Revised Common Lectionary (Complementary)
9 Finnið og sjáið, að Drottinn er góður, sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum.
10 Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir er óttast hann líða engan skort.
11 Ung ljón eiga við skort að búa og svelta, en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis.
12 Komið, börn, hlýðið á mig, ég vil kenna yður ótta Drottins.
13 Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar,
14 þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali,
12 Þá svaraði Job og sagði:
2 Já, vissulega, miklir menn eruð þér, og með yður mun spekin deyja út!
3 En ég hefi vit eins og þér, ekki stend ég yður að baki, og hver er sá, er eigi viti slíkt!
4 Athlægi vinar síns _ það má ég vera, ég sem kallaði til Guðs, og hann svaraði mér, _ ég, hinn réttláti, hreinlyndi, er að athlægi!
5 "Ógæfan er fyrirlitleg" _ segir hinn öruggi, "hún hæfir þeim, sem skrikar fótur."
6 Tjöld spellvirkjanna standa ósködduð, og þeir lifa áhyggjulausir, sem egna Guð til reiði, og sá sem þykist bera Guð í hendi sér.
7 En spyr þú skepnurnar, og þær munu kenna þér, fugla loftsins, og þeir munu fræða þig,
8 eða villidýrin, og þau munu kenna þér, og fiskar hafsins munu kunngjöra þér.
9 Hver þeirra veit ekki að hönd Drottins hefir gjört þetta?
10 Í hans hendi er líf alls hins lifanda og andi sérhvers mannslíkama.
11 Prófar eyrað ekki orðin, eins og gómurinn smakkar matinn?
12 Hjá öldruðum mönnum er speki, og langir lífdagar veita hyggindi.
13 Hjá Guði er speki og máttur, hans eru ráð og hyggindi.
14 Þegar hann rífur niður, þá verður eigi byggt upp aftur, þegar hann setur einhvern í fangelsi, þá verður ekki lokið upp.
15 Þegar hann stíflar vötnin, þá þorna þau upp, þegar hann hleypir þeim, þá umturna þau jörðinni.
16 Hjá honum er máttur og viska, á valdi hans er sá er villist, og sá er í villu leiðir.
17 Hann leiðir ráðherra burt nakta og gjörir dómara að fíflum.
18 Hann leysir fjötra konunganna og bindur reipi um lendar sjálfra þeirra.
19 Hann leiðir presta burt nakta og steypir þeim, sem sitja fastir í sessi.
20 Hann rænir reynda menn málinu og sviptir öldungana dómgreind.
21 Hann hellir fyrirlitning yfir tignarmennin og gjörir slakt belti hinna sterku.
22 Hann grefur hið hulda fram úr myrkrinu og dregur niðdimmuna fram í birtuna.
23 Hann veitir þjóðunum vöxt og eyðir þeim, útbreiðir þjóðirnar og leiðir þær burt.
24 Hann firrir þjóðhöfðingja landsins viti og lætur þá villast um veglaus öræfi.
25 Þeir fálma í ljóslausu myrkri, og hann lætur þá skjögra eins og drukkinn mann.
17 Ég áminni yður um, bræður, að hafa gát á þeim, er vekja sundurþykkju og tæla frá þeirri kenningu, sem þér hafið numið. Sneiðið hjá þeim.
18 Því að slíkir menn þjóna ekki Drottni vorum Kristi, heldur eigin maga, og með blíðmælum og fagurgala blekkja þeir hjörtu hrekklausra manna.
19 Hlýðni yðar er alkunn orðin. Því gleðst ég yfir yður og ég vil, að þér séuð vitrir í því, sem gott er, en einfaldir í því, sem illt er.
20 Guð friðarins mun bráðlega sundurmola Satan undir fótum yðar. Náðin Drottins vors Jesú Krist sé með yður.
by Icelandic Bible Society