Revised Common Lectionary (Complementary)
5 Til söngstjórans. Með hljóðpípu. Davíðssálmur.
2 Heyr orð mín, Drottinn, gef gaum að andvörpum mínum.
3 Hlýð þú á kveinstafi mína, konungur minn og Guð minn, því að til þín bið ég.
4 Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína, á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig, og ég bíð þín.
5 Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki, hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.
6 Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér, þú hatar alla er illt gjöra.
7 Þú tortímir þeim, sem lygar mæla, á blóðvörgum og svikurum hefir Drottinn andstyggð.
8 En ég fæ að ganga í hús þitt fyrir mikla miskunn þína, fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri í ótta frammi fyrir þér.
9 Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu sakir óvina minna, gjör sléttan veg þinn fyrir mér.
10 Einlægni er ekki til í munni þeirra, hjarta þeirra er glötunardjúp. Kok þeirra er opin gröf, með tungu sinni hræsna þeir.
11 Dæm þá seka, Guð, falli þeir sakir ráðagjörða sinna, hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra, því að þeir storka þér.
12 Allir kætast, er treysta þér, þeir fagna að eilífu, því að þú verndar þá. Þeir sem elska nafn þitt gleðjast yfir þér.
13 Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta, hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.
21 Sá sem er vitur í hjarta, verður hygginn kallaður, og sætleiki varanna eykur fræðslu.
22 Lífslind er hyggnin þeim, sem hana á, en ögun afglapanna er þeirra eigin flónska.
23 Hjarta spekingsins gjörir munn hans hygginn og eykur fræðsluna á vörum hans.
24 Vingjarnleg orð eru hunangsseimur, sæt fyrir sálina, lækning fyrir beinin.
25 Margur vegurinn virðist greiðfær, en endar þó á helslóðum.
26 Hungur erfiðismannsins erfiðar með honum, því að munnur hans rekur á eftir honum.
27 Varmennið grefur óheillagröf, og á vörum hans er sem brennandi eldur.
28 Vélráður maður kveikir illdeilur, og rógberinn veldur vinaskilnaði.
29 Ofbeldismaðurinn ginnir náunga sinn og leiðir hann á vondan veg.
30 Sá sem lokar augunum, upphugsar vélræði, sá sem kreistir saman varirnar, er albúinn til ills.
31 Gráar hærur eru heiðurskóróna, á vegi réttlætis öðlast menn hana.
32 Sá sem seinn er til reiði, er betri en kappi, og sá sem stjórnar geði sínu, er meiri en sá sem vinnur borgir.
33 Í skikkjufellingum eru teningarnir hristir, en Drottinn ræður, hvað upp kemur.
15 Nú komu til Jesú farísear og fræðimenn frá Jerúsalem og sögðu:
2 "Hvers vegna brjóta lærisveinar þínir erfikenning forfeðranna? Þeir taka ekki handlaugar, áður en þeir neyta matar."
3 Hann svaraði þeim: "Hvers vegna brjótið þér sjálfir boðorð Guðs sakir erfikenningar yðar?
4 Guð hefur sagt: ,Heiðra föður þinn og móður,` og: ,Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.`
5 En þér segið: Hver sem segir við föður sinn eða móður: ,Það sem þér hefði getað orðið til styrktar frá mér, er musterisfé,`
6 hann á ekki að heiðra föður sinn [eða móður]. Þér ógildið orð Guðs með erfikenning yðar.
7 Hræsnarar, sannspár var Jesaja um yður, er hann segir:
8 Lýður þessi heiðrar mig með vörunum, en hjarta þeirra er langt frá mér.
9 Til einskis dýrka þeir mig, er þeir kenna þá lærdóma, sem eru mannasetningar einar."
by Icelandic Bible Society