Print Page Options
Previous Prev Day Next DayNext

Revised Common Lectionary (Complementary)

Daily Bible readings that follow the church liturgical year, with thematically matched Old and New Testament readings.
Duration: 1245 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Version
Sálmarnir 119:33-40

33 Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að ég megi halda þau allt til enda.

34 Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.

35 Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi ég yndi.

36 Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.

37 Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma, lífga mig á vegum þínum.

38 Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim er þig óttast.

39 Nem burt háðungina, sem ég er hræddur við, því að ákvæði þín eru góð.

40 Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.

Esekíel 24:1-14

24 Og orð Drottins kom til mín níunda árið, tíunda dag hins tíunda mánaðar, svohljóðandi:

"Mannsson, skrifa þú upp hjá þér þennan dag, _ einmitt þennan dag. Einmitt í dag hefir Babelkonungur ráðist á Jerúsalem.

Flyt því hinni þverúðugu kynslóð líking og seg við þá: Svo segir Drottinn Guð: Set þú upp pottinn, set hann upp, og hell vatni í hann.

Lát kjötstykkin í hann, öll bestu stykkin, lærin og bógana, fyll hann úrvalsbeinbitum.

Tak þau af úrvalskindum og legg einnig skíð undir pottinn. Lát sjóða á kjötstykkjunum, beinbitarnir soðna þegar í honum.

Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Vei hinni blóðseku borg, pottinum með ryðflekkjunum, sem ryðflekkirnir gengu ekki af. Allt hefir verið fært upp úr honum, hvert stykkið eftir annað, án þess að varpa hlutum um þau.

Því að blóðið, sem hún hefir úthellt, er enn í henni. Hún hefir látið það renna á bera klettana, ekki hellt því á jörðina til þess að hylja það moldu.

Til þess að sýna heift og koma fram hefnd, hefi ég látið blóðið, sem hún hefir úthellt, renna á bera klettana, til þess að það skuli eigi hulið verða.

Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Vei hinni blóðseku borg! Já, ég vil gjöra eldgrófina stóra.

10 Drag saman mikinn við, kveik upp eldinn, sjóð kjötið vandlega, lát súpuna sjóða, svo að beinin brenni.

11 Set síðan tóman pottinn á glæðurnar, til þess að hann hitni og eirinn í honum verði glóandi og óhreinindin, sem í honum eru, renni af og ryð hans eyðist.

12 Alla fyrirhöfn hefir hann að engu gjört, því að hið mikla ryð gekk ekki af honum í eldinum,

13 sökum lauslætissaurugleika þíns. Af því að ég hefi reynt að hreinsa þig, en þú varðst eigi hrein af saurugleik þínum, þá skalt þú ekki framar verða hrein, uns ég hefi svalað heift minni á þér.

14 Ég, Drottinn, hefi talað það. Það kemur, og ég framkvæmi það, ég læt ekki undan draga, ég vægi ekki og ég læt mig einskis iðra. Eftir breytni þinni og eftir gjörðum þínum dæma menn þig, _ segir Drottinn Guð."

Síðara bréf Páls til Kori 12:11-21

11 Ég hef gjörst frávita. Þér hafið neytt mig til þess. Ég átti heimtingu á að hljóta meðmæli af yður. Því að í engu stóð ég hinum stórmiklu postulum að baki, enda þótt ég sé ekki neitt.

12 Postulatákn voru gjörð á meðal yðar af mikilli þrautseigju, tákn, undur og kraftaverk.

13 Í hverju voruð þér settir lægra en hinir söfnuðirnir, nema ef vera skyldi í því, að ég sjálfur hef ekki verið yður til byrði? Fyrirgefið mér þennan órétt.

14 Þetta er nú í þriðja sinn, að ég er ferðbúinn að koma til yðar, og ætla ég ekki að verða yður til byrði. Ég sækist ekki eftir eigum yðar, heldur yður sjálfum. Því að ekki eiga börnin að safna fé handa foreldrunum, heldur foreldrarnir handa börnunum.

15 Ég er fús til að verja því, sem ég á, já, leggja sjálfan mig í sölurnar fyrir yður. Ef ég elska yður heitar, verð ég þá elskaður minna?

16 En látum svo vera, að ég hafi ekki verið yður til byrði, en hafi verið slægur og veitt yður með brögðum.

17 Hef ég notað nokkurn þeirra, sem ég hef sent til yðar, til þess að hafa eitthvað af yður?

18 Ég bað Títus að fara og sendi bróðurinn með honum. Hefur þá Títus haft eitthvað af yður? Komum við ekki fram í einum og sama anda? Fetuðum við ekki í sömu fótsporin?

19 Fyrir löngu eruð þér farnir að halda, að vér séum að verja oss gagnvart yður. Nei, vér tölum fyrir augliti Guðs, eins og þeir, sem tilheyra Kristi. Allt er það yður til uppbyggingar, mínir elskuðu.

20 Ég er hræddur um, að mér muni þykja þér öðruvísi en ég óska, er ég kem, og að yður muni þykja ég öðruvísi en þér óskið og á meðal yðar kunni að vera deilur, öfund, reiði, eigingirni, bakmælgi, rógburður, hroki og óeirðir.

21 Ég er hræddur um, að Guð minn muni auðmýkja mig hjá yður, þegar ég kem aftur, og að ég muni hryggjast yfir mörgum þeirra, sem áður hafa syndgað og ekki hafa snúið sér frá saurlífi, frillulífi og ólifnaði, sem þeir hafa drýgt.

Icelandic Bible (ICELAND)

by Icelandic Bible Society