
Sálmarnir 1 Icelandic Bible (ICELAND)1 Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði, 2 heldur hefir yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lögmál hans dag og nótt. 3 Hann er sem tré, gróðursett hjá rennandi lækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma, og blöð þess visna ekki. Allt er hann gjörir lánast honum. 4 Svo fer eigi hinum óguðlega, heldur sem sáðum, er vindur feykir. 5 Þess vegna munu hinir óguðlegu eigi standast í dóminum og syndugir eigi í söfnuði réttlátra. 6 Því að Drottinn þekkir veg réttlátra, en vegur óguðlegra endar í vegleysu.
Icelandic Bible (ICELAND) by Icelandic Bible Society |