Revised Common Lectionary (Complementary)
49 Fyrir kvenraddir. Til söngstjórans. Kóraítasálmur.
2 Heyrið þetta, allar þjóðir, hlustið á, allir heimsbúar,
3 bæði lágir og háir, jafnt ríkir sem fátækir!
4 Munnur minn talar speki, og ígrundun hjarta míns er hyggindi.
5 Ég hneigi eyra mitt að spakmæli, ræð gátu mína við gígjuhljóm.
6 Hví skyldi ég óttast á mæðudögunum, þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku,
7 þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi.
8 Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hann.
9 Lausnargjaldið fyrir líf þeirra mundi verða of hátt, svo að hann yrði að hætta við það að fullu,
10 ætti hann að halda áfram að lifa ævinlega og líta ekki í gröfina.
11 Nei, hann sér, að vitrir menn deyja, að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín.
12 Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns, jafnvel þótt þeir hafi kennt lendur við nafn sitt.
24 Öfunda ekki vonda menn og lát þig ekki langa til að vera með þeim,
2 því að hjarta þeirra býr yfir ofríkisverkum, og varir þeirra mæla ógæfu.
3 Fyrir speki verður hús reist, og fyrir hyggni verður það staðfast,
4 fyrir þekking fyllast forðabúrin alls konar dýrum og yndislegum fjármunum.
5 Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill,
6 því að holl ráð skalt þú hafa, er þú heyr stríð, og þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.
7 Viskan er afglapanum ofviða, í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.
8 Þann sem leggur stund á að gjöra illt, kalla menn varmenni.
9 Syndin er fíflslegt fyrirtæki, og spottarinn er mönnum andstyggð.
10 Látir þú hugfallast á neyðarinnar degi, þá er máttur þinn lítill.
11 Frelsaðu þá, sem leiddir eru fram til lífláts, og þyrm þeim, sem ganga skjögrandi að höggstokknum.
12 Segir þú: "Vér vissum það eigi," _ sá sem vegur hjörtun, hann verður sannarlega var við það, og sá sem vakir yfir sálu þinni, hann veit það og mun gjalda manninum eftir verkum hans.
17 Þetta segi ég þá og vitna í nafni Drottins: Þér megið ekki framar hegða yður eins og heiðingjarnir hegða sér. Hugsun þeirra er allslaus,
18 skilningur þeirra blindaður og þeir eru fjarlægir lífi Guðs vegna vanþekkingarinnar, sem þeir lifa í, og síns harða hjarta.
19 Þeir eru tilfinningalausir og hafa ofurselt sig lostalífi, svo að þeir fremja alls konar siðleysi af græðgi.
20 En svo hafið þér ekki lært að þekkja Krist.
21 Því að ég veit, að þér hafið heyrt um hann og hafið verið um hann fræddir eins og sannleikurinn er í Jesú:
22 Þér eigið að hætta hinni fyrri breytni og afklæðast hinum gamla manni, sem er spilltur af tælandi girndum,
23 en endurnýjast í anda og hugsun og
24 íklæðast hinum nýja manni, sem skapaður er eftir Guði í réttlæti og heilagleika sannleikans.
by Icelandic Bible Society