Print Page Options
Previous Prev Day Next DayNext

Revised Common Lectionary (Complementary)

Daily Bible readings that follow the church liturgical year, with thematically matched Old and New Testament readings.
Duration: 1245 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Version
Sálmarnir 51

51 Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,

þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.

Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.

Þvo mig hreinan af misgjörð minni, hreinsa mig af synd minni,

því að ég þekki sjálfur afbrot mín, og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.

Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur, er þú talar, hreinn, er þú dæmir.

Sjá, sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig.

Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra, og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!

Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn, þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.

10 Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefir sundurmarið.

11 Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

12 Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.

13 Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.

14 Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda,

15 að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín.

16 Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.

17 Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

18 Þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum _ annars mundi ég láta þær í té _ og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

19 Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

20 Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem!

21 Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

Fimmta bók Móse 28:58-29:1

58 Ef þú gætir þess eigi að halda öll fyrirmæli þessa lögmáls, þau er rituð eru í þessari bók, með því að óttast þetta dýrlega og hræðilega nafn, DROTTINN GUÐ ÞINN,

59 þá mun Drottinn slá þig og niðja þína með feiknaplágum, með miklum plágum og þrálátum, með illkynjuðum sjúkdómum og þrálátum,

60 og hann mun aftur láta yfir þig koma allar hinar egypsku sóttir, þær er þú hræðist, og þær munu við þig loða.

61 Auk þess mun Drottinn láta yfir þig koma alla þá sjúkdóma og allar þær plágur, sem ekki eru ritaðar í þessari lögmálsbók, uns þú ert gjöreyddur.

62 Aðeins fámennur hópur skal eftir verða af yður, í stað þess að þér áður voruð sem stjörnur himins að fjölda til, af því að þú hlýddir eigi raustu Drottins Guðs þíns.

63 Og eins og Drottinn áður fyrri hafði yndi af því að gjöra vel við yður og margfalda yður, eins mun Drottinn hafa yndi af að tortíma yður og gjöreyða, og þér munuð verða reknir burt úr því landi, er þér haldið nú inn í til þess að taka það til eignar.

64 Og Drottinn mun dreifa þér meðal þjóðanna frá einu heimsskauti til annars, og þar munt þú þjóna öðrum guðum, sem hvorki þú né feður þínir hafa þekkt, stokkum og steinum.

65 Og meðal þessara þjóða munt þú eigi mega búa í næði, og hvergi mun hvíldarstaður vera á fæti þínum, heldur mun Drottinn gefa þér þar skjálfandi hjarta, þrotnandi augu og ráðþrota sál.

66 Líf þitt mun leika fyrir þér sem á þræði, og þú munt hræddur vera nótt og dag og aldrei vera ugglaus um líf þitt.

67 Á morgnana muntu segja: "Ó, að það væri komið kveld!" og á kveldin muntu segja: "Ó, að það væri kominn morgunn!" sökum hræðslu þeirrar, er gagntekið hefir hjarta þitt, og sökum þess, er þú verður að horfa upp á.

68 Drottinn mun flytja þig aftur til Egyptalands á skipum, þá leið, er ég sagði um við þig: "Þú skalt aldrei framar líta hana!" Og þar munuð þér boðnir verða óvinum yðar til kaups að þrælum og ambáttum, en enginn vilja kaupa.

29 Þessi eru orð sáttmálans, sem Drottinn bauð Móse að gjöra við Ísraelsmenn í Móabslandi, auk sáttmálans, sem hann gjörði við þá hjá Hóreb.

Postulasagan 7:17-29

17 Nú tók að nálgast sá tími, er rætast skyldi fyrirheitið, sem Guð hafði gefið Abraham. Fólkið hafði vaxið og margfaldast í Egyptalandi.

18 ,Þá hófst til ríkis þar annar konungur, er eigi vissi skyn á Jósef.`

19 Hann beitti kyn vort slægð og lék feður vora illa. Hann lét þá bera út ungbörn sín, til þess að þjóðin skyldi eigi lífi halda.

20 Um þessar mundir fæddist Móse og var forkunnar fríður. Þrjá mánuði var hann fóstraður í húsi föður síns.

21 En er hann var út borinn, tók dóttir Faraós hann og fóstraði sem sinn son.

22 Móse var fræddur í allri speki Egypta, og hann var máttugur í orðum sínum og verkum.

23 Þegar hann var fertugur að aldri, kom honum í hug að vitja bræðra sinna, Ísraelsmanna.

24 Hann sá einn þeirra verða fyrir ójöfnuði, og rétti hann hlut hans, hefndi þess, sem meingjörðina þoldi, og drap Egyptann.

25 Hann hugði, að bræður hans mundu skilja, að Guð ætlaði að nota hann til að bjarga þeim, en þeir skildu það ekki.

26 Næsta dag kom hann að tveim þeirra, sem slógust. Hann reyndi að stilla til friðar með þeim og sagði: ,Góðir menn, þið eruð bræður, hví eigist þið illt við?`

27 En sá sem beitti náunga sinn órétti, hratt honum frá sér og sagði: ,Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur?

28 Þú munt þó ekki vilja drepa mig, eins og þú drapst Egyptann í gær?`

29 Við þessi orð flýði Móse og settist að sem útlendingur í Midíanslandi. Þar gat hann tvo sonu.

Icelandic Bible (ICELAND)

by Icelandic Bible Society