávöxt kviðar þíns, holdið af sonum þínum og dætrum, þeim er Drottinn Guð þinn hefir gefið þér. Svo nærri mönnum mun umsátrið ganga og þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum.

54 Jafnvel sá maður meðal þín, sem mjúklífur er og mjög kveifarlegur, mun óblíðu auga líta bróður sinn, konuna í faðmi sínum og þau börnin sín, er hann enn á eftir,

55 og eigi tíma að gefa neinu af þeim neitt af holdi barna sinna, sem hann etur, af því að hann hefir ekkert annað til. Svo nærri mönnum mun umsátrið ganga og þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum í öllum borgum þínum.

56 Mjúklíf og kveifarleg kona meðal þín, sem aldrei hefir reynt að tylla fæti sínum á jörðina af kveifarhætti og tepruskap, mun óblíðu auga líta manninn í faðmi sínum, son sinn og dóttur sína,

57 og fylgjuna, sem út gengur af skauti hennar, og börn sín, þau er hún elur, því að hún etur þau sjálf á laun, þegar allar bjargir eru bannaðar. Svo nærri mönnum mun umsátrið ganga og þær hörmungar, er þú munt sæta af óvinum þínum í öllum borgum þínum.

58 Ef þú gætir þess eigi að halda öll fyrirmæli þessa lögmáls, þau er rituð eru í þessari bók, með því að óttast þetta dýrlega og hræðilega nafn, DROTTINN GUÐ ÞINN,

59 þá mun Drottinn slá þig og niðja þína með feiknaplágum, með miklum plágum og þrálátum, með illkynjuðum sjúkdómum og þrálátum,

60 og hann mun aftur láta yfir þig koma allar hinar egypsku sóttir, þær er þú hræðist, og þær munu við þig loða.

61 Auk þess mun Drottinn láta yfir þig koma alla þá sjúkdóma og allar þær plágur, sem ekki eru ritaðar í þessari lögmálsbók, uns þú ert gjöreyddur.

62 Aðeins fámennur hópur skal eftir verða af yður, í stað þess að þér áður voruð sem stjörnur himins að fjölda til, af því að þú hlýddir eigi raustu Drottins Guðs þíns.

63 Og eins og Drottinn áður fyrri hafði yndi af því að gjöra vel við yður og margfalda yður, eins mun Drottinn hafa yndi af að tortíma yður og gjöreyða, og þér munuð verða reknir burt úr því landi, er þér haldið nú inn í til þess að taka það til eignar.

64 Og Drottinn mun dreifa þér meðal þjóðanna frá einu heimsskauti til annars, og þar munt þú þjóna öðrum guðum, sem hvorki þú né feður þínir hafa þekkt, stokkum og steinum.

65 Og meðal þessara þjóða munt þú eigi mega búa í næði, og hvergi mun hvíldarstaður vera á fæti þínum, heldur mun Drottinn gefa þér þar skjálfandi hjarta, þrotnandi augu og ráðþrota sál.

66 Líf þitt mun leika fyrir þér sem á þræði, og þú munt hræddur vera nótt og dag og aldrei vera ugglaus um líf þitt.

67 Á morgnana muntu segja: "Ó, að það væri komið kveld!" og á kveldin muntu segja: "Ó, að það væri kominn morgunn!" sökum hræðslu þeirrar, er gagntekið hefir hjarta þitt, og sökum þess, er þú verður að horfa upp á.

68 Drottinn mun flytja þig aftur til Egyptalands á skipum, þá leið, er ég sagði um við þig: "Þú skalt aldrei framar líta hana!" Og þar munuð þér boðnir verða óvinum yðar til kaups að þrælum og ambáttum, en enginn vilja kaupa.

Sálmarnir 119:25-48

25 Sál mín loðir við duftið, lát mig lífi halda eftir orði þínu.

26 Ég hefi talið upp málefni mín, og þú bænheyrðir mig, kenn mér lög þín.

27 Lát mig skilja veg fyrirmæla þinna, að ég megi íhuga dásemdir þínar.

28 Sál mín tárast af trega, reis mig upp eftir orði þínu.

29 Lát veg lyginnar vera fjarri mér og veit mér náðarsamlega lögmál þitt.

30 Ég hefi útvalið veg sannleikans, sett mér ákvæði þín fyrir sjónir.

31 Ég held fast við reglur þínar, Drottinn, lát mig eigi verða til skammar.

32 Ég vil skunda veg boða þinna, því að þú hefir gjört mér létt um hjartað.

33 Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að ég megi halda þau allt til enda.

34 Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.

35 Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi ég yndi.

36 Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.

37 Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma, lífga mig á vegum þínum.

38 Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim er þig óttast.

39 Nem burt háðungina, sem ég er hræddur við, því að ákvæði þín eru góð.

40 Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.

41 Lát náð þína koma yfir mig, Drottinn, hjálpræði þitt, samkvæmt fyrirheiti þínu,

42 að ég fái andsvör veitt þeim er smána mig, því að þínu orði treysti ég.

43 Og tak aldrei sannleikans orð burt úr munni mínum, því að ég bíð dóma þinna.

44 Ég vil stöðugt varðveita lögmál þitt, um aldur og ævi,

45 þá mun ég ganga um víðlendi, því að ég leita fyrirmæla þinna,

46 þá mun ég tala um reglur þínar frammi fyrir konungum, og eigi skammast mín,

47 og leita unaðar í boðum þínum, þeim er ég elska,

48 og rétta út hendurnar eftir boðum þínum, þeim er ég elska, og íhuga lög þín.

Jesaja 55

55 Heyrið, allir þér sem þyrstir eruð, komið hingað til vatnsins, og þér sem ekkert silfur eigið, komið, kaupið korn og etið! Komið, kaupið korn án silfurs og endurgjaldslaust bæði vín og mjólk!

Hví reiðið þér silfur fyrir það, sem ekki er brauð, og gróða yðar fyrir það, sem ekki er til saðnings? Hlýðið á mig, þá skuluð þér fá gott að eta og sálir yðar gæða sér á feiti!

Hneigið eyru yðar og komið til mín, heyrið, svo að sálir yðar megi lifna við! Ég vil gjöra við yður eilífan sáttmála, Davíðs órjúfanlega náðarsáttmála.

Sjá, ég hefi gjört hann að vitni fyrir þjóðirnar, að höfðingja og stjórnara þjóðanna.

Sjá, þú munt kalla til þín þjóð, er þú þekkir ekki, og fólk, sem ekki þekkir þig, mun hraða sér til þín, sakir Drottins Guðs þíns og vegna Hins heilaga í Ísrael, af því að hann hefir gjört þig vegsamlegan.

Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann, meðan hann er nálægur!

Hinn óguðlegi láti af breytni sinni og illvirkinn af vélráðum sínum og snúi sér til Drottins, þá mun hann miskunna honum, til Guðs vors, því að hann fyrirgefur ríkulega.

Já, mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir, og yðar vegir ekki mínir vegir _ segir Drottinn.

Heldur svo miklu sem himinninn er hærri en jörðin, svo miklu hærri eru mínir vegir yðar vegum og mínar hugsanir yðar hugsunum.

10 Því eins og regn og snjór fellur af himni ofan og hverfur eigi þangað aftur, fyrr en það hefir vökvað jörðina, gjört hana frjósama og gróandi og gefið sáðmanninum sæði og brauð þeim er eta,

11 eins er því farið með mitt orð, það er útgengur af mínum munni: Það hverfur ekki aftur til mín við svo búið, eigi fyrr en það hefir framkvæmt það, sem mér vel líkar, og komið því til vegar, er ég fól því að framkvæma.

12 Já, með gleði skuluð þér út fara, og í friði burt leiddir verða. Fjöll og hálsar skulu hefja upp fagnaðarsöng fyrir yður, og öll tré merkurinnar klappa lof í lófa.

13 Þar sem áður voru þyrnirunnar, mun kýpresviður vaxa, og þar sem áður var lyng, mun mýrtusviður vaxa. Þetta mun verða Drottni til lofs og eilífs minningarmarks, sem aldrei mun afmáð verða.

Matteusarguðspjall 3

Á þeim dögum kemur Jóhannes skírari fram og prédikar í óbyggðum Júdeu.

Hann sagði: "Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd."

Jóhannes er sá sem svo er um mælt hjá Jesaja spámanni: Rödd hrópanda í eyðimörk: Greiðið veg Drottins, gjörið beinar brautir hans.

Jóhannes bar klæði úr úlfaldahári og leðurbelti um lendar sér og hafði til matar engisprettur og villihunang.

Menn streymdu til hans frá Jerúsalem, allri Júdeu og Jórdanbyggð,

létu skírast af honum í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.

Þegar hann sá, að margir farísear og saddúkear komu til skírnar, sagði hann við þá: "Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja komandi reiði?

Berið þá ávöxt samboðinn iðruninni!

Látið yður ekki til hugar koma, að þér getið sagt með sjálfum yður: ,Vér eigum Abraham að föður.` Ég segi yður, að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum.

10 Öxin er þegar lögð að rótum trjánna, og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.

11 Ég skíri yður með vatni til iðrunar, en sá sem kemur eftir mig, er mér máttugri, og er ég ekki verður að bera skó hans. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi.

12 Hann er með varpskófluna í hendi sér og mun gjörhreinsa láfa sinn og safna hveiti sínu í hlöðu, en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi."

13 Þá kemur Jesús frá Galíleu að Jórdan til Jóhannesar að taka skírn hjá honum.

14 Jóhannes vildi varna honum þess og sagði: "Mér er þörf að skírast af þér, og þú kemur til mín!"

15 Jesús svaraði honum: "Lát það nú eftir. Þannig ber okkur að fullnægja öllu réttlæti." Og hann lét það eftir honum.

16 En þegar Jesús hafði verið skírður, sté hann jafnskjótt upp úr vatninu. Og þá opnuðust himnarnir, og hann sá anda Guðs stíga niður eins og dúfu og koma yfir sig.

17 Og rödd kom af himnum: "Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á."

Icelandic Bible (ICELAND)

by Icelandic Bible Society