Print Page Options
Previous Prev Day Next DayNext

Revised Common Lectionary (Complementary)

Daily Bible readings that follow the church liturgical year, with thematically matched Old and New Testament readings.
Duration: 1245 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Version
Sálmarnir 36

36 Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins.

Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans.

Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.

Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.

Í hvílu sinni hyggur hann á tál, hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.

Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.

Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.

Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.

Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.

10 Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.

11 Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.

12 Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt.

13 Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.

Fyrsta bók Móse 45:1-15

45 Jósef gat þá ekki lengur haft stjórn á sér í augsýn allra, sem viðstaddir voru, og kallaði: "Látið alla ganga út frá mér!" Og enginn maður var inni hjá honum, þegar hann sagði bræðrum sínum hver hann væri.

Og hann grét hástöfum, svo að Egyptar heyrðu það, og hirðmenn Faraós heyrðu það.

Jósef mælti við bræður sína: "Ég er Jósef. Er faðir minn enn á lífi?" En bræður hans gátu ekki svarað honum, svo hræddir urðu þeir við hann.

Og Jósef sagði við bræður sína: "Komið hingað til mín!" Og þeir gengu til hans. Hann mælti þá: "Ég er Jósef bróðir yðar, sem þér selduð til Egyptalands.

En látið það nú ekki fá yður hryggðar, og setjið það ekki fyrir yður, að þér hafið selt mig hingað, því að til lífs viðurhalds hefir Guð sent mig hingað á undan yður.

Því að nú hefir hallærið verið í landinu í tvö ár, og enn munu líða svo fimm ár, að hvorki verði plægt né uppskorið.

En Guð hefir sent mig hingað á undan yður til þess að halda við kyni yðar á jörðinni og sjá lífi yðar borgið, til mikils hjálpræðis.

Það er því ekki þér, sem hafið sent mig hingað, heldur Guð. Og hann hefir látið mig verða Faraó sem föður og herra alls húss hans og höfðingja yfir öllu Egyptalandi.

Hraðið yður nú og farið heim til föður míns og segið við hann: ,Svo segir Jósef sonur þinn: Guð hefir gjört mig að herra alls Egyptalands; kom þú til mín og tef eigi.

10 Og þú skalt búa í Gósenlandi og vera í nánd við mig, þú og synir þínir og sonasynir þínir og sauðfé þitt og nautgripir þínir og allt, sem þitt er.

11 En ég skal sjá þér þar fyrir viðurværi, _ því að enn verður hallæri í fimm ár _, svo að þú komist ekki í örbirgð, þú og þitt hús og allt, sem þitt er.`

12 Og nú sjá augu yðar, og augu Benjamíns bróður míns sjá, að ég með eigin munni tala við yður.

13 Og segið föður mínum frá allri vegsemd minni á Egyptalandi og frá öllu, sem þér hafið séð, og flýtið yður nú og komið hingað með föður minn."

14 Og hann féll um háls Benjamín bróður sínum og grét, og Benjamín grét um háls honum.

15 Og hann minntist við alla bræður sína, faðmaði þá og grét. Eftir það töluðu bræður hans við hann.

Postulasagan 7:9-16

Og ættfeðurnir öfunduðu Jósef og seldu hann til Egyptalands. En Guð var með honum,

10 frelsaði hann úr öllum þrengingum hans og veitti honum hylli og visku í augum Faraós, Egyptalandskonungs, svo að hann skipaði hann höfðingja yfir Egyptaland og yfir allt sitt hús.

11 Nú kom hallæri á öllu Egyptalandi og Kanaan og mikil þrenging, og feður vorir höfðu ekki lífsbjörg.

12 En er Jakob heyrði, að korn væri til á Egyptalandi, sendi hann feður vora þangað hið fyrra sinn.

13 Og í síðara skiptið gaf Jósef sig fram við bræður sína, og Faraó varð kunn ætt Jósefs.

14 En Jósef sendi eftir Jakobi föður sínum og öllu ættfólki sínu, sjötíu og fimm manns,

15 og Jakob fór suður til Egyptalands. Þar andaðist hann og feður vorir.

16 Þeir voru fluttir til Síkem og lagðir í grafreitinn, er Abraham hafði keypt fyrir silfur af sonum Hemors í Síkem.

Icelandic Bible (ICELAND)

by Icelandic Bible Society