Revised Common Lectionary (Semicontinuous)
45 Til söngstjórans. Lag: Liljur. Kóraítamaskíl. Brúðkaupskvæði.
2 Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum, ég flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans.
6 Örvar þínar eru hvesstar, þjóðir falla að fótum þér, fjandmenn konungs eru horfnir.
7 Hásæti þitt er Guðs hásæti um aldur og ævi, sproti ríkis þíns er réttlætis-sproti.
8 Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, fyrir því hefir Guð, þinn Guð, smurt þig með fagnaðarolíu framar félögum þínum.
9 Myrra og alóe og kassía eru öll þín klæði, frá fílabeinshöllinni gleður strengleikurinn þig.
3 Drottinn sagði við mig: "Far enn og elska konu, sem elskar annan mann og haft hefir fram hjá, eins og Drottinn elskar Ísraelsmenn, þótt þeir hneigist að öðrum guðum og þyki rúsínukökur góðar."
2 Þá keypti ég mér hana fyrir fimmtán sikla silfurs og hálfan annan kómer byggs
3 og sagði við hana: "Langan tíma skalt þú sitja ein án þess að drýgja hór og án þess að heyra nokkrum manni til. Svo skal ég og vera gagnvart þér."
4 Þannig munu Ísraelsmenn langan tíma sitja einir án konungs og án höfðingja, án fórnar og án merkissteins, án hökuls og húsguða.
5 Eftir það munu Ísraelsmenn snúa sér og leita Drottins, Guðs síns, og Davíðs, konungs síns, og þeir munu á hinum síðustu dögum flýja til Drottins og til hans blessunar.
by Icelandic Bible Society