Add parallel Print Page Options

Adam, Set, Enos.

Kenan, Mahalalel, Jared.

Henok, Methúsala, Lamek.

Nói, Sem, Kam og Jafet.

Synir Jafets voru: Gómer, Magóg, Madaí, Javan, Túbal, Mesek og Tíras.

Synir Gómers: Askenas, Rífat og Tógarma.

Synir Javans: Elísa, Tarsis, Kittar og Ródanítar.

Synir Kams: Kús, Mísraím, Pút og Kanaan.

Synir Kúss: Seba, Havíla, Sabta, Raema og Sabteka. Og synir Raema: Séba og Dedan.

10 Og Kús gat Nimrod. Hann tók að gjörast voldugur á jörðinni.

11 Mísraím gat Lúdíta, Anamíta, Lehabíta, Naftúkíta,

12 Patrúsíta, Kaslúkíta (þaðan eru komnir Filistar) og Kaftóríta.

13 Kanaan gat Sídon, frumgetning sinn, og Het,

14 og Jebúsíta, Amoríta, Gírgasíta,

15 Hevíta, Arkíta, Síníta,

16 Arvadíta, Semaríta og Hamatíta.

17 Synir Sems: Elam, Assúr, Arpaksad, Lúd, Aram, Ús, Húl, Geter og Mas.

18 Og Arpaksad gat Sela og Sela gat Eber.

19 Og Eber fæddust tveir synir. Hét annar Peleg, því að á hans dögum greindist fólkið á jörðinni, en bróðir hans hét Joktan.

20 Og Joktan gat Almódad, Salef, Hasarmavet, Jara,

21 Hadóram, Úsal, Dikla,

22 Ebal, Abímael, Séba,

23 Ófír, Havíla og Jóbab. Þessir allir voru synir Joktans.

24 Sem, Arpaksad, Sela,

25 Eber, Peleg, Reú,

26 Serúg, Nahor, Tara,

27 Abram, það er Abraham.

28 Synir Abrahams: Ísak og Ísmael.

29 Þetta er ættartal þeirra: Nebajót var frumgetinn sonur Ísmaels, þá Kedar, Adbeel, Míbsam,

30 Misma, Dúma, Massa, Hadad, Tema,

31 Jetúr, Nafis og Kedma. Þessir voru synir Ísmaels.

32 Synir Ketúru, hjákonu Abrahams: Hún ól Símran, Joksan, Medan, Midían, Jísbak og Súa. Og synir Joksans voru: Séba og Dedan.

33 Og synir Midíans: Efa, Efer, Hanok, Abída og Eldaa. Allir þessir voru niðjar Ketúru.

34 Abraham gat Ísak. Synir Ísaks voru Esaú og Ísrael.

35 Synir Esaú: Elífas, Regúel, Jehús, Jaelam og Kóra.

36 Synir Elífas voru: Teman, Ómar, Sefí, Gaetam, Kenas, Timna og Amalek.

37 Synir Regúels voru: Nahat, Sera, Samma og Missa.

38 Og synir Seírs: Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, Díson, Eser og Dísan.

39 Og synir Lótans: Hórí og Hómam, og systir Lótans var Timna.

40 Synir Sóbals voru: Aljan, Manahat, Ebal, Sefí og Ónam. Og synir Síbeons: Aja og Ana.

41 Sonur Ana: Díson. Og synir Dísons: Hamran, Esban, Jítran og Keran.

42 Synir Esers voru: Bílhan, Saavan og Jaakan. Synir Dísans voru: Ús og Aran.

43 Þessir eru þeir konungar, sem ríktu í Edómlandi, áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum: Bela, sonur Beórs, og hét borg hans Dínhaba.

44 Og er Bela dó, tók Jóbab, sonur Sera frá Bosra, ríki eftir hann.

45 Og er Jóbab dó, tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann.

46 Og er Húsam dó, tók Hadad sonur Bedads ríki eftir hann. Hann vann sigur á Midíanítum á Móabsvöllum, og borg hans hét Avít.

47 Og er Hadad dó, tók Samla frá Masreka ríki eftir hann.

48 Og er Samla dó, tók Sál frá Rehóbót hjá Fljótinu ríki eftir hann.

49 Og er Sál dó, tók Baal Hanan, sonur Akbórs, ríki eftir hann.

50 Og er Baal Hanan dó, tók Hadad ríki eftir hann, og hét borg hans Pagí, en kona hans Mehetabeel, dóttir Madredar, dóttur Me-Sahabs.

51 Og Hadad dó. Og höfðingjar Edómíta voru: höfðinginn Timna, höfðinginn Alva, höfðinginn Jetet,

52 höfðinginn Oholíbama, höfðinginn Ela, höfðinginn Pínon,

53 höfðinginn Kenas, höfðinginn Teman, höfðinginn Mibsar,

54 höfðinginn Magdíel, höfðinginn Íram. Þessir voru höfðingjar Edómíta.

Þessir voru synir Ísraels: Rúben, Símeon, Leví og Júda, Íssakar og Sebúlon,

Dan, Jósef og Benjamín, Naftalí, Gað og Asser.

Synir Júda: Ger, Ónan og Sela, þrír að tölu, er dóttir Súa, kanverska konan, ól honum. En Ger, frumgetinn sonur Júda, var vondur fyrir augliti Drottins, svo að Drottinn lét hann deyja.

Tamar tengdadóttir hans ól honum Peres og Sera. Synir Júda voru alls fimm.

Synir Peres: Hesron og Hamúl.

Synir Sera: Simrí, Etan, Heman, Kalkól og Dara _ fimm alls.

Synir Karmí: Akar, sá er steypti Ísrael í ógæfu með því að fara sviksamlega með hið bannfærða.

Og synir Etans: Asarja.

Og synir Hesrons, er fæddust honum: Jerahmeel, Ram og Kelúbaí.

10 Ram gat Ammínadab, og Ammínadab gat Nahson, höfuðsmann Júdamanna.

11 Nahson gat Salma, Salma gat Bóas,

12 Bóas gat Óbeð, Óbeð gat Ísaí.

13 Ísaí gat Elíab frumgetning sinn, þá Abínadab, Símea hinn þriðja,

14 Netaneel hinn fjórða, Raddaí hinn fimmta,

15 Ósem hinn sjötta, Davíð hinn sjöunda.

16 Og systur þeirra voru þær Serúja og Abígail, og synir Serúju voru: Abísaí, Jóab og Asahel, þrír að tölu.

17 En Abígail ól Amasa, og faðir Amasa var Jeter Ísmaelíti.

18 Kaleb, sonur Hesrons, gat börn við Asúbu konu sinni og við Jeríót. Þessir voru synir hennar: Jeser, Sóbab og Ardon.

19 Og er Asúba andaðist, gekk Kaleb að eiga Efrat og ól hún honum Húr,

20 en Húr gat Úrí og Úrí gat Besaleel.

21 Síðan gekk Hesron inn til dóttur Makírs, föður Gíleaðs, og tók hana sér fyrir konu. Var hann þá sextíu ára gamall. Hún ól honum Segúb.

22 Og Segúb gat Jaír. Hann átti tuttugu og þrjár borgir í Gíleaðlandi.

23 En Gesúrítar og Sýrlendingar tóku Jaírs-þorp frá þeim, Kenat og þorpin þar í kring, sextíu borgir alls. Allir þessir voru niðjar Makírs, föður Gíleaðs.

24 Og eftir andlát Hesrons í Kaleb Efrata ól Abía kona hans honum Ashúr, föður Tekóa.

25 Synir Jerahmeels, frumgetins sonar Hesrons: Ram, frumgetningurinn, og Búna, Óren, Ósem og Ahía.

26 En Jerahmeel átti aðra konu, er Atara hét. Hún var móðir Ónams.

27 Synir Rams, frumgetins sonar Jerahmeels: Maas, Jamín og Eker.

28 Og synir Ónams voru: Sammaí og Jada; og synir Sammaí: Nadab og Abísúr.

29 En kona Abísúrs hét Abíhaíl. Hún ól honum Akban og Mólíd.

30 Og synir Nadabs voru: Seled og Appaím, en Seled dó barnlaus.

31 Og synir Appaíms: Jíseí, og synir Jíseí: Sesan, og synir Sesans: Ahelaí.

32 Og synir Jada, bróður Sammaí: Jeter og Jónatan, en Jeter dó barnlaus.

33 Og synir Jónatans voru: Pelet og Sasa. Þessir voru niðjar Jerahmeels.

34 Og Sesan átti enga sonu, heldur dætur einar. En Sesan átti egypskan þræl, er Jarha hét.

35 Og Sesan gaf Jarha þræli sínum dóttur sína fyrir konu, og hún ól honum Attaí.

36 Og Attaí gat Natan, Natan gat Sabat,

37 Sabat gat Eflal, Eflal gat Óbeð,

38 Óbeð gat Jehú, Jehú gat Asarja,

39 Asarja gat Heles, Heles gat Eleasa,

40 Eleasa gat Sísemaí, Sísemaí gat Sallúm,

41 Sallúm gat Jekamja og Jekamja gat Elísama.

42 Synir Kalebs, bróður Jerahmeels: Mesa, frumgetinn sonur hans _ hann var faðir Sífs _ svo og synir Maresa, föður Hebrons.

43 Synir Hebrons voru: Kóra, Tappúa, Rekem og Sema.

44 Og Sema gat Raham, föður Jorkeams, og Rekem gat Sammaí.

45 En sonur Sammaí var Maon, og Maon var faðir að Bet Súr.

46 Og Efa, hjákona Kalebs, ól Haran, Mósa og Gases, en Haran gat Gases.

47 Synir Jehdaí: Regem, Jótam, Gesan, Pelet, Efa og Saaf.

48 Maaka, hjákona Kalebs, ól Seber og Tírkana.

49 Og enn ól hún Saaf, föður Madmanna, Sefa, föður Makbena og föður Gíbea, en dóttir Kalebs var Aksa.

50 Þessir voru synir Kalebs. Synir Húrs, frumgetins sonar Efrata: Sóbal, faðir að Kirjat Jearím,

51 Salma, faðir að Betlehem, Haref, faðir að Bet Gader.

52 Og Sóbal, faðir að Kirjat Jearím, átti fyrir sonu: Haróe, hálft Menúhót

53 og ættirnar frá Kirjat Jearím, svo og Jítríta, Pútíta, Súmatíta og Mísraíta. Frá þeim eru komnir Sóreatítar og Estaólítar.

54 Synir Salma: Betlehem og Netófatítar, Atarót, Bet Jóab og helmingur Manatíta, það er Sóreíta,

55 og ættir fræðimannanna, er búa í Jabes, Tíreatítar, Símeatítar og Súkatítar. Þetta eru Kínítar, er komnir eru frá Hammat, föður Rekabs ættar.