Book of Common Prayer
95 Komið, fögnum fyrir Drottni, látum gleðióp gjalla fyrir kletti hjálpræðis vors.
2 Komum með lofsöng fyrir auglit hans, syngjum gleðiljóð fyrir honum.
3 Því að Drottinn er mikill Guð og mikill konungur yfir öllum guðum.
4 Í hans hendi eru jarðardjúpin, og fjallatindarnir heyra honum til.
5 Hans er hafið, hann hefir skapað það, og hendur hans mynduðu þurrlendið.
6 Komið, föllum fram og krjúpum niður, beygjum kné vor fyrir Drottni, skapara vorum,
7 því að hann er vor Guð, og vér erum gæslulýður hans og hjörð sú, er hann leiðir. Ó að þér í dag vilduð heyra raust hans!
8 Herðið eigi hjörtu yðar eins og hjá Meríba, eins og daginn við Massa í eyðimörkinni,
9 þegar feður yðar freistuðu mín, reyndu mig, þótt þeir sæju verk mín.
10 Í fjörutíu ár hafði ég viðbjóð á þessari kynslóð, og ég sagði: "Þeir eru andlega villtur lýður og þekkja ekki vegu mína."
11 Þess vegna sór ég í reiði minni: "Þeir skulu eigi ganga inn til hvíldar minnar."
69 Til söngstjórans. Liljulag. Davíðssálmur.
2 Hjálpa mér, ó Guð, því að vötnin ætla að drekkja mér.
3 Ég er sokkinn niður í botnlausa leðju og hefi enga fótfestu, ég er kominn ofan í vatnadjúp og bylgjurnar ganga yfir mig.
4 Ég hefi æpt mig þreyttan, er orðinn brennandi þurr í kverkunum, augu mín eru döpruð orðin af að þreyja eftir Guði mínum.
5 Fleiri en hárin á höfði mér eru þeir er hata mig að ástæðulausu, fleiri en bein mín þeir sem án saka eru óvinir mínir. Því sem ég hefi eigi rænt, hefi ég samt orðið að skila aftur.
6 Þú, Guð, þekkir heimsku mína, og sakir mínar dyljast þér eigi.
7 Lát eigi þá, er vona á þig, verða til skammar mín vegna, ó Drottinn, Drottinn hersveitanna, lát eigi þá er leita þín, verða til svívirðingar mín vegna, þú Guð Ísraels.
8 Þín vegna ber ég háðung, þín vegna hylur svívirðing auglit mitt.
9 Ég er ókunnur orðinn bræðrum mínum og óþekktur sonum móður minnar.
10 Vandlæting vegna húss þíns hefir uppetið mig, og smánanir þeirra er smána þig, hafa lent á mér.
11 Ég hefi þjáð mig með föstu, en það varð mér til háðungar.
12 Ég gjörði hærusekk að klæðnaði mínum, og ég varð þeim að orðskvið.
13 Þeir er sitja í hliðinu, ræða um mig, og þeir er drekka áfengan drykk, syngja um mig.
14 En ég bið til þín, Drottinn, á stund náðar þinnar. Svara mér, Guð, í trúfesti hjálpræðis þíns sakir mikillar miskunnar þinnar.
15 Drag mig upp úr leðjunni, svo að ég sökkvi eigi, lát mig björgun hljóta frá hatursmönnum mínum og úr hafdjúpinu.
16 Lát eigi vatnsbylgjurnar ganga yfir mig, né djúpið svelgja mig, og lát eigi brunninn lykja aftur op sitt yfir mér.
17 Bænheyr mig, Drottinn, sakir gæsku náðar þinnar, snú þér að mér eftir mikilleik miskunnar þinnar.
18 Hyl eigi auglit þitt fyrir þjóni þínum, því að ég er í nauðum staddur, flýt þér að bænheyra mig.
19 Nálgast sál mína, leys hana, frelsa mig sakir óvina minna.
20 Þú þekkir háðung mína og skömm og svívirðing, allir fjendur mínir standa þér fyrir sjónum.
21 Háðungin kremur hjarta mitt, svo að ég örvænti. Ég vonaði, að einhver mundi sýna meðaumkun, en þar var enginn, og að einhverjir mundu hugga, en fann engan.
22 Þeir fengu mér malurt til matar, og við þorstanum gáfu þeir mér vínsýru að drekka.
23 Svo verði þá borðið fyrir framan þá að snöru, og að gildru fyrir þá sem ugglausir eru.
24 Myrkvist augu þeirra, svo að þeir sjái eigi, og lát lendar þeirra ávallt riða.
25 Hell þú reiði þinni yfir þá og lát þína brennandi gremi ná þeim.
26 Búðir þeirra verði eyddar og enginn búi í tjöldum þeirra,
27 því að þann sem þú hefir lostið, ofsækja þeir og auka þjáningar þeirra er þú hefir gegnumstungið.
28 Bæt sök við sök þeirra og lát þá eigi ganga inn í réttlæti þitt.
29 Verði þeir afmáðir úr bók lifenda og eigi skráðir með réttlátum.
30 En ég er volaður og þjáður, hjálp þín, ó Guð, mun bjarga mér.
31 Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði og mikla það í lofsöng.
32 Það mun Drottni líka betur en uxar, ungneyti með hornum og klaufum.
33 Hinir auðmjúku sjá það og gleðjast, þér sem leitið Guðs _ hjörtu yðar lifni við.
34 Því að Drottinn hlustar á hina fátæku og fyrirlítur eigi bandingja sína.
35 Hann skulu lofa himinn og jörð, höfin og allt sem í þeim hrærist.
36 Því að Guð veitir Síon hjálp og reisir við borgirnar í Júda, og menn skulu búa þar og fá landið til eignar.
37 Niðjar þjóna hans munu erfa það, og þeir er elska nafn hans, byggja þar.
73 Asafs-sálmur. Vissulega er Guð góður við Ísrael, við þá sem hjartahreinir eru.
2 Nærri lá, að fætur mínir hrösuðu, lítið vantaði á, að ég skriðnaði í skrefi,
3 því að ég fylltist gremju út af hinum hrokafullu, þegar ég sá gengi hinna guðlausu.
4 Þeir hafa engar hörmungar að bera, líkami þeirra er heill og hraustur.
5 Þeim mætir engin mæða sem öðrum mönnum, og þeir verða eigi fyrir neinum áföllum eins og aðrir menn.
6 Fyrir því er hrokinn hálsfesti þeirra, þeir eru sveipaðir ofríki eins og yfirhöfn.
7 Frá mörhjarta kemur misgjörð þeirra, girndir þeirra ganga fram úr öllu hófi.
8 Þeir spotta og tala af illsku, mæla kúgunarorð í mikilmennsku sinni.
9 Með munni sínum snerta þeir himininn, en tunga þeirra er tíðförul um jörðina.
10 Fyrir því aðhyllist lýðurinn þá og teygar gnóttir vatns.
11 Þeir segja: "Hvernig ætti Guð að vita og Hinn hæsti að hafa nokkra þekkingu?"
12 Sjá, þessir menn eru guðlausir, og þó lifa þeir ætíð áhyggjulausir og auka efni sín.
13 Vissulega hefi ég til ónýtis haldið hjarta mínu hreinu og þvegið hendur mínar í sakleysi,
14 ég þjáist allan daginn, og á hverjum morgni bíður mín hirting.
15 Ef ég hefði haft í hyggju að tala þannig, sjá, þá hefði ég brugðið trúnaði við kyn barna þinna.
16 En ég hugsaði um, hvernig ég ætti að skilja það, það var erfitt í augum mínum,
17 uns ég kom inn í helgidóma Guðs og skildi afdrif þeirra:
18 Vissulega setur þú þá á sleipa jörð, þú lætur þá falla í rústir.
19 Sviplega verða þeir að auðn, líða undir lok, tortímdir af skelfingum.
20 Eins og draum er maður vaknar, þannig fyrirlítur þú, Drottinn, mynd þeirra, er þú ríst á fætur.
21 Þegar beiskja var í hjarta mínu og kvölin nísti hug minn,
22 þá var ég fáráðlingur og vissi ekkert, var sem skynlaus skepna gagnvart þér.
23 En ég er ætíð hjá þér, þú heldur í hægri hönd mína.
24 Þú munt leiða mig eftir ályktun þinni, og síðan munt þú taka við mér í dýrð.
25 Hvern á ég annars að á himnum? Og hafi ég þig, hirði ég eigi um neitt á jörðu.
26 Þótt hold mitt og hjarta tærist, er Guð bjarg hjarta míns og hlutskipti mitt um eilífð.
27 Því sjá, þeir sem fjarlægjast þig, farast, þú afmáir alla þá, sem eru þér ótrúir.
28 En mín gæði eru það að vera nálægt Guði, ég hefi gjört Drottin að athvarfi mínu og segi frá öllum verkum þínum.
43 Hallærið var mikið í landinu.
2 Og er þeir höfðu etið upp kornið, sem þeir höfðu sótt til Egyptalands, sagði faðir þeirra við þá: "Farið aftur og kaupið oss nokkuð af vistum."
3 Þá svaraði Júda honum og mælti: "Maðurinn lagði ríkt á við oss og sagði: ,Þér skuluð ekki sjá auglit mitt, nema bróðir yðar sé með yður.`
4 Ef þú sendir bróður vorn með oss, þá skulum vér fara og kaupa þér vistir.
5 En ef þú vilt ekki senda hann með, þá förum vér hvergi, því að maðurinn sagði við oss: ,Þér skuluð ekki sjá auglit mitt, nema bróðir yðar sé með yður."`
6 Ísrael mælti: "Hví hafið þér gjört mér svo illa til, að segja manninum, að þér ættuð einn bróður enn?"
7 Þeir svöruðu: "Maðurinn spurði ítarlega um oss og ætt vora og sagði: ,Er faðir yðar enn á lífi? Eigið þér einn bróður enn?` Og vér sögðum honum eins og var. Gátum vér vitað, að hann mundi segja:
8 ,Komið hingað með bróður yðar`?" Júda sagði við Ísrael föður sinn: "Láttu sveininn fara með mér. Þá skulum vér taka oss upp og fara af stað, svo að vér megum lífi halda og ekki deyja, bæði vér og þú og börn vor.
9 Ég skal ábyrgjast hann, af minni hendi skalt þú krefjast hans. Komi ég ekki með hann aftur til þín og leiði ég hann ekki fram fyrir þig, skal ég vera sekur við þig alla ævi.
10 Því að hefðum vér ekki tafið, þá værum vér nú komnir aftur í annað sinn."
11 Þá sagði Ísrael faðir þeirra við þá: "Ef svo verður að vera, þá gjörið þetta: Takið af gæðum landsins í sekki yðar og færið manninum að gjöf lítið eitt af balsami og lítið eitt af hunangi, reykelsi og myrru, pistasíuhnetur og möndlur.
12 Og takið með yður tvöfalt gjald og hafið aftur með yður silfurpeningana, sem komu aftur ofan á í sekkjum yðar. Vera má, að það hafi verið af vangá.
13 Og takið bróður yðar. Leggið því næst upp og farið aftur til mannsins.
14 Og Almáttugur Guð gefi, að maðurinn sýni yður nú miskunnsemi og láti lausan við yður hinn bróður yðar og Benjamín. Ég hefi hvort sem er þegar orðið fyrir sonamissi."
15 Og mennirnir tóku þessa gjöf; líka tóku þeir tvöfalt gjald með sér og Benjamín. Og þeir lögðu af stað og fóru til Egyptalands og gengu fyrir Jósef.
7 En svo að ég minnist á það, sem þér hafið ritað um, þá er það gott fyrir mann að snerta ekki konu.
2 En vegna saurlifnaðarins hafi hver og einn sína eiginkonu og hver og ein hafi sinn eiginmann.
3 Maðurinn gæti skyldu sinnar gagnvart konunni og sömuleiðis konan gagnvart manninum.
4 Ekki hefur konan vald yfir eigin líkama, heldur maðurinn. Sömuleiðis hefur og maðurinn ekki heldur vald yfir eigin líkama, heldur konan.
5 Haldið yður eigi hvort frá öðru, nema þá eftir samkomulagi um stundarsakir, til þess að þér getið haft næði til bænahalds, og takið svo saman aftur, til þess að Satan freisti yðar ekki vegna ístöðuleysis yðar.
6 Þetta segi ég í tilhliðrunarskyni, ekki sem skipun.
7 En þess óska ég, að allir menn væru eins og ég er sjálfur, en hver hefur sína náðargjöf frá Guði, einn þessa og annar hina.
8 Hinum ókvæntu og ekkjunum segi ég, að þeim er best að halda áfram að vera ein eins og ég.
9 En hafi þau ekki taumhald á sjálfum sér, þá gangi þau í hjónaband, því að betra er að ganga í hjónaband en að brenna af girnd.
35 Að kvöldi sama dags sagði hann við þá: "Förum yfir um!"
36 Þeir skildu þá við mannfjöldann og tóku hann með sér, þar sem hann var, í bátnum, en aðrir bátar voru með honum.
37 Þá brast á stormhrina mikil, og féllu öldurnar inn í bátinn, svo við lá, að hann fyllti.
38 Jesús var í skutnum og svaf á kodda. Þeir vöktu hann og sögðu við hann: "Meistari, hirðir þú ekki um, að vér förumst?"
39 Hann vaknaði, hastaði á vindinn og sagði við vatnið: "Þegi þú, haf hljótt um þig!" Þá lægði vindinn og gerði stillilogn.
40 Og hann sagði við þá: "Hví eruð þér hræddir, hafið þér enn enga trú?"
41 En þeir urðu miklum ótta lostnir og sögðu hver við annan: "Hver er þessi? Jafnvel vindur og vatn hlýða honum."
by Icelandic Bible Society