
Sálmarnir 41 Icelandic Bible (ICELAND)41 Til söngstjórans. Davíðssálmur. 2 Sæll er sá er gefur gaum að bágstöddum, á mæðudeginum bjargar Drottinn honum. 3 Drottinn varðveitir hann og lætur hann njóta lífs og sælu í landinu. Og eigi ofurselur þú hann græðgi óvina hans. 4 Drottinn styður hann á sóttarsænginni, þegar hann er sjúkur, breytir þú beð hans í hvílurúm. 5 Ég sagði: "Ver mér náðugur, Drottinn, lækna sál mína, því að ég hefi syndgað móti þér." 6 Óvinir mínir biðja mér óbæna: "Hvenær skyldi hann deyja og nafn hans hverfa?" 7 Og ef einhver kemur til þess að vitja mín, talar hann tál. Hjarta hans safnar að sér illsku, hann fer út og lætur dæluna ganga. 8 Allir hatursmenn mínir hvískra um mig, þeir hyggja á illt mér til handa: 9 "Hann er altekinn helsótt, hann er lagstur og rís eigi upp framar." 10 Jafnvel sá er ég lifði í sátt við, sá er ég treysti, sá er etið hefir af mat mínum, lyftir hæl sínum í móti mér. 11 En þú, Drottinn, ver mér náðugur og lát mig aftur rísa á fætur, að ég megi endurgjalda þeim. 12 Af því veit ég, að þú hefir þóknun á mér, að óvinur minn hlakkar ekki yfir mér. 13 Vegna sakleysis míns hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir augliti þínu að eilífu. _________ 14 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, frá eilífð til eilífðar. Amen. Amen.
Icelandic Bible (ICELAND) by Icelandic Bible Society |