Font Size
Readings for Celebrating Advent
Scripture passages that focus on the meaning of Advent and Christmas.
Duration: 35 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Fyrsta bók Móse 46:2-5
2 Og Guð talaði við Ísrael í sýn um nóttina og sagði: "Jakob, Jakob!" Og hann svaraði: "Hér er ég."
3 Og hann sagði: "Ég er Guð, Guð föður þíns. Óttast þú ekki að fara til Egyptalands, því að þar mun ég gjöra þig að mikilli þjóð.
4 Ég mun fara með þér til Egyptalands, og ég mun líka flytja þig þaðan aftur, og Jósef skal veita þér nábjargirnar."
5 Þá tók Jakob sig upp frá Beerseba, og Ísraels synir fluttu Jakob föður sinn og börn sín og konur sínar á vögnunum, sem Faraó hafði sent til að flytja hann á.
Icelandic Bible (ICELAND)
by Icelandic Bible Society