Revised Common Lectionary (Complementary)
33 Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna, að ég megi halda þau allt til enda.
34 Veit mér skyn, að ég megi halda lögmál þitt og varðveita það af öllu hjarta.
35 Leið mig götu boða þinna, því að af henni hefi ég yndi.
36 Beyg hjarta mitt að reglum þínum, en eigi að ranglátum ávinningi.
37 Snú augum mínum frá því að horfa á hégóma, lífga mig á vegum þínum.
38 Staðfest fyrirheit þitt fyrir þjóni þínum, sem gefið er þeim er þig óttast.
39 Nem burt háðungina, sem ég er hræddur við, því að ákvæði þín eru góð.
40 Sjá, ég þrái fyrirmæli þín, lífga mig með réttlæti þínu.
10 Sonur ísraelskrar konu gekk út meðal Ísraelsmanna, en faðir hans var egypskur. Lenti þá sonur ísraelsku konunnar í deilu við ísraelskan mann í herbúðunum.
11 Og sonur ísraelsku konunnar lastmælti nafninu og formælti. Þeir leiddu hann fyrir Móse. En móðir hans hét Selómít Díbrísdóttir, af ættkvísl Dans.
12 Og þeir settu hann í varðhald, til þess að þeim kæmi úrskurður fyrir munn Drottins.
13 Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
14 "Leið þú lastmælandann út fyrir herbúðirnar, og allir þeir, er heyrt hafa, skulu leggja hendur sínar á höfuð honum, og því næst skal allur söfnuðurinn grýta hann.
15 Og þú skalt tala við Ísraelsmenn og segja: ,Hver sá, er formælir Guði sínum, bakar sér synd.
16 Og sá er lastmælir nafni Drottins, skal líflátinn verða. Allur söfnuðurinn skal vægðarlaust grýta hann. Hvort heldur er útlendur maður eða innborinn, lastmæli hann nafninu, skal hann líflátinn.
17 Og ljósti einhver mann til bana, skal hann líflátinn verða.
18 Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, líf fyrir líf.
19 Og veiti maður náunga sínum áverka, þá skal honum gjört hið sama, sem hann hefir gjört:
20 Beinbrot fyrir beinbrot, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hinn sami áverki, er hann hefir veitt öðrum, skal honum veittur.
21 Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, en sá, er lýstur mann til bana, skal líflátinn.
22 Þér skuluð hafa ein lög, hvort heldur útlendur maður eða innborinn á í hlut, því að ég er Drottinn, Guð yðar."`
23 Og Móse talaði við Ísraelsmenn, og þeir leiddu lastmælandann út fyrir herbúðirnar og lömdu hann grjóti. Og Ísraelsmenn gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
7 Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmdir.
2 Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða.
3 Hví sér þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu?
4 Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: ,Lát mig draga flísina úr auga þér?` Og þó er bjálki í auga sjálfs þín.
5 Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér, og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns.
6 Gefið ekki hundum það sem heilagt er, og kastið eigi perlum yðar fyrir svín. Þau mundu troða þær undir fótum, og þeir snúa sér við og rífa yður í sig.
7 Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.
8 Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða.
9 Eða hver er sá maður meðal yðar, sem gefur syni sínum stein, er hann biður um brauð?
10 Eða höggorm, þegar hann biður um fisk?
11 Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann?
12 Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þetta er lögmálið og spámennirnir.
by Icelandic Bible Society