Revised Common Lectionary (Complementary)
103 Davíðssálmur. Lofa þú Drottin, sála mín, og allt sem í mér er, hans heilaga nafn,
2 lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans.
3 Hann fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein,
4 leysir líf þitt frá gröfinni, krýnir þig náð og miskunn.
5 Hann mettar þig gæðum, þú yngist upp sem örninn.
6 Drottinn fremur réttlæti og veitir rétt öllum kúguðum.
7 Hann gjörði Móse vegu sína kunna og Ísraelsbörnum stórvirki sín.
8 Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.
9 Hann þreytir eigi deilur um aldur og er eigi eilíflega reiður.
10 Hann hefir eigi breytt við oss eftir syndum vorum og eigi goldið oss eftir misgjörðum vorum,
11 heldur svo hár sem himinninn er yfir jörðunni, svo voldug er miskunn hans við þá er óttast hann.
12 Svo langt sem austrið er frá vestrinu, svo langt hefir hann fjarlægt afbrot vor frá oss.
13 Eins og faðir sýnir miskunn börnum sínum, eins hefir Drottinn sýnt miskunn þeim er óttast hann.
45 Jósef gat þá ekki lengur haft stjórn á sér í augsýn allra, sem viðstaddir voru, og kallaði: "Látið alla ganga út frá mér!" Og enginn maður var inni hjá honum, þegar hann sagði bræðrum sínum hver hann væri.
2 Og hann grét hástöfum, svo að Egyptar heyrðu það, og hirðmenn Faraós heyrðu það.
3 Jósef mælti við bræður sína: "Ég er Jósef. Er faðir minn enn á lífi?" En bræður hans gátu ekki svarað honum, svo hræddir urðu þeir við hann.
4 Og Jósef sagði við bræður sína: "Komið hingað til mín!" Og þeir gengu til hans. Hann mælti þá: "Ég er Jósef bróðir yðar, sem þér selduð til Egyptalands.
5 En látið það nú ekki fá yður hryggðar, og setjið það ekki fyrir yður, að þér hafið selt mig hingað, því að til lífs viðurhalds hefir Guð sent mig hingað á undan yður.
6 Því að nú hefir hallærið verið í landinu í tvö ár, og enn munu líða svo fimm ár, að hvorki verði plægt né uppskorið.
7 En Guð hefir sent mig hingað á undan yður til þess að halda við kyni yðar á jörðinni og sjá lífi yðar borgið, til mikils hjálpræðis.
8 Það er því ekki þér, sem hafið sent mig hingað, heldur Guð. Og hann hefir látið mig verða Faraó sem föður og herra alls húss hans og höfðingja yfir öllu Egyptalandi.
9 Hraðið yður nú og farið heim til föður míns og segið við hann: ,Svo segir Jósef sonur þinn: Guð hefir gjört mig að herra alls Egyptalands; kom þú til mín og tef eigi.
10 Og þú skalt búa í Gósenlandi og vera í nánd við mig, þú og synir þínir og sonasynir þínir og sauðfé þitt og nautgripir þínir og allt, sem þitt er.
11 En ég skal sjá þér þar fyrir viðurværi, _ því að enn verður hallæri í fimm ár _, svo að þú komist ekki í örbirgð, þú og þitt hús og allt, sem þitt er.`
12 Og nú sjá augu yðar, og augu Benjamíns bróður míns sjá, að ég með eigin munni tala við yður.
13 Og segið föður mínum frá allri vegsemd minni á Egyptalandi og frá öllu, sem þér hafið séð, og flýtið yður nú og komið hingað með föður minn."
14 Og hann féll um háls Benjamín bróður sínum og grét, og Benjamín grét um háls honum.
15 Og hann minntist við alla bræður sína, faðmaði þá og grét. Eftir það töluðu bræður hans við hann.
16 Þau tíðindi bárust til hirðar Faraós: "Bræður Jósefs eru komnir!" Og lét Faraó og þjónar hans vel yfir því.
17 Og Faraó sagði við Jósef: "Seg þú við bræður þína: ,Þetta skuluð þér gjöra: Klyfjið eyki yðar og haldið af stað og farið til Kanaanlands.
18 Takið föður yðar og fjölskyldur yðar og komið til mín, og skal ég gefa yður bestu afurðir Egyptalands, og þér skuluð eta feiti landsins.`
19 Og bjóð þú þeim: ,Gjörið svo: Takið yður vagna í Egyptalandi handa börnum yðar og konum yðar og flytjið föður yðar og komið.
20 Og hirðið eigi um búshluti yðar, því að hið besta í öllu Egyptalandi skal vera yðar."`
7 Þegar þér biðjist fyrir, skuluð þér ekki fara með fánýta mælgi að hætti heiðingja. Þeir hyggja, að þeir verði bænheyrðir fyrir mælgi sína.
8 Líkist þeim ekki. Faðir yðar veit, hvers þér þurfið, áður en þér biðjið hann.
9 En þannig skuluð þér biðja: Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn,
10 til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
11 Gef oss í dag vort daglegt brauð.
12 Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum.
13 Og eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. [Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu, amen.]
14 Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður.
15 En ef þér fyrirgefið ekki öðrum, mun faðir yðar ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar.
by Icelandic Bible Society