Print Page Options
Previous Prev Day Next DayNext

M’Cheyne Bible Reading Plan

The classic M'Cheyne plan--read the Old Testament, New Testament, and Psalms or Gospels every day.
Duration: 365 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Version
Fyrri bók konunganna 13

13 Og sjá, þegar Jeróbóam stóð fyrir altarinu til þess að færa þar reykelsisfórn, kom guðsmaður nokkur frá Júda til Betel að boði Drottins

og æpti gegn altarinu að boði Drottins og mælti: "Altari, altari! Svo segir Drottinn: Sonur mun fæðast húsi Davíðs, Jósía að nafni. Hann mun á þér slátra hæðaprestunum, þeim er færa reykelsisfórnir á þér, og mannabeinum mun á þér brennt verða."

Og hann boðaði tákn þann dag og mælti: "Þetta er tákn þess, að Drottinn hafi talað: Sjá, altarið mun rifna og askan, sem á því er, steypast niður."

Þegar konungur heyrði orð guðsmannsins, þau er hann æpti gegn altarinu í Betel, þá bandaði Jeróbóam með hendinni frá altarinu og mælti: "Takið hann höndum!" Þá visnaði hönd hans, er hann hafði bandað með móti honum, og hann gat ekki dregið hana að sér aftur.

En altarið rifnaði og askan steyptist niður af altarinu, samkvæmt tákninu, er guðsmaðurinn hafði boðað eftir skipun Drottins.

Þá tók konungur til máls og mælti við guðsmanninn: "Blíðka þú Drottin, Guð þinn, og bið fyrir mér, svo að ég geti aftur dregið höndina að mér." Þá blíðkaði guðsmaðurinn Drottin, svo að konungur gat aftur dregið að sér höndina, og varð hún jafngóð.

Því næst mælti konungur við guðsmanninn: "Kom þú heim með mér og hress þig, og mun ég gefa þér gjöf nokkra."

En guðsmaðurinn mælti við konung: "Þótt þú gæfir mér hálfa aleigu þína, þá mundi ég samt eigi með þér fara, og eigi mundi ég matar neyta og eigi vatn drekka á þessum stað.

Því að svo hefir mér boðið verið fyrir orð Drottins, er var á þessa leið: ,Þú skalt eigi matar neyta né vatn drekka, og þú skalt eigi snúa aftur sömu leiðina sem þú komst."`

10 Síðan fór hann burt aðra leið og sneri eigi aftur sömu leiðina sem hann hafði farið til Betel.

11 Í Betel bjó gamall spámaður. Og synir hans komu og sögðu honum frá öllu því, sem guðsmaðurinn hafði gjört í Betel þennan dag, og orð þau, er hann hafði talað til konungs. Og er þeir sögðu föður sínum frá þessu,

12 mælti faðir þeirra til þeirra: "Hvaða leið fór hann?" Og synir hans sýndu honum, hvaða leið guðsmaðurinn, sem kominn var frá Júda, hefði farið.

13 Og hann sagði við sonu sína: "Söðlið mér asnann." Og þeir söðluðu asnann fyrir hann og hann steig á bak,

14 hélt á eftir guðsmanninum og fann hann, þar sem hann sat undir eik nokkurri. Hann mælti til hans: "Ert þú guðsmaðurinn, sem kom frá Júda?" Hinn svaraði: "Er ég víst."

15 Þá sagði gamli spámaðurinn við hann: "Kom þú heim með mér og neyt matar."

16 Hinn mælti: "Ég get eigi snúið við með þér né með þér farið, mun og hvorki matar neyta né vatn drekka á þessum stað.

17 Því að við mig hefir verið sagt fyrir orð Drottins: ,Þú skalt hvorki neyta þar matar né vatn drekka, þú skalt ekki snúa aftur sömu leiðina sem þú komst."`

18 Gamli spámaðurinn sagði þá við hann: "Ég er einnig spámaður, eins og þú, og engill hefir talað við mig eftir orði Drottins á þessa leið: ,Far þú með hann aftur heim til þín, að hann megi matar neyta og vatn drekka."` En hann laug að honum.

19 Sneri hann þá við með honum og neytti matar í húsi hans og drakk vatn.

20 En er þeir sátu undir borðum, kom orð Drottins til spámannsins, er snúið hafði hinum aftur.

21 Og hann kallaði til guðsmannsins, er kominn var frá Júda, og mælti: "Svo segir Drottinn: Sökum þess að þú óhlýðnaðist skipun Drottins og varðveittir eigi boð það, er Drottinn, Guð þinn, fyrir þig lagði,

22 heldur snerir við og neyttir matar og drakkst vatn á þeim stað, er hann sagði um við þig: ,Þú skalt þar eigi matar neyta né vatn drekka` _ þá skal lík þitt eigi koma í gröf feðra þinna."

23 En er gamli spámaðurinn hafði etið og drukkið, lét hann söðla asnann fyrir spámanninn, er hann hafði snúið aftur.

24 Hélt hann nú af stað, en ljón mætti honum á leiðinni og drap hann. Og lík hans lá þar endilangt á veginum, og asninn stóð yfir því, og ljónið stóð yfir líkinu.

25 Og er menn fóru þar fram hjá, sáu þeir líkið liggja endilangt á veginum og ljónið standandi yfir líkinu. Þá komu þeir og sögðu frá því í borginni, þar sem gamli spámaðurinn átti heima.

26 Og er spámaðurinn, er snúið hafði hinum aftur, heyrði þetta, mælti hann: "Það er guðsmaðurinn, sem óhlýðnaðist skipun Drottins. Fyrir því hefir Drottinn gefið hann ljóninu. Það hefir mulið hann sundur og drepið hann eftir orði Drottins, er hann hafði til hans talað."

27 Þá mælti hann til sona sinna: "Söðlið mér asnann." Þeir gjörðu svo.

28 Síðan hélt hann af stað og fann lík hans liggjandi endilangt á veginum, og asnann og ljónið standandi yfir líkinu. En ljónið hafði hvorki etið líkið né mulið sundur asnann.

29 Þá tók spámaðurinn upp lík guðsmannsins, lagði það á asnann og flutti það til borgarinnar til þess að harma hann og jarða.

30 Og hann lagði lík hans í gröf sína, og menn hörmuðu hann, segjandi: "Æ, bróðir minn!"

31 En er hann hafði jarðað hann, sagði hann við sonu sína: "Þegar ég dey, þá jarðið mig í þeirri gröf, sem guðsmaðurinn er jarðaður í. Leggið mín bein hjá hans beinum.

32 Því að orðin, sem hann að boði Drottins æpti gegn altarinu í Betel og gegn öllum hæðahofunum í borgum Samaríu, munu vissulega rætast."

33 Ekki sneri Jeróbóam sér eftir þennan atburð frá sínum vonda vegi, heldur gjörði að nýju óvalda menn að hæðaprestum. Hann vígði hvern sem vildi, og varð sá hinn sami þannig hæðaprestur.

34 En þetta varð húsi Jeróbóams til syndar og til þess að uppræta það og afmá af jörðinni.

Bréf Páls til Filippímann 4

Þess vegna, mínir elskuðu og þráðu bræður, gleði mín og kóróna, standið þá stöðugir í Drottni, þér elskuðu.

Evodíu áminni ég og Sýntýke áminni ég um að vera samlyndar vegna Drottins.

Já, ég bið einnig þig, trúlyndi samþjónn, hjálpa þú þeim, því að þær börðust með mér við boðun fagnaðarerindisins, ásamt Klemens og öðrum samverkamönnum mínum, og standa nöfn þeirra í lífsins bók.

Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir.

Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd.

Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.

Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.

Að endingu, bræður, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dyggð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það.

Þetta, sem þér hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín, það skuluð þér gjöra. Og Guð friðarins mun vera með yður.

10 Ég varð mjög glaður í Drottni yfir því, að hagur yðar hefur loks batnað svo aftur, að þér gátuð hugsað til mín. Að sönnu hafið þér hugsað til mín, en gátuð ekki sýnt það.

11 Ekki segi ég þetta vegna þess, að ég hafi liðið skort, því að ég hef lært að láta mér nægja það, sem fyrir hendi er.

12 Ég kann að búa við lítinn kost, ég kann einnig að hafa allsnægtir. Ég er fullreyndur orðinn í öllum hlutum, að vera mettur og hungraður, að hafa allsnægtir og líða skort.

13 Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.

14 Engu að síður gjörðuð þér vel í því, að taka þátt með mér í þrengingu minni.

15 Þér vitið og, Filippímenn, að þegar ég í upphafi boðaði yður fagnaðarerindið og var farinn burt úr Makedóníu, hafði enginn söfnuður nema þér einir reikning hjá mér yfir gefið og þegið.

16 Meira að segja, þegar ég var í Þessaloníku, senduð þér mér oftar en einu sinni til nauðsynja minna.

17 Ekki að mér væri svo umhugað um gjöfina sem um ábata þann, sem ríkulega rennur í yðar reikning.

18 En nú hef ég fengið allt og hef meira en nóg síðan ég af hendi Epafrodítusar tók við sendingunni frá yður, þægilegum ilm, þekkri fórn, Guði velþóknanlegri.

19 En Guð minn mun af auðlegð dýrðar sinnar í Kristi Jesú uppfylla sérhverja þörf yðar.

20 Guði og föður vorum sé dýrðin um aldir alda. Amen.

21 Heilsið öllum heilögum í Kristi Jesú.

22 Bræðurnir, sem hjá mér eru, biðja að heilsa yður. Allir hinir heilögu biðja að heilsa yður, en einkanlega þeir, sem eru í þjónustu keisarans.

Esekíel 43

43 Þá leiddi hann mig að hliðinu, sem vissi til austurs,

og sjá, þá kom dýrð Ísraels Guðs úr austri, og var að heyra sem nið mikilla vatna, og landið var uppljómað af dýrð hans.

Og sú sýn, sem ég sá, var eins og sýnin, er ég sá, þá er hann kom til þess að eyða borgina, og sem sýnin, er ég sá við Kebarfljótið. Og ég féll fram á ásjónu mína.

Og dýrð Drottins fór nú inn í musterið um hliðið, sem til austurs vissi.

Kraftur andans hóf mig upp og færði mig inn í innri forgarðinn, og sjá, musterið var fullt af dýrð Drottins.

Og ég heyrði einhvern tala til mín úr musterinu, og stóð þó maðurinn enn hjá mér,

og hann sagði við mig: "Mannsson, þetta er staður hásætis míns og þetta er skör fóta minna, hér vil ég búa meðal Ísraelsmanna að eilífu. Og Ísraelsmenn skulu eigi framar flekka mitt heilaga nafn, hvorki þeir né konungar þeirra, með hórdómi sínum og líkum konunga sinna,

með því að þeir settu þröskuld sinn hjá mínum þröskuldi og dyrastafi sína hjá mínum dyrastaf, svo að ekki var nema veggurinn milli mín og þeirra. Og þannig flekkuðu þeir mitt heilaga nafn með svívirðingum sínum, þeim er þeir frömdu, svo að ég tortímdi þeim í reiði minni.

Nú munu þeir láta hórdóm sinn og lík konunga sinna vera langt í burtu frá mér, og ég mun búa meðal þeirra að eilífu.

10 En þú, mannsson, lýs þú musterinu fyrir Ísraelsmönnum, til þess að þeir blygðist sín fyrir misgjörðir sínar.

11 Og þegar þeir blygðast sín fyrir allt það, sem þeir hafa framið, þá skalt þú draga upp musterið og skipulag þess, útgangana úr því og inngangana í það og alla lögun þess og kunngjöra þeim allar tilskipanir og lagafyrirmæli um það, og skrifa þú það upp fyrir augum þeirra, til þess að þeir athugi alla lögun þess og öll ákvæði um það og fari eftir þeim.

12 Þetta er ákvæðið um musterið: Efst uppi á fjallinu skal allt svæði þess hringinn í kring teljast háheilagt. Sjá, þetta er ákvæðið um musterið."

13 Þetta er mál altarisins að álnatali, alinin talin ein alin og þverhönd: Umgjörðin niður við jörðina skal vera álnar há og álnar breið og brúnin út á röndinni hringinn í kring spannarbreið. Og þetta er hæð altarisins:

14 Frá umgjörðinni niður við jörðina upp að neðri stallinum tvær álnir og breiddin ein alin, og frá minni stallinum upp á meiri stallinn fjórar álnir og breiddin ein alin.

15 Og eldstæðið var fjórar álnir, og upp af eldstæðinu gengu hornin fjögur.

16 Og eldstæðið var tólf álna langt og tólf álna breitt, ferhyrningur með fjórum jöfnum hliðum.

17 Og meiri stallurinn var fjórtán álna langur og fjórtán álna breiður á hliðarnar fjórar, og brúnin í kringum hann hálf alin og umgjörðin um hann ein alin hringinn í kring. En þrepin upp að altarinu vissu í austur.

18 Og hann sagði við mig: "Mannsson, svo segir Drottinn Guð: Þetta eru ákvæðin um altarið þann dag, er það er albúið, svo að á því verði fórnað brennifórn og blóði stökkt á það.

19 Þá skalt þú fá ungan uxa til syndafórnar levítaprestunum, sem eru af ætt Sadóks og mega nálgast mig, _ segir Drottinn Guð _ til þess að þjóna mér.

20 Þú skalt taka nokkuð af blóði hans og ríða því á fjögur horn altarisins, og á fjórar hyrningar stallanna og á umgjörðina hringinn í kring og syndhreinsa það og friðþægja fyrir það.

21 Síðan skalt þú taka syndafórnaruxann og láta brenna hann hjá varðhúsi musterisins fyrir utan helgidóminn.

22 Annan daginn skalt þú færa gallalausan geithafur í syndafórn, til þess að altarið verði syndhreinsað með honum, eins og það var syndhreinsað með uxanum.

23 Þegar þú hefir lokið syndhreinsuninni, skaltu leiða fram ungan uxa, gallalausan, og hrút af hjörðinni gallalausan.

24 Skalt þú leiða þá fram fyrir Drottin, og skulu prestarnir dreifa salti á þá og fórna þeim í brennifórn Drottni til handa.

25 Sjö daga samfleytt skalt þú daglega fórna hafri í syndafórn, og auk þess skal fórna ungum uxa og hrút af hjörðinni, báðum gallalausum.

26 Sjö daga skulu menn þiggja altarið í frið og hreinsa það og vígja það.

27 Og er þeir hafa fullnað dagana, þá skulu prestarnir áttunda daginn og þaðan í frá fórna á altarinu brennifórnum yðar og heillafórnum, og ég vil taka yður náðarsamlega, segir Drottinn Guð."

Sálmarnir 95-96

95 Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.

Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð fyrir honum.

Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum.

Í hans hendi eru jarðardjúpin, og fjallatindarnir heyra honum til.

Hans er hafið, hann hefir skapað það, og hendur hans mynduðu þurrlendið.

Komið, föllum fram og krjúpum niður, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum,

því að hann er vor Guð, og vér erum gæslulýður hans og hjörð sú, er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans!

Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba, eins og daginn við Massa í eyðimörkinni,

þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig, þótt þeir sæju verk mín.

10 Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, og ég sagði: "Þeir eru andlega villtur lýður og þekkja ekki vegu mína."

11 Þess vegna sór ég í reiði minni: "Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar."

96 Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni öll lönd!

Syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag.

Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða.

Því að mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur, óttalegur er hann öllum guðum framar.

Því að allir guðir þjóðanna eru falsguðir, en Drottinn hefir gjört himininn.

Heiður og vegsemd eru fyrir augliti hans, máttur og prýði í helgidómi hans.

Tjáið Drottni lof, þér kynkvíslir þjóða, tjáið Drottni vegsemd og vald.

Tjáið Drottni dýrð þá, er nafni hans hæfir, færið gjafir og komið til forgarða hans,

fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða, titrið fyrir honum, öll lönd!

10 Segið meðal þjóðanna: Drottinn er konungur orðinn! Hann hefir fest jörðina, svo að hún bifast ekki, hann dæmir þjóðirnar með réttvísi.

11 Himinninn gleðjist og jörðin fagni, hafið drynji og allt sem í því er,

12 foldin fagni og allt sem á henni er, öll tré skógarins kveði fagnaðaróp,

13 fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.

Icelandic Bible (ICELAND)

by Icelandic Bible Society