Revised Common Lectionary (Semicontinuous)
133 Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er, þegar bræður búa saman,
2 eins og hin ilmgóða olía á höfðinu, er rennur niður í skeggið, skegg Arons, er fellur niður á kyrtilfald hans,
3 eins og dögg af Hermonfjalli, er fellur niður á Síonfjöll. Því að þar hefir Drottinn boðið út blessun, lífi að eilífu.
42 Er Jakob frétti, að korn var til í Egyptalandi, þá sagði hann við sonu sína: "Hví horfið þér hver á annan?"
2 Og hann mælti: "Ég hefi sannfrétt, að korn sé til í Egyptalandi. Farið þangað og kaupið oss þar korn, að vér megum lífi halda og deyjum ekki."
3 Þá lögðu tíu bræður Jósefs af stað til að kaupa korn í Egyptalandi.
4 En Benjamín, bróður Jósefs, lét Jakob ekki fara með bræðrum hans, því að hann var hræddur um, að honum kynni að vilja eitthvert slys til.
5 Og synir Ísraels komu að kaupa korn meðal annarra, sem komu, því að hungur var í Kanaanlandi.
6 En Jósef var stjórnari landsins, hann var sá, sem seldi öllum landslýðnum korn. Og bræður Jósefs komu og lutu honum og hneigðu sig til jarðar.
7 Og er Jósef sá bræður sína, þekkti hann þá, en vék ókunnuglega að þeim og talaði harðlega til þeirra og mælti við þá: "Hvaðan komið þér?" Þeir svöruðu: "Frá Kanaanlandi, til að kaupa vistir."
8 Jósef þekkti bræður sína, en þeir þekktu hann ekki.
9 Og Jósef minntist draumanna, sem hann hafði dreymt um þá, og sagði við þá: "Þér eruð njósnarmenn, þér eruð komnir til þess að sjá, hvar landið er varnarlaust fyrir."
10 En þeir svöruðu honum: "Eigi er svo, herra minn, heldur eru þjónar þínir komnir til að kaupa vistir.
11 Vér erum allir synir sama manns, vér erum hrekklausir menn, þjónar þínir eru ekki njósnarmenn."
12 En hann sagði við þá: "Eigi er svo, heldur eruð þér komnir til þess að sjá, hvar landið er varnarlaust fyrir."
13 Þeir svöruðu: "Vér þjónar þínir erum tólf bræður, synir sama manns í Kanaanlandi. Og sjá, hinn yngsti er nú hjá föður vorum, og einn er eigi framar á lífi."
14 Og Jósef sagði við þá: "Svo er sem ég sagði við yður: Þér eruð njósnarmenn.
15 Með þessu skuluð þér reyndir verða: Svo sannarlega sem Faraó lifir, skuluð þér ekki héðan fara, nema yngsti bróðir yðar komi hingað.
16 Sendið einn yðar til að sækja bróður yðar, en þér hinir skuluð vera í varðhaldi, svo að orð yðar verði reynd, hvort þér talið satt. En sé eigi svo, þá eruð þér njósnarmenn, svo sannarlega sem Faraó lifir."
17 Síðan lét hann hafa þá alla í haldi í þrjá daga.
18 En á þriðja degi sagði Jósef við þá: "Þetta skuluð þér gjöra, að þér megið lífi halda, því að ég óttast Guð.
19 Ef þér eruð hrekklausir, þá verði einn af yður bræðrum eftir í böndum í dýflissunni, þar sem þér voruð, en farið þér hinir og flytjið heim korn til bjargar þurfandi heimilum yðar.
20 Komið svo til mín með yngsta bróður yðar, þá munu orð yðar reynast sönn og þér eigi lífi týna." Og þeir gjörðu svo.
21 Þá sögðu þeir hver við annan: "Sannlega erum vér í sök fallnir fyrir bróður vorn, því að vér sáum sálarangist hans, þegar hann bað oss vægðar, en vér daufheyrðumst við. Þess vegna erum vér komnir í þessar nauðir."
22 Rúben svaraði þeim og mælti: "Sagði ég ekki við yður: ,Syndgist ekki á sveininum,` en þér daufheyrðust við. Og sjá, nú er einnig blóðs hans krafist."
23 En þeir vissu ekki, að Jósef skildi þá, því að þeir höfðu túlk.
24 Þá vék Jósef frá þeim og grét. Síðan sneri hann til þeirra aftur og talaði við þá og tók Símeon úr flokki þeirra og batt hann fyrir augum þeirra.
25 Síðan bauð hann að fylla sekki þeirra korni og láta silfurpeninga hvers eins þeirra aftur í sekk hans og fá þeim nesti til ferðarinnar. Og var svo gjört við þá.
26 Þá létu þeir korn sitt upp á asna sína og fóru af stað.
27 En er einn af þeim opnaði sekk sinn til að gefa asna sínum fóður á gistingarstaðnum, sá hann silfurpeninga sína, og sjá, þeir lágu ofan á í sekk hans.
28 Og hann sagði við bræður sína: "Silfurpeningar mínir eru komnir aftur, sjá, þeir liggja hér í sekk mínum." Þá féllst þeim hugur, og skjálfandi litu þeir hver á annan og sögðu: "Hví hefir Guð gjört oss þetta?"
34 Þegar þeir höfðu náð yfir um, komu þeir að landi við Genesaret.
35 Fólkið á þeim stað þekkti hann og sendi boð um allt nágrennið, og menn færðu til hans alla þá, er sjúkir voru.
36 Þeir báðu hann að mega rétt snerta fald klæða hans, og allir, sem snertu hann, urðu alheilir.
by Icelandic Bible Society