Revised Common Lectionary (Complementary)
96 Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd!
2 Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.
3 Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða.
4 Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar.
5 Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.
6 Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans.
7 Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða, tjáið Drottni vegsemd og vald.
8 Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans,
9 fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd!
10 Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi.
11 Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er,
12 foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðaróp,
13 fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.
3 Þegar Drottinn veitir þér hvíld af þrautum þínum og ónæði og af hinni hörðu ánauð, sem á þig var lögð,
4 þá muntu kyrja upp háðkvæði þetta um konunginn í Babýlon og segja: Hversu hljóður er harðstjórinn nú orðinn, hve hljótt í kvalastaðnum!
5 Drottinn hefir sundurbrotið staf hinna óguðlegu, sprota yfirdrottnaranna,
6 sem laust þjóðflokkana í bræði högg á högg ofan, og kúgaði þjóðirnar í reiði með vægðarlausri kúgan.
7 Öll jörðin nýtur nú hvíldar og friðar, fagnaðarópin kveða við.
8 Jafnvel kýprestrén gleðjast yfir þér og sedrustrén á Líbanon: "Fyrst þú ert lagstur lágt, mun enginn upp stíga til þess að fella oss."
9 Hjá Helju niðri er allt í uppnámi þín vegna til þess að taka á móti þér. Vegna þín rekur hún hina dauðu á fætur, alla foringja jarðarinnar. Af hásætum sínum lætur hún upp standa alla þjóðkonunga.
10 Þeir taka allir til máls og segja við þig: "Þú ert þá einnig orðinn máttvana sem vér, orðinn jafningi vor!
11 Ofmetnaðar-skrauti þínu er niður varpað til Heljar, hreimnum harpna þinna! Ormar eru breiddir undir þig, og ábreiðan þín eru maðkar."
14 Um þessar mundir spyr Heródes fjórðungsstjóri tíðindin af Jesú.
2 Og hann segir við sveina sína: "Þetta er Jóhannes skírari, hann er risinn frá dauðum, þess vegna eru kraftarnir að verki í honum."
3 En Heródes hafði látið taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar bróður síns,
4 því Jóhannes hafði sagt við hann: "Þú mátt ekki eiga hana."
5 Heródes vildi deyða hann, en óttaðist lýðinn, þar eð menn töldu hann vera spámann.
6 En á afmælisdegi Heródesar dansaði dóttir Heródíasar dans frammi fyrir gestunum og hreif Heródes svo,
7 að hann sór þess eið að veita henni hvað sem hún bæði um.
8 Að undirlagi móður sinnar segir hún: "Gef mér hér á fati höfuð Jóhannesar skírara."
9 Konungur varð hryggur við, en vegna eiðsins og gesta sinna bauð hann að veita henni þetta.
10 Hann sendi í fangelsið og lét hálshöggva Jóhannes þar.
11 Höfuð hans var borið inn á fati og fengið stúlkunni, en hún færði móður sinni.
12 Lærisveinar hans komu, tóku líkið og greftruðu, fóru síðan og sögðu Jesú.
by Icelandic Bible Society