Add parallel Print Page Options

25 Samúel dó, og allur Ísrael safnaðist saman og syrgði hann, og var hann grafinn hjá húsi sínu í Rama. Davíð tók sig upp og fór ofan í Maoneyðimörk.

En í Maon var maður, er bú átti í Karmel. Hann var auðugur mjög og átti þrjú þúsund sauðfjár og eitt þúsund geitur. Hann var þá að klippa sauði sína í Karmel.

Maður þessi hét Nabal og kona hans Abígail. Hún var kona vitur og fríð sýnum, en hann maður harður og illur viðureignar. Hann var af ætt Kalebs.

Og Davíð frétti í eyðimörkinni, að Nabal væri að klippa sauði sína.

Þá sendi Davíð tíu sveina. Og Davíð sagði við sveinana: "Farið til Karmel og gangið á fund Nabals og berið honum kveðju mína

og mælið svo við bróður minn: Heill sért þú og heill sé húsi þínu og heill sé öllu, sem þú átt.

Nú hefi ég heyrt, að verið sé að klippa sauði þína. Fjárhirðar þínir hafa með oss verið og vér höfum þeim ekkert mein gjört, enda hefir þeim einskis vant orðið allan þann tíma, er þeir hafa verið í Karmel.

Spyr þú sveina þína, og munu þeir segja þér hið sanna. Lát því sveinana finna náð í augum þínum, því að á hátíðardegi erum vér komnir. Gef því þjónum þínum og Davíð syni þínum það, sem þú hefir fyrir hendi."

Þegar sveinar Davíðs komu á fund Nabals, fluttu þeir honum öll þessi orð í nafni Davíðs og þögnuðu síðan.

10 En Nabal svaraði þjónum Davíðs og mælti: "Hver er Davíð? Og hver er Ísaíson? Margir gjörast þeir nú þrælarnir, sem strjúka frá húsbændum sínum.

11 Á ég að taka brauð mitt og vín og sláturfé mitt, sem ég hefi slátrað handa sauðaklippurum mínum, og gefa það mönnum, sem ég ekki einu sinni veit hvaðan eru?"

12 Þá sneru sveinar Davíðs á leið og hurfu aftur og komu og fluttu honum öll þessi orð.

13 Þá mælti Davíð til sinna manna: "Gyrðið yður nú, hver sínu sverði!" Og þeir gyrtu sig, hver sínu sverði. Síðan gyrtist og Davíð sínu sverði, og lögðu þeir nú af stað undir forystu Davíðs, um fjögur hundruð manns, en tvö hundruð urðu eftir hjá farangrinum.

14 Einn af sveinum Nabals sagði Abígail, konu Nabals, frá þessu og mælti: "Sjá, Davíð gjörði sendimenn úr eyðimörkinni með kveðju til húsbónda vors, en hann jós yfir þá fáryrðum.

15 Og menn þessir hafa þó verið mjög góðir við oss. Oss hefir ekkert mein verið gjört og oss hefir einskis vant orðið allan þann tíma, er vér héldum oss nálægt þeim, meðan vér vorum í haganum.

16 Þeir voru sem varnargarður í kringum oss bæði um nætur og daga allan þann tíma, er vér héldum fénu til haga nálægt þeim.

17 Hygg nú að og sjá til, hvað þú skalt gjöra, því að ógæfa er búin húsbónda vorum og öllu húsi hans, en hann er slíkt hrakmenni, að ekki má við hann mæla."

18 Þá brá Abígail við og tók tvö hundruð brauð og tvo vínlegla, fimm tilreidda sauði og fimm mæla af bökuðu korni, hundrað rúsínukökur og tvö hundruð fíkjukökur og klyfjaði með asna

19 og sagði við sveina sína: "Farið á undan mér, sjá, ég kem á eftir yður." En Nabal manni sínum sagði hún ekki frá þessu.

20 Og er hún kom ríðandi á asna ofan fjallið og var í hvarfi, sjá, þá kom Davíð með menn sína ofan í móti henni, og rakst hún þar á þá.

21 En Davíð hafði sagt: "Já, til einskis hefi ég varðveitt allt, sem sá maður átti á eyðimörkinni, svo að einskis varð vant af öllu, sem hann átti. Hann hefir launað mér gott með illu.

22 Guð láti Davíð gjalda þess nú og síðar, ef ég læt eftir verða einn karlmann af öllu því, sem hann á, þegar birtir á morgun."

23 En er Abígail sá Davíð, sté hún sem skjótast niður af asnanum og féll fram á ásjónu sína fyrir Davíð og laut til jarðar.

24 Og hún féll honum til fóta og mælti: "Sökin hvílir á mér, herra minn! Leyf ambátt þinni að tala við þig og hlýð á orð ambáttar þinnar.

25 Skeyt eigi, herra minn, um hrakmenni þetta, hann Nabal, því að hann ber nafn með réttu. Heimskingi heitir hann og heimskur er hann. En ég, ambátt þín, hefi ekki séð sveinana, er þú, herra minn, sendir.

26 Og nú, herra minn, svo sannarlega sem Drottinn lifir, og svo sannarlega sem þú lifir og Drottinn hefir aftrað þér frá að úthella blóði og hefna þín sjálfur, þá verði nú óvinir þínir sem Nabal og allir þeir, sem sitja um að gjöra þér illt, herra!

27 Og gáfu þessa, sem þerna þín hefir fært þér, herra minn, lát nú gefa hana sveinunum, sem eru í fylgd með þér, herra minn!

28 Fyrirgef afbrot ambáttar þinnar, því að veita mun Drottinn herra mínum staðfast hús, af því að herra minn heyir bardaga Drottins, og illt mun ekki finnast í fari þínu meðan þú lifir.

29 Og rísi einhver maður upp til þess að ofsækja þig og sitja um líf þitt, þá sé líf herra míns bundið í bundini lifandi manna hjá Drottni, Guði þínum, en lífi óvina þinna þeyti hann burt úr slöngvunni.

30 Og þegar Drottinn veitir þér, herra minn, öll þau gæði, er hann hefir þér heitið, og hefir skipað þig höfðingja yfir Ísrael,

31 þá mun það ekki verða þér til ásteytingar né herra mínum að samviskubiti, að herra minn hafi úthellt blóði að orsakalausu og hefnt sín sjálfur. En þegar Drottinn gjörir vel við þig, herra minn, þá minnstu ambáttar þinnar."

32 Þá mælti Davíð til Abígail: "Lofaður veri Drottinn, Ísraels Guð, sem sendi þig í dag á minn fund.

33 Og blessuð séu hyggindi þín og blessuð sért þú sjálf, sem aftrað hefir mér í dag frá að baka mér blóðskuld og að hefna mín sjálfur.

34 En svo sannarlega sem Drottinn, Ísraels Guð, lifir, sem varðveitt hefir mig frá að gjöra þér illt, hefðir þú eigi hraðað þér svo á minn fund, þá myndi eigi nokkur af mönnum Nabals hafa beðið morguns ódrepinn."

35 Og Davíð tók við því af henni, sem hún færði honum, og sagði við hana: "Far þú í friði heim til þín. Sjá, ég hefi hlýtt á mál þitt og veitt þér bæn þína."

36 Þegar Abígail kom til Nabals, þá hafði hann veislu í húsi sínu, sem konungsveisla væri. Var Nabal hinn kátasti og drukkinn mjög. Sagði hún honum ekkert, hvorki smátt né stórt, fyrr en birti morguninn eftir.

37 En um morguninn, þá er víman var runnin af Nabal, sagði kona hans honum öll þessi tíðindi. Þá dó hjartað í brjósti honum og hann varð sem steinn.

38 Og að eitthvað tíu dögum liðnum laust Drottinn Nabal, svo að hann dó.

39 Þegar Davíð frétti, að Nabal væri dáinn, mælti hann: "Lofaður sé Drottinn, sem hefnt hefir svívirðu minnar á Nabal og haldið hefir þjóni sínum frá illu. En illsku Nabals hefir Drottinn látið honum sjálfum í koll koma." Sendi þá Davíð menn til Abígail þess erindis, að hann vill fá hennar sér til eiginkonu.

40 Þjónar Davíðs komu til Abígail í Karmel og mæltu svo til hennar: "Davíð hefir sent oss á þinn fund þess erindis, að hann vill fá þín sér til eiginkonu."

41 Þá stóð hún upp og hneigði andlit sitt til jarðar og mælti: "Sjá, ambátt þín er þess albúin að gjörast þerna til þess að þvo fætur þjóna herra míns."

42 Síðan bjó Abígail sig í skyndi og steig á bak asna sínum, svo og meyjar hennar fimm, þær er með henni fóru. Hún fór með sendimönnum Davíðs og varð kona hans.

43 Akínóam frá Jesreel hafði Davíð fengið sér til eiginkonu, og báðar urðu þær konur hans.

44 En Sál hafði gefið Míkal dóttur sína, konu Davíðs, Paltí Laíssyni frá Gallím.

26 Sífítar komu til Sáls í Gíbeu og sögðu: "Veistu, að Davíð hefir falið sig í Hahakílahæðunum, gegnt Júdaóbyggðum?"

Þá tók Sál sig upp og fór ofan í Sífeyðimörk og með honum þrjú þúsund manns, valdir menn af Ísrael, til þess að leita Davíðs í Sífeyðimörk.

Og Sál setti herbúðir sínar í Hahakílahæðunum, við veginn gegnt Júdaóbyggðum. En Davíð hélt sig á eyðimörkinni. En er hann frétti, að Sál væri kominn í eyðimörkina til þess að elta hann,

sendi Davíð út njósnarmenn og fékk að vita með vissu, að Sál var kominn.

Þá tók Davíð sig upp og kom þangað sem Sál hafði sett herbúðir sínar. Og er Davíð sá, hvar Sál og Abner Nersson, hershöfðingi hans, hvíldu _ en Sál hvíldi í vagnborg og liðsmenn hans lágu í tjöldum sínum umhverfis hann _,

þá kom hann að máli við Akímelek Hetíta og Abísaí Serújuson, bróður Jóabs, og sagði: "Hver vill fara með mér inn í herbúðirnar til Sáls?" Abísaí mælti: "Ég skal fara með þér."

En er þeir Davíð og Abísaí komu að liðinu um nótt, þá lá Sál sofandi í vagnborginni, og spjót hans var rekið í jörðu að höfði honum, en Abner og liðsmennirnir lágu í kringum hann.

Þá sagði Abísaí við Davíð: "Í dag hefir Guð selt óvin þinn í hendur þér. Nú mun ég reka spjótið gegnum hann og ofan í jörðina með einu lagi; eigi mun ég þurfa að leggja til hans tvisvar."

En Davíð sagði við Abísaí: "Drep þú hann ekki, því að hver leggur svo hönd á Drottins smurða, að hann sleppi hjá hegningu?"

10 Og Davíð mælti enn fremur: "Svo sannarlega sem Drottinn lifir, vissulega mun annaðhvort Drottinn ljósta hann eða dauða hans ber að hendi með náttúrlegum hætti, eða hann fer í hernað og fellur.

11 Drottinn láti það vera fjarri mér að leggja hendur á Drottins smurða. En tak þú nú spjótið, sem er þarna að höfði honum, og vatnsskálina, og förum síðan."

12 Og Davíð tók spjótið og vatnsskálina að höfði Sáls, og síðan fóru þeir leiðar sinnar, en enginn sá það og enginn varð þess var og enginn vaknaði, heldur voru þeir allir sofandi, því að þungur svefn frá Drottni var á þá siginn.

13 Þá gekk Davíð yfir á hæð eina þar gegnt við og nam þar staðar allfjarri, svo að mikið bil var í milli þeirra.

14 Þá kallaði Davíð til liðsins og Abners Nerssonar og mælti: "Hvort mátt þú heyra mál mitt, Abner?" Abner svaraði og sagði: "Hver ert þú, sem kallar til konungsins?"

15 Davíð sagði við Abner: "Ert þú ekki karlmenni, og hver er þinn líki í Ísrael? Hví hefir þú ekki vakað yfir herra þínum, konunginum? Því að einn maður úr liðinu kom og ætlaði að drepa konunginn, herra þinn.

16 Þar hefir þér illa farið. Svo sannarlega sem Drottinn lifir, eruð þér dauða verðir fyrir það, að þér hafið ekki vakað yfir herra yðar, yfir Drottins smurða. Og hygg nú að, hvar spjót konungsins er og hvar vatnsskálin er, sem stóð að höfði honum."

17 En Sál þekkti málróm Davíðs og mælti: "Er þetta ekki málrómur þinn, Davíð sonur minn?" Davíð svaraði: "Jú, málrómur minn er það, herra konungur!"

18 Og Davíð mælti: "Hví ofsækir þú, herra minn, þjón þinn? Hvað hefi ég þá gjört, og hvað illt er í minni hendi?

19 Og hlýð því, minn herra konungur, á mál þjóns þíns. Hafi Drottinn egnt þig upp á móti mér, þá lát hann finna ilm af fórnarreyk, en ef menn hafa gjört það, þá séu þeir bölvaðir fyrir Drottni, þar sem þeir hafa nú flæmt mig burt, svo að ég má eigi halda hóp með eign Drottins, með því að þeir segja: ,Far þú, þjóna þú öðrum guðum!`

20 En lát eigi blóð mitt falla á jörð langt burtu frá augliti Drottins, því að Ísraels konungur er lagður af stað til þess að ná lífi mínu, eins og menn elta akurhænu á fjöllum."

21 Þá mælti Sál: "Ég hefi syndgað. Hverf aftur, Davíð sonur minn, því að ég skal aldrei framar gjöra þér mein, fyrst þú þyrmdir lífi mínu í dag. Sjá, ég hefi breytt heimskulega, og mér hefir mikillega yfirsést."

22 Davíð svaraði og sagði: "Hér er spjót konungs, komi nú einn af sveinunum hingað og sæki það.

23 En Drottinn umbunar hverjum manni ráðvendni hans og trúfesti. Drottinn hafði gefið þig í hendur mínar í dag, en ég vildi ekki leggja hendur á Drottins smurða.

24 Og sjá, eins og líf þitt var mikilsvert í mínum augum í dag, svo veri og líf mitt mikilsvert í augum Drottins, og hann virðist að frelsa mig úr öllum nauðum."

25 Og Sál mælti til Davíðs: "Blessaður ver þú, Davíð sonur minn. Þú munt bæði verða mikill í framkvæmdum og giftudrjúgur." Síðan fór Davíð leiðar sinnar, en Sál sneri aftur heim til sín.

32 Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið.

33 Seljið eigur yðar og gefið ölmusu, fáið yður pyngjur, er fyrnast ekki, fjársjóð á himnum, er þrýtur ekki, þar sem þjófur fær eigi í nánd komist né mölur spillt.

34 Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.

35 Verið gyrtir um lendar, og látið ljós yðar loga,

36 og verið líkir þjónum, er bíða þess, að húsbóndi þeirra komi úr brúðkaupi og þeir geti lokið upp fyrir honum um leið og hann kemur og knýr dyra.

37 Sælir eru þeir þjónar, sem húsbóndinn finnur vakandi, er hann kemur. Sannlega segi ég yður, hann mun gyrða sig belti, láta þá setjast að borði og koma og þjóna þeim.

38 Og komi hann um miðnætti eða síðar og finni þá vakandi, sælir eru þeir þá.

39 Það skiljið þér, að húsráðandi léti ekki brjótast inn í hús sitt, ef hann vissi, á hvaða stundu þjófurinn kæmi.

40 Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi."

41 Þá spurði Pétur: "Herra, mælir þú þessa líkingu til vor eða til allra?"

42 Drottinn mælti: "Hver er sá trúi og hyggni ráðsmaður, sem húsbóndinn setur yfir hjú sín að gefa þeim skammtinn á réttum tíma?

43 Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur.

44 Ég segi yður með sanni: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.

45 En ef sá þjónn segir í hjarta sínu: ,Það dregst, að húsbóndi minn komi,` og tekur að berja þjóna og þernur, eta og drekka og verða ölvaður,

46 þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi, er hann væntir ekki, á þeirri stundu, er hann veit ekki, höggva hann og láta hann fá hlut með ótrúum.

47 Sá þjónn, sem veit vilja húsbónda síns og hefur ekki viðbúnað né gjörir vilja hans, mun barinn mörg högg.

48 En hinn, sem veit hann ekki, en vinnur til refsingar, mun barinn fá högg. Hver sem mikið er gefið, verður mikils krafinn, og af þeim verður meira heimtað, sem meira er léð.

49 Ég er kominn að varpa eldi á jörðu. Hversu vildi ég, að hann væri þegar kveiktur!

50 Skírn á ég að skírast. Hversu þungt er mér, uns hún er fullnuð.

51 Ætlið þér, að ég sé kominn að færa frið á jörðu? Nei, segi ég yður, heldur sundurþykki.

52 Upp frá þessu verða fimm í sama húsi sundurþykkir, þrír við tvo og tveir við þrjá,

53 faðir við son og sonur við föður, móðir við dóttur og dóttir við móður, tengdamóðir við tengdadóttur sína og tengdadóttir við tengdamóður."

54 Hann sagði og við fólkið: "Þá er þér sjáið ský draga upp í vestri, segið þér jafnskjótt: ,Nú fer að rigna.` Og svo verður.

55 Og þegar vindur blæs af suðri, segið þér: ,Nú kemur hiti.` Og svo fer.

56 Hræsnarar, útlit lofts og jarðar kunnið þér að ráða, en hvernig er því farið, að þér kunnið ekki að meta þennan tíma?

57 Hví dæmið þér ekki af sjálfum yður, hvað rétt sé?

58 Þegar þú ferð með andstæðingi þínum fyrir yfirvald, þá kostaðu kapps um það á leiðinni að ná sáttum við hann, til þess að hann dragi þig ekki fyrir dómarann, dómarinn afhendi þig böðlinum, og böðullinn varpi þér í fangelsi.

59 Ég segi þér, eigi munt þú komast út þaðan, fyrr en þú hefur borgað síðasta eyri."

Read full chapter