Readings for Lent and Easter
11 En Heródes óvirti hann og spottaði ásamt hermönnum sínum, lagði yfir hann skínandi klæði og sendi hann aftur til Pílatusar.
12 Á þeim degi urðu þeir Heródes og Pílatus vinir, en áður var fjandskapur með þeim.
13 Pílatus kallaði nú saman æðstu prestana, höfðingjana og fólkið
14 og mælti við þá: "Þér hafið fært mér þennan mann og sagt hann leiða fólkið afvega. Nú hef ég yfirheyrt manninn í yðar viðurvist, en enga þá sök fundið hjá honum, er þér ákærið hann um.
15 Ekki heldur Heródes, því hann sendi hann aftur til vor. Ljóst er, að hann hefur ekkert það drýgt, er dauða sé vert.
16 Ætla ég því að hirta hann og láta lausan." [
17 En skylt var honum að gefa þeim lausan einn bandingja á hverri hátíð.]
18 En þeir æptu allir: "Burt með hann, gef oss Barabbas lausan!"
19 En honum hafði verið varpað í fangelsi fyrir upphlaup nokkurt, sem varð í borginni, og manndráp.
20 Pílatus talaði enn til þeirra og vildi láta Jesú lausan.
21 En þeir æptu á móti: "Krossfestu, krossfestu hann!"
22 Í þriðja sinn sagði Pílatus við þá: "Hvað illt hefur þá þessi maður gjört? Enga dauðasök hef ég fundið hjá honum. Ætla ég því að hirta hann og láta hann lausan."
23 En þeir sóttu á með ópi miklu og heimtuðu, að hann yrði krossfestur. Og hróp þeirra tóku yfir.
24 Þá ákvað Pílatus, að kröfu þeirra skyldi fullnægt.
25 Hann gaf lausan þann, er þeir báðu um og varpað hafði verið í fangelsi fyrir upphlaup og manndráp, en Jesú framseldi hann, að þeir færu með hann sem þeir vildu.
by Icelandic Bible Society