New Testament in a Year
7 Þá er hann hafði lokið máli sínu í áheyrn lýðsins, fór hann til Kapernaum.
2 Hundraðshöfðingi nokkur hafði þjón, sem hann mat mikils. Þjónninn var sjúkur og dauðvona.
3 Þegar hundraðshöfðinginn heyrði um Jesú, sendi hann til hans öldunga Gyðinga og bað hann koma og bjarga lífi þjóns síns.
4 Þeir komu til Jesú, báðu hann ákaft og sögðu: "Verður er hann þess, að þú veitir honum þetta,
5 því að hann elskar þjóð vora, og hann hefur reist samkunduna handa oss."
6 Jesús fór með þeim. Þegar hann átti skammt til hússins, sendi hundraðshöfðinginn vini sína til hans og lét segja við hann: "Ómaka þig ekki, herra, því að ég er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt.
7 Þess vegna hef ég ekki heldur talið sjálfan mig verðan þess að koma til þín. En mæl þú eitt orð, og mun sveinn minn heill verða.
8 Því að sjálfur er ég maður, sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum, og ég segi við einn: ,Far þú,` og hann fer, og við annan: ,Kom þú,` og hann kemur, og við þjón minn: ,Gjör þetta,` og hann gjörir það."
9 Þegar Jesús heyrði þetta, furðaði hann sig á honum, sneri sér að mannfjöldanum, sem fylgdi honum, og mælti: "Ég segi yður, ekki einu sinni í Ísrael hef ég fundið þvílíka trú."
10 Sendimenn sneru þá aftur heim og fundu þjóninn heilan heilsu.
11 Skömmu síðar bar svo við, að Jesús hélt til borgar, sem heitir Nain, og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi.
12 Þegar hann nálgaðist borgarhliðið, þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar, sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni.
13 Og er Drottinn sá hana, kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana: "Grát þú eigi!"
14 Og hann gekk að og snart líkbörurnar, en þeir, sem báru, námu staðar. Þá sagði hann: "Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!"
15 Hinn látni settist þá upp og tók að mæla, og Jesús gaf hann móður hans.
16 En ótti greip alla, og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: "Spámaður mikill er risinn upp meðal vor," og "Guð hefur vitjað lýðs síns."
17 Og þessi fregn um hann barst út um alla Júdeu og allt nágrennið.
18 Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Hann kallaði þá til sín tvo lærisveina sína,
19 sendi þá til Drottins og lét spyrja: "Ert þú sá sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?"
20 Mennirnir fóru til hans og sögðu: "Jóhannes skírari sendi okkur til þín og spyr: ,Ert þú sá sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?"`
21 Á þeirri stundu læknaði hann marga af sjúkdómum, meinum og illum öndum og gaf mörgum blindum sýn.
22 Og hann svaraði þeim: "Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þið hafið séð og heyrt: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi.
23 Og sæll er sá, sem hneykslast ekki á mér."
24 Þá er sendimenn Jóhannesar voru burt farnir, tók hann að tala til mannfjöldans um Jóhannes: "Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn?
25 Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, í konungssölum er þá að finna, sem skartklæðin bera og lifa í sællífi.
26 Hvað fóruð þér þá að sjá? Spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann.
27 Hann er sá sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér.
28 Ég segi yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes. En hinn minnsti í Guðs ríki er honum meiri."
29 Og allur lýðurinn, sem á hlýddi, og enda tollheimtumenn, viðurkenndu réttlæti Guðs og létu skírast af Jóhannesi.
30 En farísear og lögvitringar gjörðu að engu áform Guðs um þá og létu ekki skírast af honum.
by Icelandic Bible Society