Font Size
Lúkasarguðspjall 9:51-56
Icelandic Bible
Lúkasarguðspjall 9:51-56
Icelandic Bible
51 Nú fullnaðist brátt sá tími, er hann skyldi upp numinn verða. Beindi hann þá augum til Jerúsalem, einráðinn að fara þangað.
52 Og hann lét sendiboða fara á undan sér. Þeir fóru og komu í Samverjaþorp nokkurt til að búa honum gistingu.
53 En þeir tóku ekki við honum, því hann var á leið til Jerúsalem.
54 Þegar lærisveinar hans, þeir Jakob og Jóhannes, sáu það, sögðu þeir: "Herra, eigum vér að bjóða, að eldur falli af himni og tortími þeim?"
55 En hann sneri sér við og ávítaði þá [og sagði: "Ekki vitið þið, hvers anda þið eruð.
56 Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa."] Og þeir fóru í annað þorp.
Read full chapter
Icelandic Bible (ICELAND)
by Icelandic Bible Society