Menu
Bible Gateway Plus logo
Bible Gateway logo
account
Welcome to the new Bible Gateway. Take a quick tour and see what’s new.
Bible Gateway Plus logo
Bible Gateway logo
Study resources + Scripture = deeper understanding.
  • Read
    • Reading Plans
    • Advanced Search
    • Available Versions
    • Audio Bibles
  • Study
    • Scripture Engagement
    • More Resources
  • News
  • Explore
    • Newsletters
    • Devotionals
    • Bible Gateway App
    • Bible Audio App
    • Take a Tour
  • Store
    • Bibles
    • Deals
    • More
  • Bible Gateway Plus
ICELAND
Version
Bible Books Bible Books
ICELAND
Version
Read
Study
News
Explore
Store
Bible Gateway Plus
Light Mode Dark Mode
Font Size
Log In show menu
Previous Next
Print PrintSettingsSettingsShare ShareParallelParallelExpandExpandCollapse

Jobsbók 28  Icelandic Bible

28 Að sönnu á silfrið upptökustað og gullið, sem menn hreinsa, fundarstað.

2 Járn er tekið úr jörðu, og steinn er bræddur að eiri.

3 Maðurinn hefir gjört enda á myrkrinu, og til ystu takmarka rannsakar hann steinana, sem faldir eru í kolniðamyrkri.

4 Hann brýtur námugöng fjarri þeim, sem í dagsbirtunni búa, gleymdur mannafótum, fjarlægur mönnum hangir hann, svífur hann.

5 Upp úr jörðinni sprettur brauð, en niðri í henni er öllu umturnað eins og af eldi.

6 Safírinn finnst í grjóti jarðarinnar, og gullkorn fær sá er grefur.

7 Örninn þekkir eigi veginn þangað, og valsaugað sér hann ekki,

8 hin drembnu rándýr ganga hann eigi, ekkert ljón fer hann.

9 Á tinnusteinana leggur maðurinn hönd sína, umturnar fjöllunum frá rótum.

10 Hann heggur göng í björgin, og auga hans sér alls konar dýrindi.

11 Hann bindur fyrir vatnsæðarnar, til þess að þær tárist ekki, og leiðir leynda hluti fram í dagsbirtuna.

12 En spekin, hvar er hana að finna, og hvar á viskan heima?

13 Enginn maður þekkir veginn til hennar, og hana er ekki að finna á landi lifenda.

14 Undirdjúpið segir: "Í mér er hún ekki!" og hafið segir: "Ekki er hún hjá mér!"

15 Hún fæst ekki fyrir skíragull, og ekki verður silfur reitt sem andvirði hennar.

16 Eigi verður hún Ófírgulli goldin né dýrum sjóam- og safírsteinum.

17 Gull og gler kemst ekki til jafns við hana, og hún fæst ekki í skiptum fyrir ker af skíragulli.

18 Kóralla og krystalla er ekki að nefna, og að eiga spekina er meira um vert en perlur.

19 Tópasar Blálands komast ekki til jafns við hana, hún verður ekki goldin með hreinasta gulli.

20 Já spekin, hvaðan kemur hún, og hvar á viskan heima?

21 Hún er falin augum allra þeirra er lifa, og fuglum loftsins er hún hulin.

22 Undirdjúpin og dauðinn segja: "Með eyrum vorum höfum vér heyrt hennar getið."

23 Guð veit veginn til hennar, og hann þekkir heimkynni hennar.

24 Því að hann sér til endimarka jarðar, lítur allt, sem undir himninum er.

25 Þá er hann ákvað þunga vindarins og ákvarðaði takmörk vatnsins,

26 þá er hann setti regninu lög og veg eldingunum,

27 þá sá hann hana og kunngjörði hana, fékk henni stað og rannsakaði hana einnig.

28 Og við manninn sagði hann: "Sjá, að óttast Drottin _ það er speki, og að forðast illt _ það er viska."

Next
Jobsbók 27
Jobsbók 29
Next
dropdown
Icelandic Bible (ICELAND)

Biblían – Heilög Ritning (2007), copyright © 2007 by Hið íslenska biblíufélag. Used by permission of Hið íslenska biblíufélag (www.biblian.is), Borgartún 26, 105 Reykjavík, Iceland. All rights reserved. For more information about the Bible in Icelandic visit www.biblian.is.

Bible Gateway Plus logo
Bible Gateway logo

Font Size

Font Size

Dark Mode

Light Mode Dark Mode

About

  • About
  • Learn About the Bible
  • Statement of Faith
  • Mobile App
  • Store
  • Blog
  • Newsroom
  • Support Us

Help

  • FAQs
  • Tutorials
  • Use Bible Gateway on Your Site
  • Advertise with us
  • Contact us
  • Privacy policy
  • California Privacy Rights
  • Do Not Sell My Personal Information
  • Site: Terms of use
  • Widget: Terms of use

Our Network

  • FaithGateway
  • StudyGateway
  • ChurchSource
  • HarperCollins Christian Publishing
  • Grupo Nelson
  • Editorial Vida
  • Thomas Nelson
  • WestBow Press
  • Zondervan
  • MasterLectures

Social

  • Facebook
  • Instagram
  • Pinterest
  • TikTok
  • X
  • YouTube

Preferences

  • Versión en español
  • Preferences
  • Classic Bible Gateway
Sign Up for Bible Gateway: News & Knowledge
Get weekly Bible news, info, reflections, and deals in your inbox.

By submitting your email address, you understand that you will receive email communications from Bible Gateway, operated by HarperCollins Christian Publishing, 501 Nelson Pl, Nashville, TN 37214 USA, including commercial communications and messages from partners of Bible Gateway. You may unsubscribe from Bible Gateway’s emails at any time. If you have any questions, please review our Privacy Policy or email us at privacy@biblegateway.com.

Preferences

  • Versión en español
  • Preferences
  • Classic Bible Gateway