Print Page Options
Previous Prev Day Next DayNext

Revised Common Lectionary (Complementary)

Daily Bible readings that follow the church liturgical year, with thematically matched Old and New Testament readings.
Duration: 1245 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Version
Sálmarnir 92

92 Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti,

að kunngjöra miskunn þína að morgni og trúfesti þína um nætur

á tístrengjað hljóðfæri og hörpu með strengjaleik gígjunnar.

Þú hefir glatt mig, Drottinn, með dáð þinni, yfir handaverkum þínum fagna ég.

Hversu mikil eru verk þín, Drottinn, harla djúpar hugsanir þínar.

Fíflið eitt skilur eigi, og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta.

Þegar óguðlegir greru sem gras og allir illgjörðamennirnir blómguðust, þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu,

en þú sem ert á hæðum, ert til að eilífu, Drottinn.

Því sjá, óvinir þínir, Drottinn, því sjá, óvinir þínir farast, allir illgjörðamennirnir tvístrast.

10 En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn, mig hressir þú með ferskri olíu.

11 Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína, eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér.

12 Hinir réttlátu gróa sem pálminn, vaxa sem sedrustréð á Líbanon.

13 Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins, gróa í forgörðum Guðs vors.

14 Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt, þeir eru safamiklir og grænir.

15 Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur, klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.

Fimmta bók Móse 28:1-14

28 Ef þú hlýðir grandgæfilega raustu Drottins Guðs þíns, svo að þú varðveitir og heldur allar skipanir hans, þær er ég legg fyrir þig í dag, þá mun Drottinn Guð þinn hefja þig yfir allar þjóðir á jörðu,

og þá munu fram við þig koma og á þér rætast allar þessar blessanir, ef þú hlýðir raustu Drottins Guðs þíns:

Blessaður ert þú í borginni og blessaður ert þú á akrinum.

Blessaður er ávöxtur kviðar þíns og ávöxtur lands þíns og ávöxtur fénaðar þíns, viðkoma nautgripa þinna og burðir hjarðar þinnar.

Blessuð er karfa þín og deigtrog þitt.

Blessaður ert þú, þegar þú gengur inn, og blessaður ert þú, þegar þú gengur út.

Drottinn mun láta óvini þína bíða ósigur fyrir þér, þá er upp rísa í móti þér. Um einn veg munu þeir fara í móti þér, en um sjö vegu munu þeir flýja undan þér.

Drottinn láti blessun fylgja þér í forðabúrum þínum og í öllu, sem þú tekur þér fyrir hendur, og hann blessi þig í landinu, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.

Drottinn gjöri þig að lýð, sem heilagur er fyrir honum, eins og hann hefir svarið þér, ef þú varðveitir skipanir Drottins Guðs þíns og gengur á hans vegum.

10 Og allar þjóðir á jörðinni munu þá sjá, að þú hefir nefndur verið eftir nafni Drottins, og þær munu óttast þig.

11 Drottinn mun veita þér gnægð gæða í ávexti kviðar þíns og í ávexti fénaðar þíns og í ávexti lands þíns í landi því, sem Drottinn sór feðrum þínum að gefa þér.

12 Drottinn mun upp ljúka fyrir þér forðabúrinu sínu hinu góða, himninum, til þess að gefa landi þínu regn á réttum tíma og blessa öll verk handa þinna, og þú munt fé lána mörgum þjóðum, en sjálfur eigi þurfa að taka fé að láni.

13 Drottinn mun gjöra þig að höfði og eigi að hala, og þú skalt stöðugt stíga upp á við, en aldrei færast niður á við, ef þú hlýðir skipunum Drottins Guðs þíns, þeim er ég legg fyrir þig í dag, til þess að þú varðveitir þær og breytir eftir þeim,

14 og ef þú víkur ekki frá neinu boðorða þeirra, er ég legg fyrir yður í dag, hvorki til hægri né vinstri, til þess að elta aðra guði og þjóna þeim.

Bréf Páls til Efesusmanna 4:17-5:2

17 Þetta segi ég þá og vitna í nafni Drottins: Þér megið ekki framar hegða yður eins og heiðingjarnir hegða sér. Hugsun þeirra er allslaus,

18 skilningur þeirra blindaður og þeir eru fjarlægir lífi Guðs vegna vanþekkingarinnar, sem þeir lifa í, og síns harða hjarta.

19 Þeir eru tilfinningalausir og hafa ofurselt sig lostalífi, svo að þeir fremja alls konar siðleysi af græðgi.

20 En svo hafið þér ekki lært að þekkja Krist.

21 Því að ég veit, að þér hafið heyrt um hann og hafið verið um hann fræddir eins og sannleikurinn er í Jesú:

22 Þér eigið að hætta hinni fyrri breytni og afklæðast hinum gamla manni, sem er spilltur af tælandi girndum,

23 en endurnýjast í anda og hugsun og

24 íklæðast hinum nýja manni, sem skapaður er eftir Guði í réttlæti og heilagleika sannleikans.

25 Leggið nú af lygina og talið sannleika hver við sinn náunga, því að vér erum hver annars limir.

26 Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar.

27 Gefið djöflinum ekkert færi.

28 Hinn stelvísi hætti að stela, en leggi hart að sér og gjöri það sem gagnlegt er með höndum sínum, svo að hann hafi eitthvað að miðla þeim, sem þurfandi er.

29 Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni, heldur það eitt, sem er gott til uppbyggingar, þar sem þörf gjörist, til þess að það verði til góðs þeim, sem heyra.

30 Hryggið ekki Guðs heilaga anda, sem þér eruð innsiglaðir með til endurlausnardagsins.

31 Látið hvers konar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt yður og alla mannvonsku yfirleitt.

32 Verið góðviljaðir hver við annan, miskunnsamir, fúsir til að fyrirgefa hver öðrum, eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið yður.

Verðið því eftirbreytendur Guðs, svo sem elskuð börn hans.

Lifið í kærleika, eins og Kristur elskaði oss og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir oss svo sem fórnargjöf, Guði til þægilegs ilms.

Icelandic Bible (ICELAND)

by Icelandic Bible Society