Revised Common Lectionary (Complementary)
123 Til þín hef ég augu mín, þú sem situr á himnum.
2 Eins og augu þjónanna mæna á hönd húsbónda síns, eins og augu ambáttarinnar mæna á hönd húsmóður sinnar, svo mæna augu vor á Drottin, Guð vorn, uns hann líknar oss.
3 Líkna oss, Drottinn, líkna oss, því að vér höfum fengið meira en nóg af spotti.
4 Sál vor hefir fengið meira en nóg af háði hrokafullra, af spotti dramblátra.
21 Þá svaraði Job og sagði:
17 Hversu oft slokknar þá á lampa hinna óguðlegu, og hversu oft kemur ógæfa þeirra yfir þá? Hversu oft deilir Guð þeim hlutskiptum í reiði sinni?
18 Hversu oft verða þeir sem strá fyrir vindi og sem sáðir, er stormurinn feykir burt?
19 "Guð geymir börnum hans óhamingju hans." Endurgjaldi hann honum sjálfum, svo að hann fái að kenna á því!
20 Sjái augu sjálfs hans glötun hans, og drekki hann sjálfur af reiði hins Almáttka!
21 Því að hvað hirðir hann um hús sitt eftir dauðann, þegar tala mánaða hans er fullnuð?
22 Ætla menn að kenna Guði visku eða dæma hinn hæsta?
23 Einn deyr í mestu velgengni, fullkomlega áhyggjulaus og ánægður,
24 trog hans eru full af mjólk, og mergurinn í beinum hans er safamikill.
25 Og annar deyr með beiskju í huga og hefir aldrei notið hamingjunnar.
26 Þeir hvíla báðir í duftinu, og maðkarnir hylja þá.
27 Sjá, ég þekki hugsanir yðar og fyrirætlanir, að beita mig ofbeldi.
28 Þegar þér segið: "Hvar er hús harðstjórans og hvar er tjaldið, sem hinir óguðlegu bjuggu í?"
29 hafið þér þá ekki spurt vegfarendur, _ og sönnunum þeirra munuð þér ekki hafna _
30 að á degi glötunarinnar er hinum vonda þyrmt, á reiðinnar degi er þeim skotið undan.
31 Hver setur honum breytni hans fyrir sjónir? Og þegar hann gjörir eitthvað, hver endurgeldur honum?
32 Og til grafar er hann borinn og vakað er yfir legstaðnum.
33 Moldarhnausar dalsins liggja mjúklega ofan á honum, og eftir honum flykkjast allir menn, eins og óteljandi eru á undan honum farnir.
34 Og hvernig megið þér þá hugga mig með hégóma, og andsvör yðar _ sviksemin ein er eftir!
1 Öldungurinn heilsar hinni útvöldu frú og börnum hennar, sem ég elska í sannleika. Og ekki ég einn, heldur einnig allir, sem þekkja sannleikann.
2 Vér gjörum það sakir sannleikans, sem er stöðugur í oss og mun vera hjá oss til eilífðar.
3 Náð, miskunn og friður frá Guði föður og frá Jesú Kristi, syni föðurins, mun vera með oss í sannleika og kærleika.
4 Það hefur glatt mig mjög, að ég hef fundið nokkur af börnum þínum, er ganga fram í sannleika, samkvæmt því boðorði, sem vér tókum við af föðurnum.
5 Og nú bið ég þig, frú mín góð, og er þá ekki að skrifa þér nýtt boðorð, heldur það, er vér höfðum frá upphafi: Vér skulum elska hver annan.
6 Og í þessu birtist elskan, að vér lifum eftir boðorðum hans. Þetta er boðorðið, eins og þér heyrðuð það frá upphafi, til þess að þér skylduð lifa í því.
7 Því að margir afvegaleiðendur eru farnir út í heiminn, sem ekki játa, að Jesús sé Kristur, kominn í holdi. Þetta er afvegaleiðandinn og andkristurinn.
8 Hafið gætur á sjálfum yður að þér missið ekki það, sem vér höfum áunnið, heldur megið fá full laun.
9 Sérhver sem fer of langt og er ekki stöðugur í kenningu Krists, hefur ekki Guð. Sá sem er stöðugur í kenningunni, hann hefur bæði föðurinn og soninn.
10 Ef einhver kemur til yðar og er ekki með þessa kenningu, þá takið hann ekki á heimili yðar og biðjið hann ekki vera velkominn.
11 Því að sá, sem biður hann vera velkominn, verður hluttakandi í hans vondu verkum.
12 Þótt ég hafi margt að rita yður, vildi ég ekki gjöra það með pappír og bleki, en ég vona að koma til yðar og tala munnlega við yður, til þess að gleði vor verði fullkomin.
by Icelandic Bible Society