Revised Common Lectionary (Complementary)
97 Hve mjög elska ég lögmál þitt, allan liðlangan daginn íhuga ég það.
98 Boð þín hafa gjört mig vitrari en óvinir mínir eru, því að þau heyra mér til um eilífð.
99 Ég er hyggnari en allir kennarar mínir, því að ég íhuga reglur þínar.
100 Ég er skynsamari en öldungar, því að ég held fyrirmæli þín.
101 Ég held fæti mínum frá hverjum vondum vegi til þess að gæta orðs þíns.
102 Frá ákvæðum þínum hefi ég eigi vikið, því að þú hefir frætt mig.
103 Hversu sæt eru fyrirheit þín gómi mínum, hunangi betri munni mínum.
104 Af fyrirmælum þínum er ég skynsamur orðinn, fyrir því hata ég sérhvern lygaveg.
9 Spekin hefir reist sér hús, höggvið til sjö stólpa sína.
2 Hún hefir slátrað sláturfé sínu, byrlað vín sitt, já, hún hefir þegar búið borð sitt.
3 Hún hefir sent út þernur sínar, hún kallar á háum stöðum í borginni:
4 "Hver, sem óreyndur er, komi hingað!" Við þann, sem óvitur er, segir hún:
5 "Komið, etið mat minn og drekkið vínið, sem ég hefi byrlað.
6 Látið af heimskunni, þá munuð þér lifa, og fetið veg hyggindanna."
7 Sá sem áminnir spottara, bakar sér smán, og þeim sem ávítar óguðlegan, verður það til vansa.
8 Ávíta eigi spottarann, svo að hann hati þig eigi, ávíta hinn vitra, og hann mun elska þig.
9 Gef hinum vitra, þá verður hann að vitrari, fræð hinn réttláta, og hann mun auka lærdóm sinn.
10 Ótti Drottins er upphaf viskunnar og að þekkja Hinn heilaga eru hyggindi.
11 Því að fyrir mitt fulltingi munu dagar þínir verða margir og ár lífs þíns aukast.
12 Sért þú vitur, þá ert þú vitur þér til góðs, en sért þú spottari, þá mun það bitna á þér einum.
13 Frú Heimska er óhemja, einföld og veit ekkert.
14 Hún situr úti fyrir húsdyrum sínum, á stól uppi á háu stöðunum í borginni
15 til þess að kalla á þá, sem um veginn fara, þá er ganga beint áfram leið sína:
16 "Hver sem óreyndur er, komi hingað!" og við þann sem óvitur er, segir hún:
17 "Stolið vatn er sætt, og lostætt er launetið brauð."
18 Og hann veit ekki, að þar eru hinir framliðnu, að þeir sem hún hefir boðið heim, eru í djúpum Heljar.
2 Börnin mín! Þetta skrifa ég yður til þess að þér skuluð ekki syndga. En ef einhver syndgar, þá höfum vér árnaðarmann hjá föðurnum, Jesú Krist, hinn réttláta.
2 Hann er friðþæging fyrir syndir vorar og ekki einungis fyrir vorar syndir, heldur líka fyrir syndir alls heimsins.
3 Og á því vitum vér, að vér þekkjum hann, ef vér höldum boðorð hans.
4 Sá sem segir: "Ég þekki hann," og heldur ekki boðorð hans, er lygari og sannleikurinn er ekki í honum.
5 En hver sem varðveitir orð hans, í honum er sannarlega kærleikur til Guðs orðinn fullkominn. Af því þekkjum vér, að vér erum í honum.
6 Þeim sem segist vera stöðugur í honum, honum ber sjálfum að breyta eins og hann breytti.
by Icelandic Bible Society