Revised Common Lectionary (Complementary)
9 Til söngstjórans. Almút labben. Davíðssálmur.
2 Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum.
3 Ég vil gleðjast og kætast yfir þér, lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti.
4 Óvinir mínir hörfuðu undan, hrösuðu og fórust fyrir augliti þínu.
5 Já, þú hefir látið mig ná rétti mínum og flutt mál mitt, setst í hásætið sem réttlátur dómari.
6 Þú hefir hastað á þjóðirnar, tortímt hinum óguðlegu, afmáð nafn þeirra um aldur og ævi.
7 Óvinirnir eru liðnir undir lok _ rústir að eilífu _ og borgirnar hefir þú brotið, minning þeirra er horfin.
8 En Drottinn ríkir að eilífu, hann hefir reist hásæti sitt til dóms.
9 Hann dæmir heiminn með réttvísi, heldur réttlátan dóm yfir þjóðunum.
10 Og Drottinn er vígi orðinn hinum kúguðu, vígi á neyðartímum.
11 Þeir er þekkja nafn þitt, treysta þér, því að þú, Drottinn, yfirgefur eigi þá, er þín leita.
12 Lofsyngið Drottni, þeim er býr á Síon, gjörið stórvirki hans kunn meðal þjóðanna.
13 Því að hann sem blóðs hefnir hefir minnst þeirra, hann hefir eigi gleymt hrópi hinna hrjáðu:
14 "Líkna mér, Drottinn, sjá þú eymd mína, er hatursmenn mínir baka mér, þú sem lyftir mér upp frá hliðum dauðans,
16 Þá svaraði Job og sagði:
2 Ég hefi heyrt nóg af slíku, hvimleiðir huggarar eruð þér allir saman.
3 Er orðavindurinn nú á enda? eða hvað knýr þig til andsvara?
4 Ég gæti líka talað eins og þér, ef þér væruð í mínum sporum, gæti spunnið saman ræður gegn yður og hrist yfir yður höfuðið,
5 ég gæti styrkt yður með munni mínum, og meðaumkun vara minna mundi lina þjáning yðar.
6 Þótt ég tali, þá linar ekki kvöl mína, og gjöri ég það ekki, hvaða létti fæ ég þá?
7 Miklu fremur hefir Guð nú örþreytt mig, _ þú hefir eytt öllu ættliði mínu,
8 hefir hremmt mig, og það er vitni í móti mér. Sjúkdómur minn rís í gegn mér, ákærir mig upp í opið geðið.
9 Reiði hans slítur mig sundur og ofsækir mig, hann nístir tönnum í móti mér, andstæðingur minn hvessir á mig augun.
10 Þeir glenna upp ginið í móti mér, löðrunga mig til háðungar, allir saman gjöra þeir samtök í móti mér.
11 Guð gefur mig á vald ranglátra og varpar mér í hendur óguðlegra.
12 Ég lifði áhyggjulaus, þá braut hann mig sundur, hann þreif í hnakkann á mér og molaði mig sundur og reisti mig upp sér að skotspæni.
13 Skeyti hans fljúga kringum mig, vægðarlaust sker hann sundur nýru mín, hellir galli mínu á jörðu.
14 Hann brýtur í mig skarð á skarð ofan og gjörir áhlaup á mig eins og hetja.
15 Ég hefi saumað sekk um hörund mitt og stungið horni mínu ofan í moldina.
16 Andlit mitt er þrútið af gráti, og svartamyrkur hvílir yfir hvörmum mínum,
17 þótt ekkert ranglæti sé í hendi minni og bæn mín sé hrein.
18 Jörð, hyl þú eigi blóð mitt, og kvein mitt finni engan hvíldarstað!
19 En sjá, á himnum er vottur minn og vitni mitt á hæðum.
20 Vinir mínir gjöra gys að mér _ til Guðs lítur auga mitt grátandi,
21 að hann láti manninn ná rétti sínum gagnvart Guði og skeri úr milli mannsins og vinar hans.
45 Hver er sá trúi og hyggni þjónn, sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín að gefa þeim mat á réttum tíma?
46 Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur.
47 Sannlega segi ég yður: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.
48 En ef illur þjónn segir í hjarta sínu: ,Húsbónda mínum dvelst,`
49 og hann tekur að berja samþjóna sína og eta og drekka með svöllurum,
50 þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi, sem hann væntir ekki, á þeirri stundu, sem hann veit ekki,
51 höggva hann og láta hann fá hlut með hræsnurum. Þar verður grátur og gnístran tanna.
by Icelandic Bible Society