Add parallel Print Page Options

22 Eftir þetta birtist Jesús lærisveinunum aftur og þá við Tíberíasvatn. Hann birtist þannig:

Þeir voru saman: Símon Pétur, Tómas, kallaður tvíburi, Natanael frá Kana í Galíleu, Sebedeussynirnir og tveir enn af lærisveinum hans.

Símon Pétur segir við þá: "Ég fer að fiska." Þeir segja við hann: "Vér komum líka með þér." Þeir fóru og stigu í bátinn. En þá nótt fengu þeir ekkert.

Þegar dagur rann, stóð Jesús á ströndinni. Lærisveinarnir vissu samt ekki, að það var Jesús.

Jesús segir við þá: "Drengir, hafið þér nokkurn fisk?" Þeir svöruðu: "Nei."

Hann sagði: "Kastið netinu hægra megin við bátinn, og þér munuð verða varir." Þeir köstuðu, og nú gátu þeir ekki dregið netið, svo mikill var fiskurinn.

Lærisveinninn, sem Jesús elskaði, segir við Pétur: "Þetta er Drottinn." Þegar Símon Pétur heyrði, að það væri Drottinn, brá hann yfir sig flík _ hann var fáklæddur _ og stökk út í vatnið.

En hinir lærisveinarnir komu á bátnum, enda voru þeir ekki lengra frá landi en svo sem tvö hundruð álnir, og drógu netið með fiskinum.

Þegar þeir stigu á land, sáu þeir fisk lagðan á glóðir og brauð.

10 Jesús segir við þá: "Komið með nokkuð af fiskinum, sem þér voruð að veiða."

11 Símon Pétur fór í bátinn og dró netið á land, fullt af stórum fiskum, eitt hundrað fimmtíu og þremur. Og netið rifnaði ekki, þótt þeir væru svo margir.

Read full chapter