Revised Common Lectionary (Complementary)
12 Til söngstjórans. Á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.
2 Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.
3 Lygi tala þeir hver við annan, með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir.
4 Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum er tala drambsamleg orð,
5 þeim er segja: "Með tungunni munum vér sigra, varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?"
6 "Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku vil ég nú rísa upp," segir Drottinn. "Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana."
7 Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.
8 Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur.
9 Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna.
10 Sál hins óguðlega girnist illt, náungi hans finnur enga miskunn hjá honum.
11 Sé spottaranum refsað, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vitur maður fræddur, lærir hann hyggindi.
12 Gætur gefur réttlátur að húsi hins óguðlega, steypir óguðlegum í ógæfu.
13 Sá sem byrgir eyrun fyrir kveini hins fátæka, hann mun sjálfur kalla og eigi fá bænheyrslu.
14 Gjöf á laun sefar reiði og múta í barmi ákafa heift.
15 Réttlátum manni er gleði að gjöra það, sem rétt er, en illgjörðamönnum er það skelfing.
16 Sá maður, sem villist af vegi skynseminnar, mun brátt hvílast í söfnuði framliðinna.
45 Í áheyrn alls lýðsins sagði hann við lærisveina sína:
46 "Varist fræðimennina, sem fýsir að ganga í síðskikkjum og er ljúft að láta heilsa sér á torgum, vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum.
47 Þeir eta upp heimili ekkna og flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm."
21 Þá leit hann upp og sá auðmenn leggja gjafir sínar í fjárhirsluna.
2 Hann sá og ekkju eina fátæka leggja þar tvo smápeninga.
3 Þá sagði hann: "Ég segi yður með sanni, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir.
4 Hinir allir lögðu í sjóðinn af allsnægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum, alla björg sína."
by Icelandic Bible Society