Add parallel Print Page Options

En þessa nótt gat konungur ekki sofið. Bauð hann þá að koma með Annálabókina, og var hún lesin fyrir konungi.

Þá fannst þar skrifað, hversu Mordekai hefði komið upp um þá Bigtan og Teres, tvo geldinga konungs, af þeim er geymdu dyranna, sem höfðu leitast við að leggja hönd á Ahasverus konung.

Þá sagði konungur: "Hverja sæmd og upphefð hefir Mordekai hlotið fyrir þetta?" Þá sögðu sveinar konungs, þeir er þjónuðu honum: "Hann hefir ekkert hlotið fyrir."

Og konungur sagði: "Hver er í forgarðinum?" Í sama bili hafði Haman komið inn í ytri forgarð konungshallarinnar til þess að tala um það við konung að láta festa Mordekai á gálga þann, er hann hafði reist handa honum.

Og sveinar konungs sögðu við hann: "Sjá, Haman stendur í forgarðinum." Konungur mælti: "Látið hann koma inn."

En er Haman var inn kominn, sagði konungur við hann: "Hvað á að gjöra við þann mann, er konungur vill heiður sýna?" Þá hugsaði Haman með sjálfum sér: "Hverjum mun konungur vilja heiður sýna öðrum en mér?"

Og Haman sagði við konung: "Ef konungur vill sýna einhverjum heiður,

þá skal sækja konunglegan skrúða, sem konungur hefir klæðst, og hest, sem konungur hefir riðið, og konungleg kóróna er sett á höfuð hans.

Og skrúðann og hestinn skal fá í hendur einum af höfðingjum konungs, tignarmönnunum, og færa þann mann, sem konungur vill sýna heiður, í skrúðann og láta hann ríða hestinum um borgartorgið og hrópa fyrir honum: Þannig er gjört við þann mann, er konungur vill heiður sýna."

10 Þá sagði konungur við Haman: "Sæk sem skjótast skrúðann og hestinn, svo sem þú hefir sagt, og gjör þannig við Mordekai Gyðing, sem situr hér í konungshliði. Lát ekkert niður falla af öllu því, er þú hefir sagt."

11 Þá sótti Haman skrúðann og hestinn, færði Mordekai í og lét hann ríða um borgartorgið og hrópaði fyrir honum: "Þannig er gjört við þann mann, er konungurinn vill heiður sýna."

12 Síðan sneri Mordekai aftur í konungshliðið. En Haman skundaði heim til sín, hryggur og með huldu höfði.

13 Og Haman sagði Seres konu sinni og öllum vinum sínum frá öllu því, er fyrir hann hafði komið. Þá sögðu vitringar hans við hann og Seres kona hans: "Ef Mordekai, sem þú ert tekinn að falla fyrir, er af ætt Gyðinga, þá megnar þú ekkert á móti honum, heldur munt þú gjörsamlega falla fyrir honum."

14 Meðan þeir voru enn við hann að tala, komu geldingar konungs, og fóru þeir í skyndi með Haman til veislunnar, er Ester hafði búið.

Þá er þeir konungur og Haman voru komnir til þess að drekka hjá Ester drottningu,

þá sagði konungur við Ester einnig þennan hinn annan dag, þá er þau voru setst að víndrykkjunni: "Hver er bón þín, Ester drottning? Hún mun veitast þér. Og hvers beiðist þú? Þótt það væri helmingur ríkisins, þá skal það í té látið."

Þá svaraði Ester drottning og sagði: "Hafi ég fundið náð í augum þínum, konungur, og þóknist konunginum svo, þá sé mér gefið líf mitt vegna bænar minnar og þjóð minni vegna beiðni minnar.

Því að vér erum seldir, ég og þjóð mín, til eyðingar, deyðingar og tortímingar. Og ef vér hefðum aðeins verið seldir að þrælum og ambáttum, þá mundi ég hafa þagað, þótt mótstöðumaðurinn hefði eigi verið fær um að bæta konungi skaðann."

Þá mælti Ahasverus konungur og sagði við Ester drottningu: "Hver er sá og hvar er sá, er dirfðist að gjöra slíkt?"

Ester mælti: "Mótstöðumaðurinn og óvinurinn er þessi vondi Haman!" En Haman varð hræddur við konung og drottningu.

Og konungur stóð upp frá víndrykkjunni í reiði og gekk út í hallargarðinn, en Haman stóð eftir til þess að biðja Ester drottningu um líf sitt, því að hann sá sér ógæfu búna af konungi.

En þegar konungur kom aftur utan úr hallargarðinum inn í veislusalinn, þá hafði Haman látið fallast á hvílubekk þann, sem Ester sat á. Þá sagði konungur: "Mun hann einnig ætla að nauðga drottningunni hjá mér hér í höllinni?" Óðara en þessi orð voru komin út af vörum konungs, huldu menn auglit Hamans.

Og Harbóna, einn af geldingum þeim, er þjónuðu konungi, mælti: "Sjá, gálginn, sem Haman lét gjöra handa Mordekai, sem þó hafði talað það, er konungi varð til heilla, stendur búinn í húsagarði Hamans, fimmtíu álna hár." Þá mælti konungur: "Festið hann á hann!"

10 Og þeir festu Haman á gálgann, sem hann hafði reisa látið handa Mordekai. Þá rann konungi reiðin.

Þennan sama dag gaf Ahasverus konungur Ester drottningu hús Hamans, fjandmanns Gyðinga. En Mordekai gekk fyrir konung, því að Ester hafði sagt honum, hvað hann væri sér.

Og konungur dró innsiglishringinn af hendi sér, þann er hann hafði látið taka af Haman, og fékk Mordekai hann. En Ester setti Mordekai yfir hús Hamans.

Og Ester talaði enn við konung, féll honum til fóta og bað hann grátandi að ónýta illskuráð Hamans Agagíta, þau er hann hafði upp hugsað gegn Gyðingum.

En konungur rétti gullsprotann út í móti Ester. Þá stóð Ester upp og gekk fyrir konung

og mælti: "Ef konunginum þóknast svo og hafi ég fundið náð í augum hans og sé konunginum það ekki ógeðfellt og ef hann hefir mætur á mér, þá sé nú gefin út skrifleg skipun til þess að afturkalla bréfin, ráðagerð Hamans Hamdatasonar Agagíta, þau er hann ritaði til þess að láta eyða Gyðingum í öllum skattlöndum konungs.

Því að hvernig mundi ég fá afborið að horfa upp á ógæfu þá, er koma á yfir þjóð mína, og hvernig mundi ég fá afborið að horfa upp á tortíming kynsmanna minna?"

Þá sagði Ahasverus konungur við Ester drottningu og Mordekai Gyðing: "Sjá, hús Hamans hefi ég gefið Ester, og sjálfur hefir hann verið festur á gálga, fyrir þá sök, að hann hafði lagt hendur á Gyðinga.

En skrifið þið nú um Gyðinga það er ykkur líkar í nafni konungs og innsiglið það með innsiglishring konungs. Því að ekkert það bréf, sem skrifað er í nafni konungs og innsiglað með innsiglishring konungs, verður afturkallað."

Og skrifurum konungs var þá stefnt saman, hinn tuttugasta og þriðja dag hins þriðja mánaðar _ það er mánaðarins sívan _ og var þá skrifað með öllu svo sem Mordekai bauð, til Gyðinga og til jarlanna og til landstjóranna og til höfðingja skattlandanna frá Indlandi til Blálands, til skattlandanna hundrað tuttugu og sjö, í hvert skattland með skrift þess lands og til hverrar þjóðar á hennar tungu, og einnig til Gyðinga með þeirra skrift og á þeirra tungu.

10 Og hann skrifaði í nafni Ahasverusar konungs og innsiglaði með innsiglishring konungs, og hann sendi bréf með ríðandi hraðboðum, sem riðu fyrirmannagæðingum úr stóði konungs,

11 þar sem konungur leyfði Gyðingum í öllum borgum að safnast saman og verja líf sitt og að eyða, deyða og tortíma öllum liðsafla þeirrar þjóðar og lands, er sýndi þeim fjandskap, jafnvel börnum og konum, og ræna fjármunum þeirra,

12 á einum degi í öllum skattlöndum Ahasverusar konungs, hinn þrettánda dag hins tólfta mánaðar _ það er mánaðarins adar.

13 Eftirrit af bréfinu skyldi gefið út sem lög í hverju skattlandi til þess að gjöra þetta kunnugt öllum þjóðunum og til þess að Gyðingar skyldu vera viðbúnir þennan dag að hefna sín á óvinum sínum.

14 Hraðboðarnir, sem riðu fyrirmannagæðingunum, fóru af stað með skyndingu og flýti, að boði konungs, þegar er lagaboðið var gefið út í borginni Súsa.

15 En Mordekai gekk út frá konungi í konunglegum skrúða, purpurabláum og hvítum, með stóra gullkórónu og í möttli úr býssus og rauðum purpura, og í borginni Súsa varð gleði mikil og fögnuður.

16 Og hjá Gyðingum var ljós og gleði, fögnuður og dýrð.

17 Og í öllum skattlöndum og öllum borgum, þar sem skipun konungs og lagaboð hans kom, var gleði og fögnuður meðal Gyðinga, veisluhöld og hátíðisdagur. Og margir hinna heiðnu landsbúa gjörðust Gyðingar, því að ótti við Gyðinga var yfir þá kominn.

Og þrettánda dag hins tólfta mánaðar _ það er mánaðarins adar _, þá er skipun konungs og lagaboði hans skyldi fullnægt, þann dag er óvinir Gyðinga höfðu vonað að fá yfirbugað þá, en nú þvert á móti Gyðingar sjálfir skyldu yfirbuga fjendur sína,

þá söfnuðust Gyðingar saman í borgum sínum um öll skattlönd Ahasverusar konungs til þess að leggja hendur á þá, er þeim leituðu tjóns. Og enginn fékk staðist fyrir þeim, því að ótti við þá var kominn yfir allar þjóðir.

Og allir höfðingjar skattlandanna og jarlarnir og landstjórarnir og embættismenn konungs veittu Gyðingum lið, því að ótti við Mordekai var yfir þá kominn.

Því að Mordekai var mikill orðinn við hirð konungs, og orðstír hans fór um öll skattlöndin, því að maðurinn Mordekai varð æ voldugri og voldugri.

Og Gyðingar unnu á óvinum sínum með sverði, drápu þá og tortímdu þeim, og fóru þeir með hatursmenn sína eftir geðþekkni sinni.

Og í borginni Súsa drápu Gyðingar og tortímdu fimm hundruðum manns.

Og þeir drápu Parsandata, Dalfón, Aspata,

Pórata, Adalja, Arídata,

Parmasta, Arísaí, Arídaí og Vajesata,

10 tíu sonu Hamans Hamdatasonar, fjandmanns Gyðinga. En eigi lögðu þeir hendur á fjármuni manna.

11 Þennan sama dag var tala þeirra, sem vegnir höfðu verið í borginni Súsa, flutt konungi.

12 Og konungur sagði við Ester drottningu: "Í borginni Súsa hafa Gyðingar drepið og tortímt fimm hundruð manns og tíu sonu Hamans. Hvað munu þeir hafa gjört í öðrum skattlöndum konungs? Og hver er bæn þín? Hún skal veitast þér. Og hvers beiðist þú frekar? Það skal í té látið."

13 Þá mælti Ester: "Ef konunginum þóknast svo, þá sé Gyðingum, þeim sem eru í borginni Súsa, leyft að fara hinu sama fram á morgun sem í dag, og þá tíu sonu Hamans festi menn á gálga."

14 Og konungur bauð að svo skyldi gjöra, og fyrirskipun var útgefin í Súsa, og synir Hamans tíu voru festir á gálga.

15 Og Gyðingar í Súsa söfnuðust og saman hinn fjórtánda dag adarmánaðar og drápu þrjú hundruð manns í Súsa. En eigi lögðu þeir hendur á fjármuni þeirra.

16 En aðrir Gyðingar, þeir er bjuggu í skattlöndum konungs, söfnuðust saman og vörðu líf sitt með því að hefna sín á óvinum sínum og drepa sjötíu og fimm þúsundir meðal fjandmanna sinna _ en eigi lögðu þeir hendur á fjármuni þeirra _

17 hinn þrettánda dag adarmánaðar, og þeir tóku sér hvíld hinn fjórtánda og gjörðu hann að veislu- og gleðidegi.

18 En Gyðingar þeir, sem bjuggu í Súsa, höfðu safnast saman bæði hinn þrettánda og hinn fjórtánda mánaðarins, og tóku þeir sér hvíld hinn fimmtánda og gjörðu hann að veislu- og gleðidegi.

19 Fyrir því halda Gyðingar í sveitunum, þeir er búa í sveitaþorpunum, hinn fjórtánda dag adarmánaðar sem gleði-, veislu- og hátíðisdag og senda þá hver öðrum matgjafir.

20 Mordekai skrásetti þessa viðburði og sendi bréf til allra Gyðinga í öllum skattlöndum Ahasverusar konungs, bæði nær og fjær,

21 til þess að gjöra þeim að skyldu að halda árlega helgan fjórtánda og fimmtánda dag adarmánaðar _

22 eins og dagana, sem Gyðingar fengu hvíld frá óvinum sínum, og mánuðinn, er hörmung þeirra snerist í fögnuð og hryggð þeirra í hátíðisdag _ með því að gjöra þá að veisludögum og fagnaðar og senda þá hver öðrum matgjafir og fátækum ölmusu.

23 Og Gyðingar lögleiddu að gjöra það, er þeir höfðu upp byrjað og Mordekai hafði skrifað þeim.

24 Með því að Haman Hamdatason Agagíti, fjandmaður allra Gyðinga, hafði hugsað það ráð upp gegn Gyðingum að eyða þeim og varpað púr, það er hlutkesti, til að afmá þá og eyða þeim,

25 en konungur hafði fyrirskipað með bréfi, þá er Ester gekk fyrir hann, að hið vonda ráð, er hann hafði upphugsað gegn Gyðingum, skyldi honum sjálfum í koll koma og hann og synir hans skyldu festir á gálga,

26 fyrir því voru þessir dagar kallaðir púrím, eftir orðinu púr. Þess vegna _ vegna allra orða þessa bréfs, bæði vegna þess, er þeir sjálfir höfðu séð, og hins, er þeir höfðu orðið fyrir _

27 gjörðu Gyðingar það að skyldu og lögleiddu það sem venju, er eigi mætti út af bregða, bæði fyrir sig og niðja sína og alla þá, er sameinuðust þeim, að halda þessa tvo daga helga árlega, samkvæmt fyrirskipuninni um þá og á hinum ákveðna tíma,

28 og að þessara daga skyldi verða minnst og þeir helgir haldnir af hverri kynslóð og hverri ætt, í hverju skattlandi og í hverri borg, svo að þessir púrímdagar skyldu eigi líða undir lok meðal Gyðinga og minning þeirra aldrei í gleymsku falla hjá niðjum þeirra.

29 Og Ester drottning, dóttir Abíhaíls, og Mordekai Gyðingur rituðu bréf og beittu þar öllu valdi sínu til þess að gjöra að lögum þetta annað bréf um púrím.

30 Og hann sendi bréf til allra Gyðinga í skattlöndin hundrað tuttugu og sjö, um allt ríki Ahasverusar, friðar- og sannleiksorð,

31 til þess að lögleiða þessa púrímdaga á hinum ákveðna tíma, eins og Mordekai Gyðingur og Ester drottning höfðu lögleitt þá fyrir þá, eins og þeir höfðu lögleitt ákvæðin um föstur og harmakvein, er þeim skyldi fylgja, fyrir sig og niðja sína.

32 Og skipun Esterar gjörði púrímákvæði þessi að lögum, og var hún rituð í bók.

10 Og Ahasverus konungur lagði skatt á landið og eyjar hafsins.

En öll verk máttar hans og hreysti og lýsing á vegsemd Mordekai, þeirri er konungur hóf hann til, það er ritað í Árbókum Medíu- og Persíukonunga.