Revised Common Lectionary (Complementary)
10 Ég sagði: Á hádegi ævi minnar stend ég við dauðans dyr. Það sem eftir er ára minna er ég ofurseldur hliðum Heljar.
11 Ég sagði: Ég fæ eigi framar að sjá Drottin á landi lifenda, ég fæ eigi framar menn að líta meðal þeirra sem heiminn byggja.
12 Bústað mínum er kippt upp og svipt burt frá mér eins og hjarðmannatjaldi. Ég hefi undið upp líf mitt eins og vefari. Hann sker mig frá uppistöðunni. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
13 Ég þreyði til morguns. Öll mín bein voru kramin eins og af ljónshrammi. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
14 Ég tísti sem svala og kurra sem dúfa. Augu mín mæna til himins. Drottinn, ég er í nauðum, líkna þú mér.
15 Hvað á ég að segja? Hann talaði til mín og efndi sín orð. Í auðmýkt vil ég ganga alla mína lífdaga, því minni sálarangist er létt.
16 Drottinn, af þessu lifa menn, og í öllu þessu er líf anda míns fólgið, þú gafst mér heilsuna aftur og lést mig lifna við.
17 Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl. Þú forðaðir lífi mínu frá gröf eyðingarinnar, því að þú varpaðir að baki þér öllum syndum mínum.
18 Hel vegsamar þig eigi, dauðinn lofar þig eigi. Þeir sem niður eru stignir í gröfina vona eigi á trúfesti þína.
19 En sá einn lofar þig, sem lifir, eins og ég í dag. Feður kunngjöra börnum sínum trúfesti þína.
20 Drottinn er mitt hjálpræði. Í húsi Drottins skulum vér því hreyfa strengina alla vora lífdaga.
9 Þá fóru Filistar upp eftir og settu herbúðir sínar í Júda og dreifðu sér um Lekí.
10 Og Júdamenn sögðu: "Hví hafið þér farið í móti oss?" En þeir svöruðu: "Vér erum hingað komnir til þess að binda Samson, svo að vér megum með hann fara sem hann hefir farið með oss."
11 Þá fóru þrjú þúsund manns frá Júda ofan til Etamklettaskoru og sögðu við Samson: "Veist þú ekki, að Filistar drottna yfir oss? Hví hefir þú þá gjört oss þetta?" Hann svaraði þeim: "Eins og þeir fóru með mig, svo hefi ég farið með þá."
12 Þeir sögðu við hann: "Vér erum hingað komnir til að binda þig, svo að vér getum selt þig í hendur Filista." Þá sagði Samson við þá: "Vinnið mér eið að því, að þér sjálfir skulið ekki drepa mig."
13 Þeir svöruðu honum: "Nei, vér munum aðeins binda þig og selja þig í hendur þeirra _ en drepa þig munum vér ekki." Og þeir bundu hann með tveimur reipum nýjum og fóru með hann burt frá klettinum.
14 En er Samson kom til Lekí, fóru Filistar með ópi miklu í móti honum. Þá kom andi Drottins yfir hann, og urðu reipin, sem voru um armleggi hans, sem þræðir í eldi brunnir, og hrukku fjötrarnir sundur af höndum hans.
15 Og hann fann nýjan asnakjálka, rétti út höndina og tók hann og laust með honum þúsund manns.
16 Þá sagði Samson: "Með asnakjálka hefi ég gjörsamlega flegið þá, með asnakjálka hefi ég banað þúsund manns!"
17 Og er hann hafði mælt þetta, varpaði hann kjálkanum úr hendi sér, og var þessi staður upp frá því nefndur Ramat Lekí.
18 En Samson var mjög þyrstur og hrópaði því til Drottins og mælti: "Þú hefir veitt þennan mikla sigur fyrir hönd þjóns þíns, en nú hlýt ég að deyja af þorsta og falla í hendur óumskorinna manna!"
19 Þá klauf Guð holuna, sem var í Lekí, svo að vatn rann fram úr henni. En er hann hafði drukkið, kom andi hans aftur og hann lifnaði við. Fyrir því var hún nefnd Hrópandans lind. Hún er í Lekí fram á þennan dag.
20 En Samson var dómari í Ísrael um daga Filista í tuttugu ár.
14 Þegar þeir komu til fólksins, gekk til hans maður, féll á kné fyrir honum
15 og sagði: "Herra, miskunna þú syni mínum. Hann er tunglsjúkur og illa haldinn. Oft fellur hann á eld og oft í vatn.
16 Ég fór með hann til lærisveina þinna, en þeir gátu ekki læknað hann."
17 Jesús svaraði: "Ó, þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður? Hversu lengi á ég að umbera yður? Færið hann hingað til mín."
18 Og Jesús hastaði á hann og illi andinn fór úr honum. Og sveinninn varð heill frá þeirri stundu.
19 Þá komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann einslega: "Hvers vegna gátum vér ekki rekið hann út?"
20 Hann svaraði þeim: "Vegna þess að yður skortir trú. Sannlega segi ég yður: Ef þér hafið trú eins og mustarðskorn, getið þér sagt við fjall þetta: Flyt þig héðan og þangað, og það mun flytja sig. Ekkert verður yður um megn. [
21 En þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn og föstu.]"
by Icelandic Bible Society