Add parallel Print Page Options

Spádómur um Níníve. Bókin um vitrun Nahúms Elkósíta.

Drottinn er vandlætissamur Guð og hefnari. Drottinn er hefnari og fullur gremi. Drottinn hefnir sín á mótstöðumönnum sínum og er langrækinn við óvini sína.

Drottinn er seinn til reiði og mikill að krafti, en óhegnt lætur hann ekki. Drottinn brunar áfram í fellibyljum og stormviðri, og skýin eru rykið undir fótum hans.

Hann hastar á sjóinn og þurrkar hann upp, og hann lætur öll fljót þorna. Þá fölnar Basan og Karmel, þá fölnar jurtagróðurinn á Líbanon.

Fjöllin skjálfa fyrir honum, og hálsarnir renna sundur. Jörðin gengur skykkjum fyrir honum, heimskringlan og allir sem á henni búa.

Hver fær staðist gremi hans og hver fær afborið hans brennandi reiði? Heift hans úthellist eins og eldur og björgin bresta sundur fyrir honum.

Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá sem treysta honum.

En með yfirgeisandi vatnsflóði mun hann gjörsamlega afmá Níníve, og myrkur mun ofsækja óvini hans.

Hvað bruggið þér gegn Drottni? Hann eyðir svo, að af tekur _ þrengingin mun ekki koma tvisvar.

10 Þótt þeir væru samflæktir sem þyrnar og votir sem vín þeirra, þá munu þeir upp brenndir verða sem skraufþurrir hálmleggir.

11 Frá þér, Níníve, út gekk sá, er hafði illt í huga gegn Drottni, sá er hafði skaðsemdar áform með höndum.

12 Svo segir Drottinn: Þótt þeir komi allir með tölu og afar fjölmennir, þá skulu þeir allt að einu afmáðir verða og farast. Hafi ég auðmýkt þig, Júda, þá mun ég ekki auðmýkja þig framar.

13 Og nú vil ég brjóta ok hans af þér og slíta bönd þín.

14 En um þig, Níníve, mun Drottinn skipa svo fyrir: Ekkert afkvæmi skal framar koma út af nafni þínu. Ég vil eyða skurðmyndunum og steyptu líkneskjunum úr hofi guðs þíns, ég vil búa þér gröf, því að þú ert léttvæg fundin.

Sjá á fjöllunum fætur fagnaðarboðans, þess er friðinn kunngjörir. Hald hátíðir þínar, Júda, gjald heit þín, því að eyðandinn skal ekki framar um hjá þér fara _ hann er með öllu afmáður.

Ófriðarmaðurinn fer í móti þér, Níníve: Gæt vígisins! Horf njósnaraugum út á veginn, styrk lendarnar, safna öllum styrkleika þínum,

því að Drottinn reisir aftur við tign Jakobs eins og tign Ísraels, því að ræningjar hafa rænt þá og skemmt gróðurkvistu þeirra.

Skildir kappa hans eru rauðlitaðir, hermennirnir klæddir skarlatsklæðum. Vagnarnir glóa af stáli þann dag, er hann útbýr þá, og lensunum verður sveiflað.

Vagnarnir geisa á strætunum, þeytast um torgin, þeir eru til að sjá sem blys, þeir þjóta áfram sem eldingar.

Konungurinn heitir þá á tignarmenn sína: Þeir hrasa á göngu sinni, þeir flýta sér að múrnum, en þegar er vígþak reist.

Hliðunum við fljótið er lokið upp og konungshöllin kemst í uppnám.

Og drottningin verður flett klæðum og flutt burt, og þernur hennar munu andvarpa, líkast því sem dúfur kurri, og berja sér á brjóst.

Níníve hefir verið sem vatnstjörn frá upphafi vega sinna. En þeir flýja. "Standið við, standið við!" _ en enginn lítur við.

10 Rænið silfri, rænið gulli! Því að hér er óþrjótandi forði, ógrynni af alls konar dýrum munum.

11 Auðn, gjörauðn og aleyðing, huglaus hjörtu, riðandi kné og skjálfti í öllum mjöðmum, og allra andlit blikna.

12 Hvar er nú bæli ljónanna, átthagar ungljónanna, þar sem ljónið gekk og ljónynjan og ljónshvolpurinn, án þess að nokkur styggði þau?

13 Ljónið reif sundur, þar til er hvolpar þess höfðu fengið nægju sína, og drap niður handa ljónynjum sínum, fyllti hella sína bráð og bæli sín ránsfeng.

14 Sjá, ég rís í gegn þér _ segir Drottinn allsherjar _ og læt vagna þína bálast upp í reyk, og sverðið skal eta ungljón þín. Og ég eyði herfangi þínu af jörðinni, og raust sendiboða þinna skal ekki framar heyrast.

Vei hinni blóðseku borg, sem öll er full af lygum og ofríki og aldrei hættir að ræna.

Heyr, svipusmellir! Heyr, hjólaskrölt! Hestar stökkva, vagnar þjóta!

Riddarar geisa fram! Blikandi sverð, leiftrandi spjót! Fjöldi valfallinna manna og aragrúi af líkum, mannabúkarnir eru óteljandi, þeir hrasa um búkana.

Vegna hins mikla lauslætis skækjunnar, hinnar fögru og fjölkunnugu, sem vélaði þjóðir með lauslæti sínu og kynstofna með töfrum sínum,

_ sjá, ég rís í gegn þér _ segir Drottinn allsherjar _ og ég vil bregða klæðafaldi þínum upp að framan og sýna þjóðunum nekt þína og konungsríkjunum blygðan þína.

Ég skal kasta á þig saur og svívirða þig og láta þig verða öðrum að varnaðarvíti,

svo að allir sem sjá þig, skulu flýja frá þér og segja: "Níníve er í eyði lögð! Hver mun aumka hana?" Hvar á ég að leita þeirra, sem vilji hugga þig?

Ert þú, Níníve, betri en Nó-Ammon, sem lá við Nílkvíslarnar, umkringd af vötnum, sem hafði fljót að varnarvirki, fljót að múrvegg?

Blálendingar voru styrkur hennar og óteljandi Egyptar, Pútmenn og Líbýumenn voru hjálparlið hennar.

10 Og þó varð hún að fara í útlegð, fara burt hernumin. Ungbörn hennar voru og rotuð til dauða á öllum strætamótum. Hlutum var kastað um hina göfugustu menn í borginni og öll stórmenni hennar voru fjötrum reyrð.

11 Einnig þú skalt drukkin verða og þér sortna fyrir augum, þú skalt og leita hælis fyrir óvinunum.

12 Öll varnarvirki þín eru sem fíkjutré með árfíkjum. Séu þau skekin, falla fíkjurnar þeim í munn, sem þær vill eta.

13 Sjá, hermenn þínir eru orðnir að konum _ landshliðum þínum hefir verið lokið upp fyrir óvinum þínum, eldur eyðir slagbröndum þínum.

14 Aus vatni til þess að hafa meðan á umsátinni stendur! Umbæt varnarvirki þín! Gakk út í deigulmóinn og troð leirinn, gríp til tiglmótanna!

15 Þar skal eldurinn eyða þér, sverðið uppræta þig. Hann skal eyða þér eins og engisprettur, og það þótt þér fjölgi eins og grasvörgum, þótt þér fjölgi eins og átvörgum.

16 Kaupmenn þínir eru fleiri en stjörnurnar á himninum, en grasvargarnir skipta hömum og fljúga burt.

17 Höfðingjar þínir eru eins og átvargar, herforingjar þínir eins og sægur af engisprettum, er liggja á akurgerðunum þegar kalt er. Þegar sólin kemur upp, fljúga þær burt, enginn veit hvað af þeim verður.

18 Hirðar þínir blunda, Assýríukonungur, tignarmenn þínir sofa. Menn þínir eru á víð og dreif um fjöllin, og enginn safnar þeim saman.

Spádómur, sem opinberaður var Habakkuk spámanni.

Hversu lengi hefi ég kallað, Drottinn, og þú heyrir ekki! Hversu lengi hefi ég hrópað til þín: "Ofríki!" og þú hjálpar ekki!

Hví lætur þú mig sjá rangindi, hví horfir þú upp á rangsleitni? Eyðing og ofríki standa fyrir augum mér. Af því koma þrætur, og deilur rísa upp.

Fyrir því verður lögmálið magnlaust og fyrir því kemur rétturinn aldrei fram. Hinir óguðlegu umkringja hina réttlátu, fyrir því kemur rétturinn fram rangsnúinn.

Lítið upp, þér hinir sviksömu, og litist um! Fallið í stafi og undrist! Því að ég framkvæmi verk á yðar dögum _ þér munduð ekki trúa því, ef sagt væri frá því.

Sjá, ég reisi upp Kaldea, hina harðgjöru og ofsafullu þjóð, sem fer um víða veröld til þess að leggja undir sig bústaði, sem hún á ekki.

Ægileg og hræðileg er hún, frá henni sjálfri út gengur réttur hennar og tign.

Hestar hennar eru frárri en pardusdýr og skjótari en úlfar að kveldi dags. Riddarar hennar þeysa áfram, riddarar hennar koma langt að. Þeir fljúga áfram eins og örn, sem hraðar sér að æti.

Allir koma þeir til þess að fremja ofbeldisverk, brjótast beint áfram og raka saman herteknum mönnum eins og sandi.

10 Þeir gjöra gys að konungum, og höfðingjar eru þeim að hlátri. Þeir hlæja að öllum virkjum, hrúga upp mold og vinna þau.

11 Þeir fá nýjan kraft og brjótast áfram og gjörast brotlegir, _ þeir sem trúa á mátt sinn og megin.

12 Ert þú, Drottinn, ekki Guð minn frá öndverðu, minn Heilagi, sem aldrei deyr? Drottinn, þú hefir falið þeim að framkvæma dóm. Bjargið mitt, þú hefir sett þá til að refsa.

13 Augu þín eru of hrein til þess að líta hið illa, og þú getur ekki horft upp á rangsleitni. Hví horfir þú á svikarana, hví þegir þú, þegar hinn óguðlegi uppsvelgir þann, sem honum er réttlátari?

14 Og þannig hefir þú látið mennina verða eins og fiska sjávarins, eins og skriðkvikindin, sem engan drottnara hafa.

15 Þeir draga þá alla upp á öngli sínum, hrífa þá í net sitt og safna þeim í vörpu sína. Fyrir því gleðjast þeir og fagna,

16 fyrir því færa þeir neti sínu sláturfórn og vörpu sinni reykelsisfórn. Því að þau afla þeim ríkulegs hlutskiptis og ríflegs matar.

17 Fyrir því bregða þeir sverði sínu án afláts til þess að drepa þjóðir vægðarlaust.

Ég ætla að nema staðar á varðbergi mínu og ganga út á virkisvegginn og skyggnast um til þess að sjá, hvað hann talar við mig og hverju hann svarar umkvartan minni.

Þá svaraði Drottinn mér og sagði: Skrifa þú vitrunina upp og letra svo skýrt á spjöldin, að lesa megi viðstöðulaust.

Því að enn hefir vitrunin sinn ákveðna tíma, en hún skundar að takmarkinu og bregst ekki. Þótt hún dragist, þá vænt hennar, því að hún mun vissulega fram koma og ekki undan líða.

Sjá, hann er hrokafullur og ber eigi í brjósti sér ráðvanda sál, en hinn réttláti mun lifa fyrir trúfesti sína.

Vei ræningjanum, manninum sem girnist og eigi verður saddur, sem glennir sundur gin sitt eins og Hel og er óseðjandi eins og dauðinn, sem safnaði til sín öllum þjóðum og dró að sér alla lýði.

Munu eigi allir þessir kveða um hann háðkvæði og níð, _ gátur um hann? Menn munu segja: Vei þeim, sem rakar saman annarra fé _ hversu lengi? _ og hleður á sig pantteknum munum.

Munu eigi lánsalar þínir skyndilega upp rísa og þeir vakna, er að þér munu þrengja? Þá munt þú verða herfang þeirra.

Því að eins og þú hefir rænt margar þjóðir, svo munu nú allar hinar þjóðirnar ræna þig fyrir manndrápin og fyrir ofríkið, sem landið hefir beitt verið, borgin og allir íbúar hennar.

Vei þeim, sem sækist eftir illum ávinningi fyrir hús sitt til þess að geta byggt hreiður sitt hátt uppi, til þess að geta bjargað sér undan hendi ógæfunnar.

10 Þú tókst upp það ráð, sem varð húsi þínu til smánar, að afmá margar þjóðir, og bakaðir sjálfum þér sekt.

11 Því að steinarnir munu hrópa út úr múrveggnum og sperrur úr grindinni svara þeim.

12 Vei þeim, sem reisir stað með manndrápum og grundvallar borg með glæpum.

13 Kemur slíkt ekki frá Drottni allsherjar? Þjóðir vinna fyrir eldinn, og þjóðflokkar þreyta sig fyrir ekki neitt!

14 Því að jörðin mun verða full af þekking á dýrð Drottins, eins og djúp sjávarins vötnum hulið.

15 Vei þeim, sem gefur vinum sínum að drekka úr skál heiftar sinnar og gjörir þá jafnvel drukkna til þess að sjá blygðan þeirra.

16 Þú hefir mettað þig á smán, en ekki á heiðri. Drekk þú nú einnig og reika! Bikarinn í hægri hendi Drottins kemur nú til þín og vansi ofan á vegsemd þína.

17 Því að ofríkið, sem haft hefir verið í frammi við Líbanon, skal á þér bitna og dýradrápið hræða þig _ fyrir manndrápin og fyrir ofríkið, sem landið hefir beitt verið, borgin og allir íbúar hennar.

18 Hvað gagnar skurðmynd, að smiðurinn sker hana út, eða steypt líkneski og lygafræðari, að smiðurinn treystir á það, svo að hann býr til mállausa guði?

19 Vei þeim, sem segir við trédrumb: "Vakna þú! Rís upp!" _ við dumban steininn. Mun hann geta frætt? Nei, þótt hann sé búinn gulli og silfri, þá er þó enginn andi í honum.

20 En Drottinn er í sínu heilaga musteri, öll jörðin veri hljóð fyrir honum!

Bæn Habakkuks spámanns. Með strengjaleik.

Drottinn, ég hefi heyrt boðskap þinn, ég er hræddur. Drottinn, endurnýja verk þitt áður en mörg ár líða, lát það verða kunnugt áður en mörg ár líða. Minnst þú miskunnar í reiðinni.

Guð kemur frá Teman og Hinn heilagi frá Paranfjöllum. (Sela.) Tign hans þekur himininn, og af dýrð hans er jörðin full.

Ljómi birtist eins og sólarljós, geislar stafa út frá hendi hans, og þar er hjúpurinn um mátt hans.

Drepsóttin fer á undan honum, og sýkin fetar í fótspor hans.

Hann gengur fram, og jörðin nötrar, hann lítur upp, og þjóðirnar hrökkva við. Þá molast hin öldnu fjöll sundur, þá sökkva hinar eilífu hæðir niður, hann gengur sama veginn og forðum daga.

Ég sé tjöld Kúsans í nauðum stödd, tjalddúkarnir í Midíanslandi bifast til og frá.

Ert þú, Drottinn, reiður fljótunum, eða beinist bræði þín að þeim? Eða beinist heift þín að hafinu, úr því þú ekur með hesta þína, á sigurvagni þínum?

Ber og nakinn er bogi þinn, þú fyllir örvamæli þinn skeytum, þú klýfur vatnsföll, svo að land kemur fram.

10 Fjöllin sjá þig og skjálfa, steypiregn dynur yfir, hafdjúpið lætur raust sína drynja, réttir hendur sínar hátt upp.

11 Sól og tungl bíða kyrr í híbýlum sínum, fyrir ljósi þinna þjótandi örva, fyrir ljóma þíns leiftrandi spjóts.

12 Í gremi fetar þú yfir jörðina, í reiði þreskir þú þjóðirnar.

13 Þú fer að heiman til þess að frelsa þjóð þína, til þess að hjálpa þínum smurða. Þú brýtur niður mæninn á húsi hins óguðlega, gjörir grundvöllinn beran niður á klöpp.

14 Þú rekur lensur gegnum höfuðið á herforingjum hans, er geysast fram til að tvístra mér. Fagnaðaróp þeirra glymja, eins og þeir ætluðu að uppeta hina hrjáðu í leyni.

15 Þú fer yfir hafið með hesta þína, yfir svelg mikilla vatna.

16 Þegar ég heyrði það, titraði hjarta mitt, varir mínar skulfu við fregnina. Hrollur kom í bein mín, og ég varð skjálfandi á fótum, að ég yrði að bíða hörmungadagsins, uns hann rennur upp þeirri þjóð, er á oss ræðst.

17 Þótt fíkjutréð blómgist ekki og víntrén beri engan ávöxt, þótt gróði olíutrésins bregðist og akurlöndin gefi enga fæðu, þótt sauðfé hverfi úr réttinni og engin naut verði eftir í nautahúsunum,

18 þá skal ég þó gleðjast í Drottni, fagna yfir Guði hjálpræðis míns.