Menu
Bible Gateway Plus logo
Bible Gateway logo
account
A new Bible Gateway experience is here. Spot something unexpected? Tell us what needs a closer look.
Bible Gateway Plus logo
Bible Gateway logo
Read Scripture without ads. Try Bible Gateway Plus.
  • Read
    • Reading Plans
    • Advanced Search
    • Available Versions
    • Audio Bibles
  • Study
    • Scripture Engagement
    • More Resources
  • News
  • Explore
    • Newsletters
    • Devotionals
    • Bible Gateway App
    • Bible Audio App
    • Take a Tour
  • Store
    • Bibles
    • Deals
    • More
  • Bible Gateway Plus
ICELAND
Version
Bible Books Bible Books
ICELAND
Version
Read
Study
News
Explore
Store
Bible Gateway Plus
Light Mode Dark Mode
Font Size
Log In show menu
Previous Next
Print PrintSettingsSettingsShare ShareParallelParallelExpandExpandCollapse

Orðskviðirnir 10  Icelandic Bible

10 Orðskviðir Salómons. Vitur sonur gleður föður sinn, en heimskur sonur er móður sinni til mæðu.

2 Rangfenginn auður stoðar ekki, en réttlæti frelsar frá dauða.

3 Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola hungur, en græðgi guðlausra hrindir hann frá sér.

4 Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd.

5 Hygginn er sá, er á sumri safnar, en skammarlega fer þeim, er um kornsláttinn sefur.

6 Blessun kemur yfir höfuð hins réttláta, en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.

7 Minning hins réttláta verður blessuð, en nafn óguðlegra fúnar.

8 Sá sem er vitur í hjarta, þýðist boðorðin, en sá sem er afglapi í munninum, steypir sér í glötun.

9 Sá sem gengur ráðvandlega, gengur óhultur, en sá sem gjörir vegu sína hlykkjótta, verður uppvís.

10 Sá sem deplar með auganu, veldur skapraun, en sá sem finnur að með djörfung, semur frið.

11 Munnur hins réttláta er lífslind, en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.

12 Hatur vekur illdeilur, en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti.

13 Viska er á vörum hyggins manns, en á baki hins óvitra hvín vöndurinn.

14 Vitrir menn geyma þekking sína, en munnur afglapans er yfirvofandi hrun.

15 Auður ríks manns er honum öflugt vígi, en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli.

16 Afli hins réttláta verður til lífs, gróði hins óguðlega til syndar.

17 Sá fer lífsins leið, er varðveitir aga, en sá villist, er hafnar umvöndun.

18 Sá er leynir hatri, er lygari, en sá sem ber út óhróður, er heimskingi.

19 Málæðinu fylgja yfirsjónir, en sá breytir hyggilega, sem hefir taum á tungu sinni.

20 Tunga hins réttláta er úrvals silfur, vit hins óguðlega er lítils virði.

21 Varir hins réttláta fæða marga, en afglaparnir deyja úr vitleysu.

22 Blessun Drottins, hún auðgar, og erfiði mannsins bætir engu við hana.

23 Heimskingjanum er ánægja að fremja svívirðing, en viskan er hyggnum manni gleði.

24 Það sem hinn óguðlegi óttast, kemur yfir hann, en réttlátum gefst það, er þeir girnast.

25 Þegar vindbylurinn skellur á, er úti um hinn óguðlega, en hinn réttláti stendur á eilífum grundvelli.

26 Það sem edik er tönnunum og reykur augunum, það er letinginn þeim, er hann senda.

27 Ótti Drottins lengir lífdagana, en æviár óguðlegra verða stytt.

28 Eftirvænting réttlátra endar í gleði, en von óguðlegra verður að engu.

29 Vegur Drottins er athvarf sakleysisins, en hrun þeim, er aðhafast illt.

30 Hinn réttláti bifast ekki að eilífu, en hinir óguðlegu munu ekki byggja landið.

31 Munnur hins réttláta framleiðir visku, en fláráð tunga verður upprætt.

32 Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra er eintóm flærð.

Next
Orðskviðirnir 9
Orðskviðirnir 11
Next
dropdown
Icelandic Bible (ICELAND)

Biblían – Heilög Ritning (2007), copyright © 2007 by Hið íslenska biblíufélag. Used by permission of Hið íslenska biblíufélag (www.biblian.is), Borgartún 26, 105 Reykjavík, Iceland. All rights reserved. For more information about the Bible in Icelandic visit www.biblian.is.

Bible Gateway Plus logo
Bible Gateway logo

Font Size

Font Size

Dark Mode

Light Mode Dark Mode

About

  • About
  • Learn About the Bible
  • Statement of Faith
  • Mobile App
  • Store
  • Blog
  • Newsroom
  • Support Us

Help

  • FAQs
  • Tutorials
  • Use Bible Gateway on Your Site
  • Advertise with us
  • Contact us
  • Privacy policy
  • California Privacy Rights
  • Do Not Sell My Personal Information
  • Site: Terms of use
  • Widget: Terms of use

Our Network

  • FaithGateway
  • StudyGateway
  • ChurchSource
  • HarperCollins Christian Publishing
  • Grupo Nelson
  • Editorial Vida
  • Thomas Nelson
  • WestBow Press
  • Zondervan
  • MasterLectures

Social

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinterest
  • TikTok
  • X
  • YouTube

Preferences

  • Versión en español
  • Preferences
  • Classic Bible Gateway
Sign Up for Bible Gateway: News & Knowledge
Get weekly Bible news, info, reflections, and deals in your inbox.

By submitting your email address, you understand that you will receive email communications from Bible Gateway, operated by HarperCollins Christian Publishing, 501 Nelson Pl, Nashville, TN 37214 USA, including commercial communications and messages from partners of Bible Gateway. You may unsubscribe from Bible Gateway’s emails at any time. If you have any questions, please review our Privacy Policy or email us at privacy@biblegateway.com.

Preferences

  • Versión en español
  • Preferences
  • Classic Bible Gateway