Add parallel Print Page Options

24 Og orð Drottins kom til mín níunda árið, tíunda dag hins tíunda mánaðar, svohljóðandi:

"Mannsson, skrifa þú upp hjá þér þennan dag, _ einmitt þennan dag. Einmitt í dag hefir Babelkonungur ráðist á Jerúsalem.

Flyt því hinni þverúðugu kynslóð líking og seg við þá: Svo segir Drottinn Guð: Set þú upp pottinn, set hann upp, og hell vatni í hann.

Lát kjötstykkin í hann, öll bestu stykkin, lærin og bógana, fyll hann úrvalsbeinbitum.

Tak þau af úrvalskindum og legg einnig skíð undir pottinn. Lát sjóða á kjötstykkjunum, beinbitarnir soðna þegar í honum.

Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Vei hinni blóðseku borg, pottinum með ryðflekkjunum, sem ryðflekkirnir gengu ekki af. Allt hefir verið fært upp úr honum, hvert stykkið eftir annað, án þess að varpa hlutum um þau.

Því að blóðið, sem hún hefir úthellt, er enn í henni. Hún hefir látið það renna á bera klettana, ekki hellt því á jörðina til þess að hylja það moldu.

Til þess að sýna heift og koma fram hefnd, hefi ég látið blóðið, sem hún hefir úthellt, renna á bera klettana, til þess að það skuli eigi hulið verða.

Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Vei hinni blóðseku borg! Já, ég vil gjöra eldgrófina stóra.

10 Drag saman mikinn við, kveik upp eldinn, sjóð kjötið vandlega, lát súpuna sjóða, svo að beinin brenni.

11 Set síðan tóman pottinn á glæðurnar, til þess að hann hitni og eirinn í honum verði glóandi og óhreinindin, sem í honum eru, renni af og ryð hans eyðist.

12 Alla fyrirhöfn hefir hann að engu gjört, því að hið mikla ryð gekk ekki af honum í eldinum,

13 sökum lauslætissaurugleika þíns. Af því að ég hefi reynt að hreinsa þig, en þú varðst eigi hrein af saurugleik þínum, þá skalt þú ekki framar verða hrein, uns ég hefi svalað heift minni á þér.

14 Ég, Drottinn, hefi talað það. Það kemur, og ég framkvæmi það, ég læt ekki undan draga, ég vægi ekki og ég læt mig einskis iðra. Eftir breytni þinni og eftir gjörðum þínum dæma menn þig, _ segir Drottinn Guð."

15 Og orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:

16 "Mannsson, ég mun taka yndi augna þinna frá þér með skyndilegum dauða, en þú skalt ekki kveina né gráta, og eigi skulu þér tár á augu koma.

17 Andvarpa þú í hljóði, viðhaf ekkert dánarkvein. Set vefjarhött þinn á þig og lát skó þína á fætur þér. Þú skalt ekki hylja kamp þinn og ekki neyta sorgarbrauðs."

18 Og ég talaði til lýðsins um morguninn, en um kveldið dó kona mín, og ég gjörði morguninn eftir eins og mér hafði verið skipað.

19 Þá sagði fólkið við mig: "Vilt þú ekki segja oss, hvað þetta á að þýða, að þú hagar þér svo?"

20 Ég svaraði þeim: "Orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:

21 Seg við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Sjá, ég mun vanhelga helgidóm minn, yðar mikla ofdrambsefni, yndi augna yðar og þrá sálar yðar, og synir yðar og dætur, er þér hafið skilið þar eftir, munu falla fyrir sverði.

22 Þá munuð þér gjöra eins og ég hefi gjört: Þér munuð ekki hylja kamp yðar og ekki neyta sorgarbrauðs.

23 Þér munuð hafa vefjarhöttinn á höfðinu og skóna á fótunum. Þér munuð ekki kveina né gráta, heldur veslast upp vegna misgjörða yðar og andvarpa hver með öðrum.

24 Þannig mun Esekíel verða yður til tákns. Með öllu svo sem hann hefir gjört, munuð þér og gjöra, er það ber að höndum, og þá munuð þér viðurkenna, að ég er Drottinn Guð.

25 En þú, mannsson _ vissulega mun þann dag, er ég tek frá þeim varnarvirki þeirra, hinn dýrlega unað þeirra, yndi augna þeirra og þrá sálar þeirra, sonu þeirra og dætur, _

26 þann dag mun flóttamaður til þín koma, til þess að gjöra það heyrinkunnugt.

27 Á þeim degi mun munnur þinn upp ljúkast, um leið og munnur flóttamannsins, og þá munt þú tala og ekki framar þegja, og þú munt vera þeim til tákns, og þeir munu viðurkenna, að ég er Drottinn."

25 Og orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:

"Mannsson, snú þér að Ammónítum og spá gegn þeim

og seg við Ammóníta: Heyrið orð Drottins Guðs! Svo segir Drottinn Guð: Af því að þú hlakkaðir yfir því, að helgidómur minn var vanhelgaður og yfir því að Ísraelsland var í eyði lagt og yfir því að Júdamenn urðu að fara í útlegð,

sjá, fyrir því gef ég þig austurbyggjum til eignar, að þeir setji tjöld sín í þér og reisi búðir sínar í þér. Þeir munu eta ávöxtu þína og þeir munu drekka mjólk þína.

Og ég vil gjöra Rabba að beitilandi fyrir úlfalda og land Ammóníta að fjárbóli, til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn.

Því að svo segir Drottinn Guð: Af því að þú klappaðir lof í lófa og stappaðir með fætinum og fagnaðir með fullri fyrirlitning í hjarta yfir Ísraelslandi,

sjá, fyrir því rétti ég út hönd mína í móti þér og læt þig verða heiðingjum að herfangi og afmái þig úr tölu þjóðanna og týni þér úr tölu landanna. Ég vil tortíma þér, til þess að þú viðurkennir, að ég er Drottinn.

Svo segir Drottinn Guð: Af því að Móab segir: Sjá, Júdalýður er eins og allar aðrar þjóðir!

Sjá, fyrir því opna ég hlíðar Móabs, til þess að landið verði borgalaust, missi borgir sínar allt til hinnar ystu: prýði landsins, Bet Jesímót, Baal Meon og Kirjataím.

10 Austurbyggjum gef ég það til eignar, í viðbót við land Ammóníta, til þess að Ammóníta verði eigi framar minnst meðal þjóðanna.

11 Og ég mun framkvæma refsidóma á Móab, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn.

12 Svo segir Drottinn Guð: Af því að Edóm hefir breytt við Júdamenn af mikilli hefndargirni og misgjört stórlega með því að hefna sín á þeim,

13 fyrir því segir Drottinn Guð svo: Ég vil rétta út hönd mína gegn Edóm og eyða þar mönnum og fénaði og gjöra landið að auðn. Frá Teman allt til Dedan skulu þeir fyrir sverði falla.

14 Og ég fel lýð mínum Ísrael að framkvæma hefnd mína á Edóm, svo að þeir fari með Edóm samkvæmt reiði minni og heift, og hann fái að kenna á hefnd minni, _ segir Drottinn Guð.

15 Svo segir Drottinn Guð: Af því að Filistar sýndu af sér hefnigirni og hefndu sín með fyrirlitning í hjarta, hyggjandi á tortíming með ævarandi fjandskap,

16 fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, ég mun rétta út hönd mína gegn Filistum og útrýma Kretum og eyða þeim, sem eftir eru á sjávarströndinni.

17 Og ég mun koma miklum hefndum fram á þeim með grimmilegum hirtingum, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn, þá er ég læt hefnd mína koma fram á þeim."

26 En á ellefta árinu, hinn fyrsta dag mánaðarins, kom orð Drottins til mín, svohljóðandi:

"Mannsson, af því að Týrus hlakkaði yfir Jerúsalem og sagði: ,Nú er þjóðahliðið brotið upp, hefir opnast að mér, nú vil ég fylla mig, er hún er komin í auðn!` _

fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, ég skal finna þig, Týrus, ég skal leiða í móti þér margar þjóðir, eins og þegar hafið lætur öldur sínar að streyma.

Þær skulu brjóta múra Týrusar og rífa niður turna hennar, og ég mun sjálfur sópa burt öllum jarðveg af henni og gjöra hana að berum kletti.

Hún skal verða að þerrireit fyrir fiskinet úti í hafinu, því að ég hefi talað það, _ segir Drottinn Guð, _ og hún skal verða þjóðunum að herfangi.

En dætur hennar, sem eru á landi, skulu drepnar verða með sverði, til þess að þær viðurkenni, að ég er Drottinn.

Því að svo segir Drottinn Guð: Sjá ég leiði Nebúkadresar konung í Babýlon, konung konunganna, gegn Týrus úr norðri, með hestum, vögnum, riddurum og mannsöfnuði margra þjóða.

Hann mun drepa dætur þínar á landi með sverði, hlaða víggarða gegn þér, hleypa upp jarðhrygg gegn þér og reisa skjöldu í móti þér.

Og hann mun hleypa víghrút sínum á múra þína og rífa niður turna þína með járntólum sínum.

10 Af mergð hesta hans munt þú hulin verða jóreyk, og múrar þínir munu gnötra af gný riddaranna, hjólanna og vagnanna, þegar hann fer inn um borgarhlið þín, eins og þegar farið er inn í hertekna borg.

11 Með hófum hesta sinna mun hann troða sundur öll stræti þín. Lýð þinn mun hann brytja niður með sverði, og þínar voldugu súlur munu hrapa til jarðar.

12 Og þeir munu ræna auð þínum og hrifsa burt kaupeyri þinn, brjóta niður borgarveggi þína, rífa niður þín dýrlegu hús og varpa á sjó út húsagrjótinu, viðunum og rofinu.

13 Ég skal lægja klið ljóða þinna, og hljómur harpna þinna skal ekki framar heyrast.

14 Og ég skal gjöra þig að berum kletti: Þú skalt verða að þerrireit fyrir fiskinet, þú skalt aldrei framar endurreist verða, því að ég, Drottinn, hefi talað það, _ segir Drottinn Guð.

15 Svo segir Drottinn Guð um Týrus: Munu ekki eyjarnar gnötra við dynkinn af hruni þínu, þá er hinir vegnu stynja, þá er sverðið brytjar fólkið niður í þér?

16 Og allir þjóðhöfðingjar við hafið munu stíga niður af hásætum sínum og leggja af sér skikkjur sínar og fara úr litklæðum sínum. Þeir munu íklæðast skelfingu, þeir munu setjast á jörðina, þeir munu vera síhræddir og sem agndofa þín vegna.

17 Og þeir munu hefja upp harmljóð yfir þér og segja um þig: Hversu ert þú eydd, horfin frá hafinu, þú vegsamaða borg, sem voldug varst á hafinu, hún og íbúar hennar, sem skutu skelk í bringu öllum nábúum sínum.

18 Nú nötra sælöndin á degi falls þíns og eyjarnar í hafinu eru skelfdar yfir afdrifum þínum.

19 Því að svo segir Drottinn Guð: Þegar ég gjöri þig að eyddri borg, eins og þær borgir, sem óbyggðar eru, þegar ég læt hafsjóinn streyma yfir þig, svo að hin miklu vötn hylji þig,

20 þá steypi ég þér niður til þeirra, sem ofan eru farnir í gröfina, til manna frá fyrri tíðum, og bý þér stað í undirheimum, eins og ævagömlum rústum, hjá þeim sem ofan eru farnir í gröfina, til þess að þú verðir ekki byggð framar og standir ekki framar á landi lifandi manna.

21 Ég sel þig á vald voveiflegri glötun, og þú munt farast. Þín mun verða leitað, en þú munt aldrei finnast til eilífðar, _ segir Drottinn Guð."

Leggið því af alla vonsku og alla pretti, hræsni og öfund og allt baktal.

Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk, til þess að þér af henni getið dafnað til hjálpræðis,

enda "hafið þér smakkað, hvað Drottinn er góður."

Komið til hans, hins lifanda steins, sem hafnað var af mönnum, en er hjá Guði útvalinn og dýrmætur,

og látið sjálfir uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús, til heilags prestafélags, til að bera fram andlegar fórnir, Guði velþóknanlegar fyrir Jesú Krist.

Því svo stendur í Ritningunni: Sjá, ég set hornstein í Síon, valinn og dýrmætan. Sá sem trúir á hann mun alls eigi verða til skammar.

Yður sem trúið er hann dýrmætur, en hinum vantrúuðu er steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, orðinn að hyrningarsteini

og: ásteytingarsteini og hrösunarhellu. Þeir steyta sig á honum, af því að þeir óhlýðnast boðskapnum. Það var þeim ætlað.

En þér eruð "útvalin kynslóð, konunglegt prestafélag, heilög þjóð, eignarlýður, til þess að þér skuluð víðfrægja dáðir hans," sem kallaði yður frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss.

10 Þér sem áður voruð ekki lýður eruð nú orðnir "Guðs lýður". Þér, sem "ekki nutuð miskunnar", hafið nú "miskunn hlotið".

11 Þér elskuðu, ég áminni yður sem gesti og útlendinga að halda yður frá holdlegum girndum, sem heyja stríð gegn sálunni.

12 Hegðið yður vel meðal heiðingjanna, til þess að þeir, er nú hallmæla yður sem illgjörðamönnum, sjái góðverk yðar og vegsami Guð á tíma vitjunarinnar.

13 Verið Drottins vegna undirgefnir allri mannlegri skipan, bæði keisara, hinum æðsta,

14 og landshöfðingjum, sem hann sendir til að refsa illgjörðamönnum og þeim til lofs er breyta vel.

15 Því að það er vilji Guðs, að þér skuluð með því að breyta vel þagga niður vanþekkingu heimskra manna.

16 Þér eruð frjálsir menn, hafið ekki frelsið fyrir hjúp yfir vonskuna, breytið heldur sem þjónar Guðs.

17 Virðið alla menn, elskið bræðrafélagið, óttist Guð, heiðrið keisarann.

18 Þér þjónar, verið undirgefnir húsbændum yðar með allri lotningu, ekki einungis hinum góðu og sanngjörnu, heldur einnig hinum ósanngjörnu.

19 Ef einhver þolir móðganir og líður saklaus vegna meðvitundar um Guð, þá er það þakkar vert.

20 Því að hvaða verðleiki er það, að þér sýnið þolgæði, er þér verðið fyrir höggum vegna misgjörða? En ef þér sýnið þolgæði, er þér líðið illt, þótt þér hafið breytt vel, það aflar velþóknunar hjá Guði.

21 Til þessa eruð þér kallaðir. Því að Kristur leið einnig fyrir yður og lét yður eftir fyrirmynd, til þess að þér skylduð feta í hans fótspor.

22 "Hann drýgði ekki synd, og svik voru ekki fundin í munni hans."

23 Hann illmælti eigi aftur, er honum var illmælt, og hótaði eigi, er hann leið, heldur gaf það í hans vald, sem réttvíslega dæmir.

24 Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð, til þess að vér skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þér læknaðir.

25 Þér voruð sem villuráfandi sauðir, en nú hafið þér snúið yður til hans, sem er hirðir og biskup sálna yðar.