Print Page Options
Previous Prev Day Next DayNext

Book of Common Prayer

Daily Old and New Testament readings based on the Book of Common Prayer.
Duration: 861 days
Icelandic Bible (ICELAND)
Version
Sálmarnir 78

78 Asafs-maskíl. Hlýð þú, lýður minn, á kenning mína, hneigið eyrun að orðum munns míns.

Ég vil opna munn minn með orðskviði, mæla fram gátur frá fornum tíðum.

Það sem vér höfum heyrt og skilið og feður vorir sögðu oss,

það viljum vér eigi dylja fyrir niðjum þeirra, er vér segjum seinni kynslóð frá lofstír Drottins og mætti hans og dásemdarverkum og þeim undrum er hann gjörði.

Hann setti reglu í Jakob og skipaði lögmál í Ísrael, sem hann bauð feðrum vorum að kunngjöra sonum þeirra,

til þess að seinni kynslóð mætti skilja það og synir þeir er fæðast mundu, mættu ganga fram og segja sonum sínum frá því,

og setja traust sitt á Guð og eigi gleyma stórvirkjum Guðs, heldur varðveita boðorð hans,

og eigi verða sem feður þeirra, þrjósk og ódæl kynslóð, kynslóð með óstöðugu hjarta og anda sem var Guði ótrúr.

Niðjar Efraíms, herbúnir bogmenn, sneru við á orustudeginum.

10 Þeir héldu eigi sáttmála Guðs og færðust undan að fylgja lögmáli hans.

11 Þeir gleymdu stórvirkjum hans og dásemdum hans, er hann hafði látið þá horfa á.

12 Í augsýn feðra þeirra hafði hann framið furðuverk í Egyptalandi og Sóanhéraði.

13 Hann klauf hafið og lét þá fara yfir og lét vatnið standa sem vegg.

14 Hann leiddi þá með skýinu um daga og alla nóttina með eldskini.

15 Hann klauf björg í eyðimörkinni og gaf þeim gnóttir að drekka eins og úr stórvötnum,

16 hann lét læki spretta upp úr klettinum og vatnið streyma niður sem fljót.

17 Þó héldu þeir áfram að syndga í gegn honum, að rísa í gegn Hinum hæsta í eyðimörkinni.

18 Þeir freistuðu Guðs í hjörtum sínum, er þeir kröfðust matar þess er þeir girntust

19 og töluðu gegn Guði og sögðu: "Skyldi Guð geta búið borð í eyðimörkinni?

20 Víst sló hann á klettinn, svo að vatnið vall upp og lækir streymdu, en skyldi hann líka geta gefið brauð eða veitt lýð sínum kjöt?"

21 Fyrir því reiddist Drottinn, er hann heyrði þetta, eldur bálaði upp gegn Jakob og reiði steig upp gegn Ísrael,

22 af því að þeir trúðu eigi á Guð né treystu hjálp hans.

23 Og hann bauð skýjunum að ofan og opnaði hurðir himinsins,

24 lét manna rigna yfir þá til matar og gaf þeim himnakorn;

25 englabrauð fengu menn að eta, fæði sendi hann þeim til saðningar.

26 Hann lét austanvindinn taka sig upp í himninum og leiddi sunnanvindinn að með mætti sínum.

27 Hann lét kjöti rigna yfir þá sem dufti og vængjuðum fuglum sem sjávarsandi,

28 og hann lét þá falla niður í búðir sínar, umhverfis bústað sinn.

29 Átu þeir og urðu vel saddir, og græðgi þeirra sefaði hann.

30 En meðan þeir voru eigi horfnir frá græðgi sinni, meðan fæðan enn var í munni þeirra,

31 þá steig reiði Guðs upp í gegn þeim. Hann deyddi hina gildustu meðal þeirra og lagði að velli æskumenn Ísraels.

32 Þrátt fyrir allt þetta héldu þeir áfram að syndga og trúðu eigi á dásemdarverk hans.

33 Þá lét hann daga þeirra hverfa í hégóma og ár þeirra enda í skelfingu.

34 Þegar hann deyddi þá, leituðu þeir hans, sneru sér og spurðu eftir Guði

35 og minntust þess, að Guð var klettur þeirra og Guð hinn hæsti frelsari þeirra.

36 Þeir beittu við hann fagurgala með munni sínum og lugu að honum með tungum sínum.

37 En hjarta þeirra var eigi stöðugt gagnvart honum, og þeir voru eigi trúir sáttmála hans.

38 En hann er miskunnsamur, hann fyrirgefur misgjörðir og tortímir eigi, hann stillir reiði sína hvað eftir annað og hleypir eigi fram allri bræði sinni.

39 Hann minntist þess, að þeir voru hold, andgustur, sem líður burt og snýr eigi aftur.

40 Hversu oft þrjóskuðust þeir við hann í eyðimörkinni, hryggðu hann á öræfunum.

41 Og aftur freistuðu þeir Guðs og móðguðu Hinn heilaga í Ísrael.

42 Þeir minntust eigi handar hans, eður dags þess, er hann frelsaði þá frá fjandmönnum þeirra,

43 hann sem gjörði tákn sín í Egyptalandi og undur sín í Sóanhéraði.

44 Hann breytti ám þeirra í blóð og lækjum þeirra, svo að þeir fengu eigi drukkið.

45 Hann sendi flugur meðal þeirra, er bitu þá, og froska, er eyddu þeim.

46 Hann gaf engisprettunum afurðir þeirra og jarðvörgunum uppskeru þeirra.

47 Hann eyddi vínvið þeirra með haglhríð og mórberjatré þeirra með frosti.

48 Hann ofurseldi haglhríðinni fénað þeirra og eldingunni hjarðir þeirra.

49 Hann sendi heiftarreiði sína í gegn þeim, æði, bræði og nauðir, sveitir af sendiboðum ógæfunnar.

50 Hann ruddi braut reiði sinni, þyrmdi eigi sálum þeirra við dauðanum og ofurseldi drepsóttinni líf þeirra.

51 Hann laust alla frumburði í Egyptalandi, frumgróða styrkleikans í tjöldum Kams.

52 Hann lét lýð sinn leggja af stað sem sauði og leiddi þá eins og hjörð í eyðimörkinni.

53 Hann leiddi þá öruggt, svo að þeir óttuðust eigi, en óvini þeirra huldi hafið.

54 Hann fór með þá til síns helga héraðs, til fjalllendis þess, er hægri hönd hans hafði aflað.

55 Hann stökkti þjóðum undan þeim, skipti þeim niður eins og erfðahlut og lét kynkvíslir Ísraels setjast að í tjöldum þeirra.

56 En þeir freistuðu í þrjósku sinni Guðs hins hæsta og gættu eigi vitnisburða hans.

57 Þeir viku af leið, rufu trúnað sinn, eins og feður þeirra, brugðust eins og svikull bogi.

58 Þeir egndu hann til reiði með fórnarhæðum sínum, vöktu vandlæti hans með skurðgoðum sínum.

59 Guð heyrði það og reiddist og fékk mikla óbeit á Ísrael.

60 Hann hafnaði bústaðnum í Síló, tjaldi því, er hann hafði reist meðal mannanna,

61 hann ofurseldi hernáminu vegsemd sína og fjandmannshendi prýði sína.

62 Hann seldi lýð sinn undir sverðseggjar og reiddist arfleifð sinni.

63 Æskumönnum hans eyddi eldurinn og meyjar hans misstu brúðsöngs síns.

64 Prestar hans féllu fyrir sverðseggjum, og ekkjur hans fengu engan líksöng flutt.

65 Þá vaknaði Drottinn eins og af svefni, eins og hetja, sem hefir látið sigrast af víni.

66 Hann barði fjandmenn sína á bakhlutina, lét þá sæta eilífri háðung.

67 Samt hafnaði hann tjaldi Jósefs og útvaldi eigi kynkvísl Efraíms,

68 heldur útvaldi hann Júda kynkvísl, Síonfjall, sem hann elskar.

69 Hann reisti helgidóm sinn sem himinhæðir, grundvallaði hann að eilífu eins og jörðina.

70 Hann útvaldi þjón sinn Davíð og tók hann frá fjárbyrgjunum.

71 Hann sótti hann frá lambánum til þess að vera hirðir fyrir Jakob, lýð sinn, og fyrir Ísrael, arfleifð sína.

72 Og Davíð var hirðir fyrir þá af heilum hug og leiddi þá með hygginni hendi.

Dómarabókin 7:1-18

Nú tók Jerúbbaal, það er Gídeon, sig árla upp og allt liðið, er með honum var, og settu þeir herbúðir sínar hjá Haródlind, en herbúðir Midíans voru fyrir norðan hann, hinumegin við Mórehæð þar á sléttunni.

Drottinn sagði við Gídeon: "Liðið er of margt, sem með þér er, til þess að ég vilji gefa Midían í hendur þeirra, ella kynni Ísrael að hrokast upp gegn mér og segja: ,Mín eigin hönd hefir frelsað mig.`

Kalla því nú í eyru fólksins og seg: Hver sá, sem hræddur er og hugdeigur, snúi við og fari aftur frá Gíleaðfjalli." Þá sneru aftur tuttugu og tvær þúsundir af liðinu, en tíu þúsundir urðu eftir.

Þá sagði Drottinn við Gídeon: "Enn er liðið of margt. Leið þú þá ofan til vatnsins, og mun ég reyna þá þar fyrir þig. Sá sem ég þá segi um við þig: ,þessi skal með þér fara,` hann skal með þér fara, en hver sá, er ég segi um við þig: ,þessi skal ekki með þér fara,` hann skal ekki fara."

Leiddi Gídeon þá liðið niður til vatnsins. Og Drottinn sagði við Gídeon: "Öllum þeim, sem lepja vatnið með tungu sinni, eins og hundar gjöra, skalt þú skipa sér, og sömuleiðis öllum þeim, sem krjúpa á kné til þess að drekka úr lófa sínum, er þeir færa upp að munni sér."

En þeir, sem löptu vatnið, voru þrjú hundruð að tölu, en allt hitt liðið kraup á kné til þess að drekka vatnið.

Þá sagði Drottinn við Gídeon: "Með þeim þrem hundruðum manna, sem lapið hafa, mun ég frelsa yður og gefa Midían í hendur yðar, en allt hitt liðið skal fara, hver heim til sín."

Þá tóku þeir til sín veganesti liðsins og lúðra þeirra, en alla aðra Ísraelsmenn lét hann burt fara, hvern til síns heimkynnis, og hélt aðeins þrem hundruðum manna eftir. Og herbúðir Midíans voru fyrir neðan hann á sléttunni.

Hina sömu nótt sagði Drottinn við Gídeon: "Rís þú upp og far ofan í herbúðirnar, því að ég hefi gefið þær í þínar hendur.

10 En ef þú ert hræddur að fara ofan þangað, þá far þú með Púra, svein þinn, til herbúðanna,

11 og hlustaðu á, hvað þeir segja. Mun þá hugur þinn styrkjast svo, að þú fer ofan í herbúðirnar." Þá fór hann og Púra sveinn hans til ystu hermannanna, sem voru í herbúðunum.

12 Midíanítar, Amalekítar og allir austurbyggjar höfðu reist herbúðir á sléttunni, sem engisprettur að fjölda til, og úlfaldar þeirra voru óteljandi, sem sandur á sjávarströndu að fjölda til.

13 Þegar Gídeon kom þangað, var maður nokkur að segja félaga sínum draum með þessum orðum: "Sjá, mig dreymdi draum, og þótti mér byggbrauðskaka velta sér að herbúðum Midíans, og komst hún alla leið að tjaldinu og rakst á það, svo að það féll, og kollvelti því, svo að tjaldið lá flatt."

14 Þá svaraði hinn: "Þetta er ekkert annað en sverð Ísraelítans Gídeons Jóassonar. Guð hefir gefið Midían og allar herbúðirnar í hendur hans."

15 Er Gídeon hafði heyrt frásöguna um drauminn og ráðningu hans, féll hann fram og tilbað. Sneri hann síðan aftur til herbúða Ísraels og sagði: "Rísið upp, því að Drottinn hefir gefið herbúðir Midíans í yðar hendur."

16 Þá skipti hann þeim þrem hundruðum manna í þrjá flokka og fékk þeim öllum lúðra í hönd og tómar krúsir og blys í krúsunum.

17 Og hann sagði við þá: "Lítið á mig og gjörið sem ég. Þegar ég kem að útjaðri herbúðanna, þá gjörið eins og ég gjöri.

18 Þegar ég því þeyti lúðurinn og allir þeir, sem með mér eru, þá skuluð þér líka þeyta lúðrana kringum allar herbúðirnar og segja: ,Sverð Drottins og Gídeons!"`

Postulasagan 3:1-11

Pétur og Jóhannes gengu upp í helgidóminn til síðdegisbæna.

Þá var þangað borinn maður, lami frá móðurlífi, er dag hvern var settur við þær dyr helgidómsins, sem nefndar eru Fögrudyr, til að beiðast ölmusu hjá þeim, er inn gengu í helgidóminn.

Er hann sá þá Pétur og Jóhannes á leið inn í helgidóminn, baðst hann ölmusu.

Þeir horfðu fast á hann, og Pétur sagði: "Lít þú á okkur."

Hann starði á þá í von um að fá eitthvað hjá þeim.

Pétur sagði: "Silfur og gull á ég ekki, en það sem ég hef, það gef ég þér: Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk!"

Og hann tók í hægri hönd honum og reisti hann upp. Jafnskjótt urðu fætur hans og ökklar styrkir,

hann spratt upp, stóð í fætur og tók að ganga. Hann fór inn með þeim í helgidóminn, gekk um og stökk og lofaði Guð.

Allt fólkið sá hann ganga um og lofa Guð.

10 Þeir þekktu, að hann var sá er hafði setið fyrir Fögrudyrum helgidómsins til að beiðast ölmusu. Urðu þeir furðu lostnir og frá sér numdir af því, sem fram við hann hafði komið.

11 Hann hélt sér að Pétri og Jóhannesi, og þá flykktist allt fólkið furðu lostið til þeirra í súlnagöngin, sem kennd eru við Salómon.

Jóhannesarguðspjall 1:19-28

19 Þessi er vitnisburður Jóhannesar, þegar Gyðingar sendu til hans presta og levíta frá Jerúsalem að spyrja hann: "Hver ert þú?"

20 Hann svaraði ótvírætt og játaði: "Ekki er ég Kristur."

21 Þeir spurðu hann: "Hvað þá? Ertu Elía?" Hann svarar: "Ekki er ég hann." "Ertu spámaðurinn?" Hann kvað nei við.

22 Þá sögðu þeir við hann: "Hver ertu? Vér verðum að svara þeim, er sendu oss. Hvað segir þú um sjálfan þig?"

23 Hann sagði: "Ég er rödd hrópanda í eyðimörk: Gjörið beinan veg Drottins, eins og Jesaja spámaður segir."

24 Sendir voru menn af flokki farísea.

25 Þeir spurðu hann: "Hvers vegna skírir þú, fyrst þú ert hvorki Kristur, Elía né spámaðurinn?"

26 Jóhannes svaraði: "Ég skíri með vatni. Mitt á meðal yðar stendur sá, sem þér þekkið ekki,

27 hann, sem kemur eftir mig, og skóþveng hans er ég ekki verður að leysa."

28 Þetta bar við í Betaníu, handan Jórdanar, þar sem Jóhannes var að skíra.

Icelandic Bible (ICELAND)

by Icelandic Bible Society