Print Page Options
Previous Prev Day Next DayNext

Revised Common Lectionary (Complementary)

Daily Bible readings that follow the church liturgical year, with thematically matched Old and New Testament readings.
Duration: 1245 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Version
Sálmarnir 18:1-19

18 Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins, er flutti Drottni orð þessara ljóða, þá er Drottinn frelsaði hann af hendi allra óvina hans og af hendi Sáls.

Hann mælti: Ég elska þig, Drottinn, þú styrkur minn.

Drottinn, bjarg mitt og vígi og frelsari minn, Guð minn, hellubjarg mitt, þar sem ég leita hælis, skjöldur minn og horn hjálpræðis míns, háborg mín!

Lofaður sé Drottinn, hrópa ég, og ég frelsast frá óvinum mínum.

Brimöldur dauðans umkringdu mig, elfur glötunarinnar skelfdu mig,

snörur Heljar luktu um mig, möskvar dauðans féllu yfir mig.

Í angist minni kallaði ég á Drottin, og til Guðs míns hrópaði ég. Hann heyrði raust mína í helgidómi sínum, og óp mitt barst til eyrna honum.

Jörðin bifaðist og nötraði, undirstöður fjallanna skulfu, þær bifuðust, því að hann var reiður,

reykur gekk fram úr nösum hans og eyðandi eldur af munni hans, glóðir brunnu út frá honum.

10 Hann sveigði himininn og steig niður, og skýsorti var undir fótum hans.

11 Hann steig á bak kerúb og flaug af stað og sveif á vængjum vindarins.

12 Hann gjörði myrkur að skýli sínu, regnsorta og skýþykkni að fylgsni sínu allt um kring.

13 Frá ljómanum fyrir honum brutust hagl og eldglæringar gegnum ský hans.

14 Þá þrumaði Drottinn á himnum, og Hinn hæsti lét raust sína gjalla.

15 Hann skaut örvum sínum og tvístraði óvinum sínum, lét eldingar leiftra og hræddi þá.

16 Þá sá í mararbotn, og undirstöður jarðarinnar urðu berar fyrir ógnun þinni, Drottinn, fyrir andgustinum úr nösum þínum.

17 Hann seildist niður af hæðum og greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum.

18 Hann frelsaði mig frá hinum sterku óvinum mínum, frá fjandmönnum mínum, er voru mér yfirsterkari.

19 Þeir réðust á mig á mínum óheilladegi, en Drottinn var mín stoð.

Jobsbók 36:24-33

24 Minnstu þess, að þú vegsamir verk hans, það er mennirnir syngja um lofkvæði.

25 Allir menn horfa með fögnuði á það, dauðlegur maðurinn lítur það úr fjarska.

26 Já, Guð er mikill og vér þekkjum hann ekki, tala ára hans órannsakanleg.

27 Því að hann dregur upp vatnsdropana og lætur ýra úr þoku sinni,

28 regnið, sem skýin láta niður streyma, drjúpa yfir marga menn.

29 Og hver skilur útbreiðslu skýjanna og dunurnar í tjaldi hans?

30 Sjá, hann breiðir ljós sitt út kringum sig og hylur djúp hafsins.

31 Því að með því dæmir hann þjóðirnar, með því veitir hann fæðu í ríkum mæli.

32 Hendur sínar hylur hann ljósi og býður því út gegn fjandmanni sínum.

33 Þruma hans boðar komu hans, hans sem lætur reiði sína geisa gegn ranglætinu.

Jobsbók 37:14-24

14 Hlýð þú á þetta, Job, stattu kyrr og gef gaum að dásemdum Guðs.

15 Skilur þú, hvernig Guð felur þeim hlutverk þeirra og lætur leiftur skýja sinna skína?

16 Skilur þú, hvernig skýin svífa, dásemdir hans, sem fullkominn er að vísdómi,

17 þú, sem fötin hitna á, þá er jörðin mókir í sunnanmollu?

18 Þenur þú út með honum heiðhimininn, sem fastur er eins og steyptur spegill?

19 Kenn oss, hvað vér eigum að segja við hann! Vér megnum ekkert fram að færa fyrir myrkri.

20 Á að segja honum, að ég ætli að tala? Eða hefir nokkur sagt, að hann óski að verða gjöreyddur?

21 Og nú sjá menn að sönnu ekki ljósið, sem skín skært að skýjabaki, en vindurinn þýtur áfram og sópar skýjunum burt.

22 Gullið kemur úr norðri, um Guð lykur ógurlegur ljómi.

23 Vér náum eigi til hins Almáttka, til hans, sem er mikill að mætti. En réttinn og hið fulla réttlæti vanrækir hann ekki.

24 Fyrir því óttast mennirnir hann, en hann lítur ekki við neinum sjálfbirgingum.

Matteusarguðspjall 8:23-27

23 Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum.

24 Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf.

25 Þeir fara til, vekja hann og segja: "Herra, bjarga þú, vér förumst."

26 Hann sagði við þá: "Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?" Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn.

27 Mennirnir undruðust og sögðu: "Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum."

Icelandic Bible (ICELAND)

by Icelandic Bible Society