Add parallel Print Page Options

17 Á tólfta ríkisári Akasar Júdakonungs varð Hósea Elason konungur í Samaríu yfir Ísrael og ríkti níu ár.

Hann gjörði það, sem illt var í augum Drottins, þó ekki eins og Ísraelskonungar þeir, er verið höfðu á undan honum.

Salmaneser Assýríukonungur fór herför í móti honum, og varð Hósea lýðskyldur honum og galt honum skatt.

En er Assýríukonungur varð þess var, að Hósea bjó yfir svikum við hann, þar sem hann gjörði menn á fund Só Egyptalandskonungs og greiddi Assýríukonungi eigi framar árlega skattinn, eins og verið hafði, þá tók Assýríukonungur hann höndum og lét fjötra hann í dýflissu.

Og Assýríukonungur herjaði landið allt og fór til Samaríu og sat um hana í þrjú ár.

En á níunda ríkisári Hósea vann Assýríukonungur Samaríu og herleiddi Ísrael til Assýríu. Fékk hann þeim bústað í Hala og við Habór, fljótið í Gósan, og í borgum Meda.

Þannig fór, af því að Ísraelsmenn höfðu syndgað gegn Drottni, Guði sínum, þeim er leiddi þá út af Egyptalandi, undan valdi Faraós Egyptalandskonungs, og dýrkað aðra guði.

Þeir fóru og að siðum þeirra þjóða, er Drottinn hafði stökkt burt undan Ísraelsmönnum, og að siðum Ísraelskonunga, er þeir sjálfir höfðu sett.

Þá gjörðu og Ísraelsmenn það, er rangt var gagnvart Drottni, Guði þeirra, og byggðu sér fórnarhæðir í öllum borgum sínum, jafnt varðmannaturnum sem víggirtum borgum.

10 Þeir reistu sér merkissteina og asérur á öllum háum hólum og undir hverju grænu tré

11 og fórnuðu þar reykelsisfórnum á öllum hæðum eins og þjóðirnar, er Drottinn hafði rekið burt undan þeim. Aðhöfðust þeir það sem illt var og egndu Drottin til reiði.

12 Og þeir dýrkuðu skurðgoð, er Drottinn hafði sagt um við þá: ,Þér skuluð eigi gjöra slíkt.`

13 Og þó hafði Drottinn aðvarað Ísrael og Júda fyrir munn allra spámannanna, allra sjáandanna, og sagt: ,Snúið aftur frá yðar vondu vegum og varðveitið skipanir mínar og boðorð í öllum greinum samkvæmt lögmálinu, er ég lagði fyrir feður yðar, og því er ég bauð yður fyrir munn þjóna minna, spámannanna.`

14 En þeir hlýddu ekki, heldur þverskölluðust eins og feður þeirra, er eigi treystu Drottni, Guði sínum.

15 Þeir virtu að vettugi lög hans og sáttmála, þann er hann hafði gjört við feður þeirra, og boðorð hans, þau er hann hafði fyrir þá lagt, og eltu fánýt goð og breyttu heimskulega að dæmi þjóðanna, er umhverfis þá voru, þótt Drottinn hefði bannað þeim að breyta eftir þeim.

16 Þeir yfirgáfu öll boð Drottins, Guðs síns, og gjörðu sér steypt líkneski, tvo kálfa, og þeir gjörðu asérur, féllu fram fyrir öllum himinsins her og dýrkuðu Baal.

17 Þeir létu sonu sína og dætur ganga gegnum eldinn, fóru með galdur og fjölkynngi og ofurseldu sig til að gjöra það, sem illt var í augum Drottins, til þess að egna hann til reiði.

18 Þá reiddist Drottinn Ísrael ákaflega og rak þá burt frá augliti sínu. Ekkert varð eftir nema Júdaættkvísl ein.

19 Júdamenn héldu ekki heldur boðorð Drottins, Guðs síns. Þeir fóru að siðum Ísraelsmanna, er þeir sjálfir höfðu sett.

20 Fyrir því hafnaði Drottinn öllu Ísraels kyni og auðmýkti þá og gaf þá í hendur ræningjum, þar til er hann útskúfaði þeim frá augliti sínu.

21 Þegar Drottinn hafði slitið Ísrael frá ætt Davíðs og þeir höfðu tekið Jeróbóam Nebatsson til konungs, þá tældi Jeróbóam Ísrael til að snúa sér frá Drottni og kom þeim til að drýgja mikla synd.

22 Og Ísraelsmenn drýgðu allar sömu syndirnar, sem Jeróbóam hafði drýgt. Þeir létu eigi af þeim,

23 þar til er Drottinn rak Ísrael burt frá augliti sínu, eins og hann hafði sagt fyrir munn allra þjóna sinna, spámannanna. Þannig var Ísrael herleiddur burt úr landi sínu til Assýríu og hefir verið þar fram á þennan dag.

24 Assýríukonungur flutti inn fólk frá Babýloníu, frá Kúta, frá Ava, frá Hamat og frá Sefarvaím og lét það setjast að í borgum Samaríu í stað Ísraelsmanna. Tóku þeir Samaríu til eignar og settust að í borgum hennar.

25 En með því að þeir dýrkuðu ekki Drottin, fyrst eftir að þeir voru setstir þar að, þá sendi Drottinn ljón meðal þeirra. Ollu þau manntjóni meðal þeirra.

26 Þá sögðu menn svo við Assýríukonung: "Þjóðirnar, er þú fluttir burt og lést setjast að í borgum Samaríu, vita eigi, hver dýrkun landsguðnum ber. Fyrir því hefir hann sent ljón meðal þeirra, og sjá, þau deyða þá, af því að þeir vita ekki, hvað landsguðnum ber."

27 Þá skipaði Assýríukonungur svo fyrir: "Látið einn af prestunum fara þangað, þeim er ég flutti burt þaðan, að hann fari og setjist þar að og kenni þeim, hver dýrkun landsguðnum ber."

28 Þá kom einn af prestunum, þeim er þeir höfðu flutt burt úr Samaríu, og settist að í Betel. Hann kenndi þeim, hvernig þeir ættu að dýrka Drottin.

29 Samverjar gjörðu sér sína guði, hver þjóðflokkur út af fyrir sig, og settu þá í hæðahofin, er þeir höfðu reist, hver þjóðflokkur út af fyrir sig í sínum borgum, þeim er þeir bjuggu í.

30 Babýloníumenn gjörðu líkneski af Súkkót Benót, Kútmenn gjörðu líkneski af Nergal, Hamatmenn gjörðu líkneski af Asíma,

31 Avítar gjörðu líkneski af Nibkas og Tartak, en Sefarvítar brenndu börn sín til handa Adrammelek og Anammelek, Sefarvaím-guðum.

32 Þeir dýrkuðu einnig Drottin og gjörðu menn úr sínum hóp að hæðaprestum. Báru þeir fram fórnir fyrir þá í hæðahofunum.

33 Þannig dýrkuðu þeir Drottin, en þjónuðu einnig sínum guðum að sið þeirra þjóða, er þeir höfðu verið fluttir frá.

34 Fram á þennan dag fara þeir að fornum siðum. Þeir dýrka ekki Drottin og breyta ekki eftir lögum hans og ákvæðum og lögmáli því og boðorði, er Drottinn lagði fyrir sonu Jakobs, þess er hann gaf nafnið Ísrael.

35 En Drottinn hafði gjört sáttmála við þá og boðið þeim á þessa leið: ,Þér skuluð eigi dýrka neina aðra guði, eigi falla fram fyrir þeim, eigi þjóna þeim né færa þeim fórnir,

36 en Drottin, sem leiddi yður af Egyptalandi með miklum mætti og útréttum armlegg _ hann skuluð þér dýrka, fyrir honum skuluð þér falla fram og honum skuluð þér fórnir færa.

37 En lög þau og ákvæði, lögmál og boðorð, er hann hefir ritað handa yður, skuluð þér varðveita, svo að þér haldið þau alla daga, og þér skuluð eigi dýrka aðra guði.

38 Og sáttmálanum, er ég hefi við yður gjört, skuluð þér ekki gleyma, og þér skuluð eigi dýrka aðra guði,

39 en Drottin, Guð yðar, skuluð þér dýrka, og mun hann þá frelsa yður af hendi allra óvina yðar.`

40 Samt hlýddu þeir ekki, heldur fóru þeir að fornum siðum.

41 Þannig dýrkuðu þá þessar þjóðir Drottin, en þjónuðu þó um leið skurðgoðum sínum. Börn þeirra og barnabörn breyta og enn í dag eins og feður þeirra breyttu.

18 Á þriðja ríkisári Hósea Elasonar Ísraelskonungs tók ríki Hiskía Akasson Júdakonungs.

Hann var tuttugu og fimm ára gamall, þá er hann varð konungur, og tuttugu og níu ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Abía Sakaríadóttir.

Hann gjörði það, sem rétt var í augum Drottins, að öllu svo sem gjört hafði Davíð forfaðir hans.

Hann afnam fórnarhæðirnar, braut merkissteinana, hjó í sundur aséruna og mölvaði eirorminn, þann er Móse hafði gjöra látið, því að allt til þess tíma höfðu Ísraelsmenn fært honum reykelsisfórnir, og var hann nefndur Nehústan.

Hiskía treysti Drottni, Ísraels Guði, svo að eftir hann var enginn honum líkur meðal allra Júdakonunga og eigi heldur neinn þeirra, er á undan honum höfðu verið.

Hann hélt sér fast við Drottin, veik eigi frá honum og varðveitti boðorð hans, þau er Drottinn hafði lagt fyrir Móse.

Og Drottinn var með honum. Í öllu því, er hann tók sér fyrir hendur, var hann lánsamur. Hann braust undan Assýríukonungi og var ekki lengur lýðskyldur honum.

Hann vann og sigur á Filistum alla leið til Gasa og eyddi landið umhverfis hana, jafnt varðmannaturna sem víggirtar borgir.

En á fjórða ríkisári Hiskía konungs _ það er á sjöunda ríkisári Hósea Elasonar Ísraelskonungs _ fór Salmaneser Assýríukonungur herför gegn Samaríu og settist um hana.

10 Unnu þeir hana eftir þrjú ár. Á sjötta ríkisári Hiskía _ það er á níunda ríkisári Hósea Ísraelskonungs _ var Samaría unnin.

11 Og Assýríukonungur herleiddi Ísrael til Assýríu og lét þá setjast að í Hala og við Habór, fljótið í Gósan, og í borgum Meda,

12 af því að þeir höfðu ekki hlýtt raustu Drottins, Guðs þeirra, heldur rofið sáttmála hans, allt það er Móse, þjónn Drottins, hafði boðið. Þeir höfðu hvorki hlýtt því né breytt eftir því.

13 Á fjórtánda ríkisári Hiskía konungs fór Sanheríb Assýríukonungur herför gegn öllum víggirtum borgum í Júda og vann þær.

14 Þá sendi Hiskía Júdakonungur boð til Assýríukonungs til Lakís og lét segja honum: "Ég hefi syndgað, far aftur burt frá mér. Mun ég greiða þér slíkt gjald, er þú á mig leggur." Þá lagði Assýríukonungur þrjú hundruð talentur silfurs og þrjátíu talentur gulls á Hiskía Júdakonung.

15 Greiddi þá Hiskía allt silfur, er til var í musteri Drottins og fjárhirslum konungshallarinnar.

16 Um þær mundir tók Hiskía gullið af dyrunum á musteri Drottins og af dyrastöfunum, er Hiskía Júdakonungur hafði lagt þá með, og fékk Assýríukonungi.

17 Þá sendi Assýríukonungur yfirhershöfðingja sinn, höfuðsmann og marskálk með miklu liði frá Lakís til Jerúsalem á fund Hiskía konungs. Fóru þeir af stað og komu til Jerúsalem og námu staðar hjá vatnsstokknum úr efri tjörninni, sem er við veginn út á bleikivöllinn.

18 Og er þeir komu á fund konungs, þá gengu þeir Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanslari og Jóak Asafsson ríkisritari út til þeirra.

19 Marskálkur konungs mælti til þeirra: "Segið Hiskía: Svo segir hinn mikli konungur, Assýríukonungur: Hvert er það athvarf, er þú treystir á?

20 Þú hyggur víst, að munnfleiprið eitt sé næg ráðagerð og liðstyrkur til hernaðar. Á hvern treystir þú þá svo, að þú skulir hafa gjört uppreisn í gegn mér?

21 Nú, þú treystir þá á þennan brotna eirstaf, á Egyptaland! Hann stingst upp í höndina á hverjum þeim, er við hann styðst, og fer í gegnum hana. Slíkur er Faraó Egyptalandskonungur öllum þeim, er á hann treysta.

22 Og ef þér segið við mig: ,Vér treystum á Drottin, Guð vorn,` eru það þá ekki fórnarhæðir hans og ölturu, sem Hiskía hefir numið burt, er hann sagði við Júdamenn og Jerúsalembúa: ,Fyrir þessu altari skuluð þér fram falla í Jerúsalem?`

23 Kom til og veðja við herra minn, Assýríukonunginn: Ég skal fá þér tvö þúsund hesta, ef þú getur sett riddara á þá.

24 Hvernig munt þú fá rekið af höndum þér einn höfuðsmann meðal hinna minnstu þjóna herra míns? Og þó treystir þú á Egyptaland vegna hervagnanna og riddaranna!

25 Hvort mun ég nú hafa farið til þessa staðar án vilja Drottins til þess að eyða hann? Drottinn sagði við mig: ,Far þú inn í þetta land og eyð það."`

26 Þá sögðu þeir Eljakím Hilkíason, Sébna og Jóak við marskálk konungs: "Tala þú við þjóna þína á arameísku, því að vér skiljum hana, en tala eigi við oss á Júda tungu í áheyrn fólksins, sem uppi er á borgarveggnum."

27 En marskálkurinn sagði við þá: "Hefir herra minn sent mig til herra þíns eða til þín til þess að flytja þetta erindi? Hefir hann ekki sent mig til þeirra manna, sem þar sitja uppi á borgarveggnum og eiga þann kost fyrir höndum ásamt yður að eta sinn eigin saur og drekka þvag sitt?"

28 Þá gekk marskálkurinn fram og kallaði hárri röddu á Júda tungu, tók til máls og sagði: "Heyrið orð hins mikla konungs, Assýríukonungs!

29 Svo segir konungurinn: Látið eigi Hiskía tæla yður, því að hann fær ekki frelsað yður af hans hendi.

30 Og látið eigi Hiskía koma yður til að treysta á Drottin með því að segja: ,Drottinn mun vissulega frelsa oss, og þessi borg skal ekki verða Assýríukonungi í hendur seld.`

31 Hlustið eigi á Hiskía! Því að svo segir Assýríukonungur: Gjörið frið við mig og gangið mér á hönd, þá skal hver yðar mega eta af sínum vínviði og sínu fíkjutré og hver yðar drekka vatn úr sínum brunni,

32 þar til er ég kem og flyt yður í annað eins land og yðar land, í kornland og aldinlagar, í brauðland og víngarða, í olíuviðarland og hunangs, svo að þér megið lifa og eigi deyja. Hlustið því eigi á Hiskía! Því að hann ginnir yður, er hann segir: ,Drottinn mun frelsa oss.`

33 Hefir nokkur af guðum þjóðanna frelsað land sitt undan hendi Assýríukonungs?

34 Hvar eru guðir Hamatborgar og Arpadborgar? Hvar eru guðir Sefarvaím, Hena og Íva? Hafa þeir frelsað Samaríu undan minni hendi?

35 Hverjir eru þeir af öllum guðum landanna, er frelsað hafi lönd sín undan minni hendi, svo að Drottinn skyldi fá frelsað Jerúsalem undan minni hendi?"

36 En lýðurinn þagði og svaraði honum engu orði, því að skipun konungs var þessi: "Svarið honum eigi."

37 En þeir Eljakím Hilkíason dróttseti, Sébna kanslari og Jóak Asafsson ríkisritari gengu á fund Hiskía með sundurrifnum klæðum og fluttu honum orð marskálksins.